Lífið

Vöknuðu fyrir allar aldir til að gera aðra at­lögu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sá japanski sveif yfir rauðu línuna til vinstri í gær en óvíst er hvort hann hafi náð 300 metrunum í morgun, bláu línunni.
Sá japanski sveif yfir rauðu línuna til vinstri í gær en óvíst er hvort hann hafi náð 300 metrunum í morgun, bláu línunni.

Japanski skíðastökkvarinn Ryoyu Kobayashi gerði í morgun aðra atlögu að því að stökkva yfir 300 metra í Hlíðarfjalli í dag. Mikil leynd hvílir yfir viðburðinum sem er hluti af markaðssetningu Red Bull drykkjarins.

Vísir sagði í gær frá viðburðinum en Hlíðarfjalli var lokað í allan gærdag vegna tilraunarinnar. Verkfræðistofan Cowi á Akureyri hefur unnið með Red Bull í nokkra mánuði við undirbúning stökkbrautarinnar.

Heimsmetið í skíðastökki er 253,3 metrar. Austurríski skíðastökkvarinn Stefan Kraft náði stökki upp á 253,5 metra árið 2017 í Vikersundbakken í Vikersund í Noregi.

Rjómablíða var á Akureyri í gær sem hjálpaði ekki til eftir því sem leið á daginn samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Snjóbráð var töluvert sem hægði á rennsli stökkvarans sem reynir að ná eins miklum hraða og hægt er áður en hann tekst á loft.

Í upptöku sem Trausti Halldórsson tökumaður náði fyrir RÚV í gær sést þegar Kobayashi svífur yfir 253,5 metra línuna svo munar örfáum metrum. Markmiðið var að ná 300 metra stökki og var því ákveðið að reyna aftur í morgunsárið.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var stökkvarinn, Red Bull teymið og fólk frá Cowi mætt í Hlíðarfjall fyrir klukkan sjö í morgun og gerðar atlögur að stökkinu. Núna um ellefuleytið virðist verkefninu vera lokið. Búið er að taka niður hluta af búnaðinum og líklegt að verkefninu sé lokið. Óvíst er hvort 300 metra stökkið hafi tekist.

Andrésar Andarleikarnir verða settir í íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld en keppni hefst í Hlíðarfjalli á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×