Lífið

Suzuki mun flytja inn í höll Björg­ólfs

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Húsið er sérlega glæsilegt.
Húsið er sérlega glæsilegt. Vísir/Arnar

Björgólfur Guðmundsson athafnamaður seldi í síðasta mánuði einbýlishús sitt að Vesturbrún 22 í Laugardalnum til sendiráðs Japans. Kaupverðið er 540 milljónir króna og var fasteignin afhent í síðasta mánuði.

Viðskiptablaðið greinir frá því að sendiráðið verði nýtt sem sendiherrabústaður. Sendiráðið sjálft er á efstu hæð byggingar að Laugavegi 182 sem oftast er kennd við Kauphöllina og kemur fram í umfjöllun blaðsins að sendiráðið verði þar áfram.

Björgólfur eignaðist húsið árið 1994 með eiginkonu sinni heitinni Þóru Hallgrímsson. Húsið var skráð á Þóru þar til hún lést árið 2020.

Hinn 83 ára athafnamaður hefur um margra ára skeið verið einn sá þekktasti hér á landi. Hann var formaður bankaráðs Landsbanka Íslands árin fyrir bankahrunið og var meðal annars stjórnarformaður og eigandi enska knattspyrnuliðsins West Ham. Árið 1993 stofnaði hann ásamt syni sínum Björgólfi Thor Björgólfssyni drykkjarvöruverksmiðjuna Bravo Brewery í Rússlandi. Árið 2002 seldu þeir Heineken verksmiðjuna fyrir 400 milljónir króna.

Ryotaro Suzuki er sendiherra Japan á Íslandi og hefur verið síðan árið 2021. Hann hefur vakið mikla athygli fyrir skelegga og einlæga framkomu á samfélagsmiðlum. Þar hefur hann verið duglegur að greina frá störfum sínum og heimsóknum fyrir sendiráðið, auk þess sem hann hefur verið duglegur að lesa íslenskar bækur á íslensku og horfa á íslenskar myndir. 

Húsið eignuðust hjónin árið 1994. Vísir/Arnar

Húsið hefur gjarnan verið kennt við höll í almennri umræðu. Vísir/Arnar

Húsið hefur verið skráð á Björgólf síðan eiginkona hans lést fyrir fjórum árum. Vísir/Arnar

Húsið verður sendiherrabústaður Japans. Vísir/Arnar

Tengdar fréttir

Nýi sendiherrann sem slegið hefur í gegn á Twitter

Nýr sendiherra Japans á Íslandi hefur vakið mikla lukku á Twitter fyrstu vikur sínar í embætti. Hann kveðst hæstánægður með viðtökur íslenskra fylgjenda sinna og hlakkar til komandi verkefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×