Innlent

Vill axla á­byrgð eftir mis­heppnað rán á Pizzunni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Pizzan er staðsett í verslunarkjarnanum Hverafold í Grafarvogi.
Pizzan er staðsett í verslunarkjarnanum Hverafold í Grafarvogi. Hverafold

23 ára karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir rán á veitingastaðnum Pizzunni fyrir rúmum tveimur árum. Hann hafði lítið upp úr krafsinu og missti bæði síma sinn og lykla á vettvangi glæpsins. Hann sagðist fyrir dómi vilja axla ábyrgð á brotum sínum en hann hefur farið í meðferð vegna fíknivanda.

Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm sinn á dögunum. Þar kemur fram að karlmaðurinn hafi í nóvember 2021 mætt grímuklæddur og vopnaður hnífi á útibú Pizzunnar í Hverafold í Grafarvogi í þeim tilgangi að komast yfir reiðufé.

Karlmaðurinn fór beint inn fyrir afgreiðsluborðið og opnaði sjóðvél staðarins þar sem var að finna um átján þúsund krónur. Hann var kunnugur staðháttum en hann var fyrrverandi starfsmaður Pizzunnar.

Missti síma sinn og lykil

Er starfsfólk varð vart við manninn ógnaði hann fólkinu með hnífnum með því að beina honum í áttina til þeirra. Sagði hann eitthvað á þá leið að hann yrði að gera þetta. Hljóp hann þvínæst út af staðnum en ekki vildi betur til en svo að í hamagangnum missti hann farsíma sinn og lykil.

Starfsfólkið tók gripina í sína vörslu en karlmaðurinn sneri aftur til að vitja munanna. Eftir orðaskipti reyndi kona sem vann á staðnum að ná taki á honum. Brást hann við með því að sveifla hnífnum að henni. Hljóp hann svo á brott.

Annar starfsmaður og vegfarandi yfirburðu manninn á næstu grösum og hélt honum þar til lögregla kom á vettvang.

Sagðist vilja axla ábyrgð

Málið tók skamma stund í meðferð dómstóla því maðurinn játaði brot sitt skýlaust. Hann sagðist fyrir dómi hafa leitað sér aðstoðar eftir atvikið og farið í meðferð vegna fíknar sinnar bæði á Íslandi og erlendis. Gögn staðfestu frásögn mannsins. Hann væri nú í vinnu erlendis þar sem hann byggi og væri laus við lyfin. Sagðist hann vilja axla ábyrgð á verknaði sínum.

Karlmaðurinn hefur ekki áður hlotið dóm fyrir ofbeldi. Dómurinn leit til ungs aldurs hans og játningar. Þá hefði hann ekki haft neitt upp úr krafsinu við ránið. Þótti sex mánaða fangelsi hæfileg refsing og var hún skilorðsbundin þar sem málið hefði tekið svo langan tíma í meðferð þrátt fyrir að vera hvorki umfangsmikið né flókið.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×