Fótbolti

Utanríkisráðherra Finna rauk úr stúkunni þegar sigurmarkið kom

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Finnar voru afar ósáttir með að mark Ragnars fengi að standa.
Finnar voru afar ósáttir með að mark Ragnars fengi að standa. vísir/anton
Utanríkisráðherra Finna rauk úr stúkunni á Laugardalsvellinum þegar Ragnar Sigurðsson skoraði sigurmark Íslands í leik liðanna í undankeppni HM 2018 í kvöld.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, greindi frá þessu á Facebook eftir leikinn.

Mark Ragnars kom í uppbótartíma og var afar umdeilt en leikmenn og þjálfari finnska liðsins voru langt frá því að vera sáttir Svein Oddvar Moen, dómara leiksins.

Niklas Moisander, fyrirliði Finna, gekk meira að segja svo langt að rífa í hálsmálið á treyju dómarans. Hann fékk aðeins gult spjald fyrir.

Dagur segir svo frá útgöngu utanríkisráðherrans:

„Utanríkisráðherra Finna rauk úr stúkunni án þess að kveðja þegar þriðja markið kom - líklega til að borga í stöðumælinn eða til að rífa í líka aðeins í hálsmálið á dómaranum. Fann meira segja aðeins til með honum, svona eftir á, því líklega öskraði ég helst til hátt þarna fyrir aftan hann. Vona að hann slíti ekki stjórnmálasambandi landanna því Finnar eru frábær þjóð - en svakalega var þetta sætur sigur!“


Tengdar fréttir

Ari Freyr: Við hættum aldrei

"Mér fannst þetta verðskuldaður sigur,“ sagði Ari Freyr Skúlason eftir 3-2 sigur Íslands á Finnlandi í undankeppni Heimsmeistarakeppninnar í Rússlandi 2018 í kvöld.

Lukas Hradecky: Fjárans skandall

Lukas Hradecky markvörður finnska landsliðsins í fótbolta var allt annað en ánægður með sigurmark Íslands á Laugardalsvelli í kvöld.

Í hvaða heimi er þetta ekki rautt spjald? | Myndir

Niklas Moisander, fyrirliði finnska fótboltalandsliðsins, lét skapið hlaupa með sig í gönur eftir að Ragnar Sigurðsson skoraði sigurmark Íslands í uppbótartíma í leik liðanna í undankeppni HM 2018 í kvöld.

Ögmundur: Sigurvegarar í þessu liði

Ögmundur Kristinsson varði mark Íslands í 3-2 sigrinum á Finnlandi í undankeppni Heimsmeistaramótsins í Rússlandi 2018 vegna meiðsla Hannesar Halldórssonar.

Alfreð: Þetta var bara eitthvað rugl

Alfreð Finnbogason, framherji Íslands, var að vonum ánægður með sigurinn í leikslok, en Alfreð jafnaði metin í uppbótartíma eftir fyrirgjöf Gylfa Sigurðssonar.

Ragnar: Tek markið 100% á mig

Ragnar Sigurðsson, varnarmaður Íslands, var himinlifandi með 3-2 sigurinn gegn Finnum í kvöld og segir að sigurmarkið hafi 100% verið hans.

Viðar Örn: Reiknaði með að byrja

Viðar Örn Kjartansson hefur verið duglegur að skora með félagsliðum sínum en bíður eftir tækifæri í byrjunarliði íslenska landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×