Blóðmerahald

Fréttamynd

Rang­færslur fram­kvæmdar­stjóra Ís­teka

Það var áhugavert að horfa og hlusta á framkvæmdastjóra Ísteka í Kastljós þættinum þann 28. febrúar. Í marga mánuði hafði María Sigrún Hilmarsdóttir, fréttakona RÚV reynt án árangurs að ná í yfirmenn Ísteka til að tjá sig um ýmis álitamál í blóðmerabúskapnum.

Skoðun
Fréttamynd

MAST segir á­hrif blóð­töku vera væg

Matvælastofnun barst ekki skýrsla um dauða fjögurra hryssa sem haldið hefur verið fram að rekja megi til reynsluleysis dýralækna við blóðtöku. Erfitt hafi verið fyrir stofnunina að fylgja málinu eftir vegna skorts á sönnunargögnum og vegna þess að umræddir dýralæknar heyrðu undir pólsk dýralæknayfirvöld en ekki íslensk.

Innlent
Fréttamynd

Blóð er ekki mjólk

Framkvæmdastjóri Ísteka sagði í Kastljósi í gær að blóðtaka úr fylfullum hryssum væri ekkert annað en hefðbundinn landbúnaður. Þetta er rangt. Það liggur fyrir í ítarlegri niðurstöðu ESA, heilar 32 blaðsíður af rökstuðningi þess efnis hvers vegna blóðtakan er ekki og getur aldrei talist til landbúnaðar.

Skoðun
Fréttamynd

Opið bréf til ríkis­endur­skoðanda

Fyrst vil ég óska ykkur til hamingju með að vera kosin fyrirmyndarstofnun fimmta árið í röð. Þið vinnið ykkar vinnu sem er traustvekjandi fyrir okkur, hina almennu landsmenn og borgara.

Skoðun
Fréttamynd

Ísteka stefnir ís­lenska ríkinu

Ísteka hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu vegna ákvörðunar matvælaráðherra um að fella alla starfsemi félagsins tengda blóðnytjum úr fylfullum hryssum undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.

Innlent
Fréttamynd

„Í orðsins fyllstu merkingu dýraníð“

Þýsk og svissnesk dýraverndarsamtök segja fylfullar hryssur undir miklu álagi og enn sæta ofbeldi þegar tekið er úr þeim blóð. Inga Sæland hefur lagt fram bann við blómerahaldi í fjórða sinn, en segist vonast til þess að ný reglugerð ESB verði til þess að það verði í síðasta sinn. 

Innlent
Fréttamynd

Fall­ein­kunn mat­væla­ráð­herra og MAST - hluti II - blóð­merar

Matvælaráðherra og Matvælastofnun lágu undir mikilli gagnrýni um margra vikna skeið þá er heimildamynd um dýraníð í blóðmeraiðanðinum var opinberuð af svissnesk-þýsku dýraverndarsamtökunum AWF. Hafið var yfir allan vafa í mínum lögfræðilega skilningi að mörg ákvæði dýravelferðarlaga höfðu verið brotin og refsiákvæði virkjuð.

Skoðun
Fréttamynd

Segjast munu sækja bætur vegna breytinga á reglum um blóðmerahald

Bændasamtökin hafa gert og sent matvælaráðuneytinu formlega athugasemd fyrir hönd þeirra félagsmanna sem stunda blóðmerahald við þá ákvörðun stjórnvalda að fella niður reglugerð um blóðtöku úr fylfullum hryssum og fella starfsemina undir reglugerð um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.

Innlent
Fréttamynd

Reglur um blóð­mera­hald

Undanfarið hafa verið nokkur skoðanaskipti um blóðtöku úr íslenskum hryssum og þær reglur sem sú iðja fellur undir. Af þeim sökum er rétt að halda til haga nokkrum staðreyndum.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar til­gangurinn helgar meðalið

Fyrir skemmstu birtist á vef Matvælaráðuneytisins tilkynning um að ákveðið hafi verið að láta undan kröfum eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og fella úr gildi reglugerð um blóðtöku úr fylfullum hryssum nr. 900/2022 og fella þess í stað starfssemina undir reglugerð nr. 460/2017 um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.

Skoðun
Fréttamynd

Skil­yrðum fyrir blóð­mera­haldi breytt

Reglu­gerð sem gilt hefur síðan í fyrra um blóð­mera­hald verður felld úr gildi og verður starf­semin felld undir reglu­gerð um vernd dýra sem notuð eru í vísinda­skyni. Þetta kemur fram í til­kynningu frá Mat­væla­ráðu­neytinu.

Innlent
Fréttamynd

Um blóðtökur úr fylfullum hryssum

Blóðtökur úr fylfullum hryssum hafa verið stundaðar á Íslandi um áratuga skeið. Tilgangur iðnaðarins er að framleiða hormónið PMSG sem notað er í kjötiðnaði erlendis til að auka frjósemi dýra umfram það sem náttúrulegt er.

Skoðun
Fréttamynd

Hryssa hafi verið stungin á barka og margar drepist

Í yfirlýsingu Dýraverndarsambands Íslands segir að því hafi borist áreiðanlegar upplýsingar um að mun fleiri hryssur en átta hafi drepist í tengslum við blóðtöku í fyrra. Á að minnsta kosti tíu bæjum hafi ein hryssa eða fleiri drepist í tengslum við blóðtöku og á einum af þessum bæjum fjórar hryssur.

Innlent
Fréttamynd

Álit ESA og blóðmerahald

Í vor sem leið birti ESA, Eftirlitsstofnun með samningnum um EES, álit sitt varðandi blóðmeraiðnað á Íslandi. Spurningin sem lögð var fyrir stofnunina var hvort vinnsla PMSG hormóns úr blóði fylfullra mera félli undir gildissvið reglugerðar 460/2017, sem er innleiðing á Evróputilskipun 2010/63, um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.

Skoðun
Fréttamynd

Á­fellis­dómur ESA og blóð­merar

Með áliti sínu þann 10. maí 2023 hefur Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) komist að þeirri niðurstöðu að blóðtaka úr merum og eftirfarandi vinnsla PMSG hormóns falli undir reglur um notkun dýra í tilraunaskyni sem tíundaðar eru í rg. 460/2017.

Skoðun
Fréttamynd

ESA segir reglur um vernd dýra brotnar með blóðmerahaldi

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) segir Íslendinga brjóta gegn reglum EES um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni með blóðmerahaldi. Stofnunin sendi formlegt áminningarbréf til Íslands í dag þar sem kallað er eftir því að reglunum verði fylgt.

Innlent
Fréttamynd

Rangfærslur Ísteka

Í Reykjavík síðdegis þann 17.11.2022 var tekið viðtal við Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóra Ísteka, um blóðmerahald fyrirtækisins. Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) vilja koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við málflutning framkvæmdastjórans.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Ís­teka starfa í skugganum með græðgina að leiðar­ljósi

„Það eru þarna jákvæð atriði, eins og að blóðtökuhryssum hefur fækkað og það eru færri bændur og dýralæknar sem vilja taka þátt í þessu. Og það er auðvitað merki um að barátta okkar hefur skilað sér til fólksins og að fólk sé almennt upplýstara um þetta.“

Innlent
Fréttamynd

Flestir umsagnaraðilar fylgjandi banni við blóðmerahaldi

Fimmtán umsagnir bárust um endurflutt frumvarp Ingu Sæland um bann við blóðmerahaldi en umsagnarfresturinn rann út í gær. Langflestir sem sendu inn umsögn eru fylgjandi banninu og fordæma meðferð hrossanna, meðal annars hversu mikið blóð sé tekið á skömmum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Blóð tekið úr 4.141 hryssu á 90 starfsstöðvum

Tekið var blóð úr 4.141 hryssu til framleiðslu eCG/PMSG hórmónsins í ár en heildarfjöldi blóðtökuhryssna í stóðum bænda var 4.779. Tekið var blóð í um 24 þúsund skipti alls, á 90 starfsstöðvum. Í fyrra voru starfsstöðvarnar 120.

Innlent
Fréttamynd

Meintar rann­sóknir blóð­mera­halds ekki til

Samkvæmt nýlegri reglugerð matvælaráðherra um blóðtöku úr fylfullum hryssum er áfram leyfilegt að taka 40 lítra af blóði úr hryssu yfir tveggja mánaða tímabil. Reglugerðin breytti engu um aðstæður hryssanna, byggir á takmörkuðum gögnum hagsmunaaðila og ekki er farið fram á ítarlegar rannsóknir á heilsu blóðtökuhryssa.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað drepast margar merar ár­lega vegna blóð­mera­halds?

Mikil andstaða er um blóðmerahald á Íslandi í kjölfar myndbirtinga alþjóðlegra dýraverndunarsamtaka á síðasta ári. Meðal þess sem gerst hefur í framhaldi af þessari myndbirtingu er að lagt hefur verið fram frumvarp um bann við blóðmerahaldi.

Skoðun