ATP í Keflavík

Fréttamynd

Fullur og frábær Mark

Goðsögnin Mark E. Smith hafði fengið sér aðeins neðan í því áður en hann steig á svið með síðpönksveitinni The Fall á All Tomorrow's Parties.

Gagnrýni
Fréttamynd

Feiknargóð stemning á ATP

Stemningin á tónlistarhátíðinni All Tomorrows Parties þótti mjög góð, en Nick Cave tróð meðal annars upp fyrir áhorfendur.

Innlent
Fréttamynd

Lífið snýst eiginlega allt um tónlist

Tónlistarhátíðin All Tomorrow´'s Parties hófst í Keflavík í gærkvöldi og heldur áfram í kvöld. Tómas Young, skipuleggjandi hátíðarinnar, er algjörlega í essinu sínu. Hann hefur aldrei langað til að starfa við annað en tónlist.

Tónlist
Fréttamynd

Tilda Swinton mætir á All Tomorrow's Parties

Leikkonan Tilda Swinton óskaði eftir því að fá að taka þátt í tónlistarhátíðinni All Tomorrow's Parties sem fram fer í Keflavík. Hún stýrir kvikmyndasýningu í tengslum við hátíðina.

Lífið
Fréttamynd

Eftirminnilegustu tónleikarnir með Múm

"Ég spilaði á einum eftirminnilegustu tónleikum ferils míns með Múm á Ítalíu. Þau eru alveg yndisleg. Nú er ég orðinn virkilega spenntur fyrir hátíðinni,“ segir tónlistarmaðurinn Warren Ellis þegar blaðamaður Fréttablaðsins hefur lokið við að telja upp nöfn þeirra íslensku hljómsveita sem koma fram á tónlistarhátíðinni All Tomorrow's Parties í júní. Sjálfur stígur Ellis á svið á laugardagskvöldinu ásamt Nick Cave og The Bad Seeds. Ellis er mikill aðdáandi All Tomorrow's Parties og segir hátíðina einstaka fyrir þær sakir að þar gefst gestum og tónlistarfólki færi á að eiga í nánum samskiptum.

Lífið
Fréttamynd

Gestir fylla tvær íbúðarblokkir

"Tónlistarfólkið verður um hundrað talsins og það gistir á gamla herhótelinu sem heitir nú Bed and Breakfast Keflavík. Svo eru um tvö hundruð gistipláss í boði fyrir gesti. "Íbúum“ svæðisins fjölgar því um þrjú hundruð manns þessa helgi,“ segir Tómas Young, sem skipuleggur tónlistarhátíðina All Tomorrow"s Parties. Hátíðin fer fram á Ásbrú í Keflavík helgina 28. til 29. júní.

Lífið
Fréttamynd

Selja miða án staðfestra sveita

Breska tónlistarhátíðin All Tomorrow"s Parties verður haldin á Íslandi helgina 28. til 29. júní á gömlu herstöðinni Ásbrú. Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að samningar væru við það að nást um að halda hátíðina.

Lífið
Fréttamynd

Íslandsvinir stýra hátíð

Meðlimir hljómsveitarinnar Belle & Sebastian munu stjórna tónlistarhátíðinni All Tomorrow‘s Parties í desember næstkomandi. Hátíðin stendur frá 10.-12. desember í Minehead á sunnanverðu Englandi. Meðlimir Belle & Sebastian munu velja um 40 hljómsveitir sem koma fram á hátíðinni.

Lífið