Saga Garðarsdóttir

Fréttamynd

Hvað er svona merkilegt við það?

Er ekki fáránlegt að finnast það merkilegt að einhver sé femínisti? Er merkilegt að líta ekki niður á helming jarðarbúa? Er ekki frekar merkilegt að það þurfi að taka það fram að maður sé femínisti? Nú mega lífsleiðir gera sér það til gamans að hártogast út í merkingu orðsins en þú þarft að vera ansi mikill asni til að halda því fram að jafnrétti kynja sé endanlega náð. Og enn meiri asni ef þú vilt ekki breyta því.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ástarbréf til heimsins

Allar Önnur í Afríku, Malíkar Grænlands, Litháar, kaffidrekkandi Kínverjar, Svíar sem flokka ekki rusl, gagnkynhneigðir skautadansarar, ófullnægðar unglingsstelpur, graðir búddistar, glaðir Samar, Indverjar í ástarsorg, Finnar í Hlíðunum, konan sem seldi mér ilmvatn á Rue du Borg Tibourg, strákarnir sem rændu mig í sumar, lögfræðingurinn minn,

Bakþankar
Fréttamynd

Kynjamyndir í musteri menningar

Ég starfa um þessar mundir í menningarstofnun í eigu þjóðarinnar, Þjóðleikhúsinu. Þangað koma um 111.000 þúsund manns árlega. Áhrif leikhúss eru meiri en rúmast í einni leiksýningu því umhverfið allt er heillandi og áhugavert. Í leikhúsinu eru margar myndir; gömul málverk og ljósmyndir af leikhússtjórum eða leikurum, en einnig höggmyndir með sömu mótíf. Konur eru í meirihluta leikhúsgesta og meðal þeirra eru ungar stelpur með ómótaða sjálfsmynd og hetjudrauma.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gleðileg jól, Sigmundur Davíð

Ég veit hvað þú ert að hugsa: ,,Nei, nei, ekki um jólin!”. En engar áhyggjur, ég er ekki að skrifa þér til að þrefa og þessu korti fylgir engin krafa um svör.

Bakþankar
Fréttamynd

Spinning kl. 20:13

Hógværð er dyggð og allt það en ég er mjög góð í íþróttum. Svo góð að ef heiðursnafnbótin íþróttamaður ársins væri ekki fyrir asnaskap takmörkuð við atvinnufólk væri ég búin að hirða hana nokkur ár í röð.

Bakþankar
Fréttamynd

Bréf sem getur dimmu í dagsljós breytt

Amnesty International stendur á aðventunni fyrir bréfamaraþoni. Þá getur þú sent ráðamönnum um allan heim bréf til að þrýsta á um að þeir virði mannréttindi. Eitt þeirra mála sem þú getur lagt lið varðar þrítuga mexíkóska konu, Miriam Isaura López Vargas.

Skoðun
Fréttamynd

Mary Poppins í partýlandi

Það eru allir svo hressir. Í blöðunum segir mér hresst fólk hvað það borðar hressandi morgunmat og í útvarpinu malar hresst fólk í endalausri útöndun um hvað það sé hresst og hvað það sé hressandi að vera hress og les hressandi fréttir í blöðunum um hvað hressa fólkið fær sér í morgunmat. Það er mjög hressandi.

Skoðun
Fréttamynd

Bless, Sigmundur Davíð

Ég slæ þér þetta bréf með báðum höndum til að ljúka því sem aldrei varð. Ég hef ekki gefið upp öndina en ég hef gefist upp á þér. Sá illi grunur læðist að mér að seinagangi póstþjónustunnar sé ekki um að kenna að ég hef ekki fengið frá þér svar heldur hafir þú tekið meðvitaða ákvörðun um að leiða mig hjá þér.

Bakþankar
Fréttamynd

Jæja Sigmundur Davíð

Ég birti þér bréf fyrir tveimur vikum og enn hefur mér ekki borist svar. Ég veit ekki hversu duglegir aðstoðarmenn þínir eru að sýna þér Fréttablaðið eða faxa það allar þessar sjómílur í snekkjuna þína í Karabíska hafinu, eða hvort nóg sé af blöðum í faxtækinu til að prenta

Bakþankar
Fréttamynd

Kæri Sigmundur Davíð

Ég þekki þig ekki persónulega en tilgangur þessa bréfs er einmitt að breyta þeirri leiðu staðreynd. Ég kem mér bara beint að efninu: Viltu vera opinber pennavinur minn næstu fjögur árin?

Bakþankar
Fréttamynd

Óður til móður

Enginn er fær um að vekja upp jafn sterkar tilfinningar á jafn breiðu sviði og móðir mín. Henni tekst með, að því er virðist, léttvægum athugasemdum að breyta annars ágætis eftirmiðdegi í helgistund uppsafnaðs pirrings og óþols, þar sem ég engist ósjálfrátt um í botnlausu gremjukasti við altari hinnar alvitru móður.

Bakþankar
Fréttamynd

Þú gerir lítið dáinn

Hvort viltu geta farið á spítalann eða í Þjóðleikhúsið? Ef þú þarft að velja. Þú þarft að velja. Hvort viltu keyra fjórum sinnum í gegnum jarðgöng á ári eða að barn á Suðureyri fái gangráð?

Bakþankar
Fréttamynd

Strákasaga

Þegar ég var fimm ára ansaði ég engu öðru nafni en Emil, gekk um með pottlok og blótaði yfirvaldinu fyrir að gera mig ekki að strák.

Bakþankar
Fréttamynd

Ég var rænd!

Til allrar hamingju búum við í samfélagi þar sem okkur mun aldrei skorta tilefni til að hræðast. Sérstaklega ef við ákveðum að gera eitthvað sem í fyrstu gæti virst skemmtilegt

Bakþankar
Fréttamynd

Árshátíð þvermóðskunnar

Kæru velunnarar þrjóskunnar, senn líður að árshátíð okkar. Tilgangur þessa fréttabréfs er að minna ykkur á að allt verður samkvæmt hefðunum. Þessi orð eru nákvæmlega þau sömu og þið lásuð í fyrra og ekkert ætti að koma ykkur á óvart.

Bakþankar
Fréttamynd

Vill einhver elska 49 ára gamla konu?

Það er margt sem ég óttast í lífinu. Ég óttast stöðugt að fá raflost nálægt innstungum og brauðristum, ég held mig fjarri fólki sem spyr mig til vegar, ég hef áhyggjur af því að pabbi minn komist að því að ég sprengdi dekkið á hjólinu hans, aftur, og svo óttast ég að verða miðaldra kona.

Bakþankar
Fréttamynd

Þroskaheft femínista- hlussa gekk inn á bar…

Tjáningarfrelsi er töff og ég vil hafa rétt á því að segja hvað sem mér sýnist hvenær sem mér sýnist en ég er líka meðvituð um að það sem ég segi hefur áhrif og því fylgir ábyrgð. Á sama tíma og ég hef rétt á að segja hvað sem er hefur þú rétt á að móðgast.

Bakþankar
Fréttamynd

Mitt Ísland og hitt Ísland

Þegar þessi pistill er skrifaður eiga kosningar til Alþingis 2013 eftir að fara fram. Þegar þú hins vegar lest þessi orð eru þær afstaðnar og ný ríkistjórn yfirvofandi.

Bakþankar
Fréttamynd

Helvítis auma Scrabble

Nú eru mörg spil ömurleg, eins og Backgammon og Popppunktur, en ekkert spil er jafn ömurlegt og þú! Af hverju ertu bara með eitt P? Það eru mörg góð íslensk orð með fleiri en eitt P eins og til dæmis PRUMP og POPP en orðið prump ætti að liggja til grundvallar í öllum orðaspilum. Það er að segja ef þau eiga að vera skemmtileg, sem þú ert augljóslega ekki.

Bakþankar
Fréttamynd

Að verða illt í auðmýktinni

Fyrir nokkru fór ég á fund í Valhöll um stöðu femínisma á Íslandi. Ég hafði aldrei komið í Valhöll áður og aldrei, eflaust út af einhverri verndandi töfraþulu, hitt Brynjar Níelsson, einn framsögumanna.

Bakþankar