Undir smásjánni

Fréttamynd

Hvað varð um galdrakarlana í Oz?

Fyrir tæpum tuttugu árum var íslensk upplýsingatækni enn í bleyju. Þeir sem vildu skera sig úr burðuðust stoltir um með nokkurra kílóa fokdýran farsímahlunk og þeir framsýnustu lumuðu á upphringimótöldum sem gerðu þeim kleift að tengjast háskólanetum á nokkrum mínútum. Þar var þó lítið að gera nema fyrir innvígða.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslensk fyrirtæki í öndunarvél

„Allir eru að bíða. Bankakerfið ýtir á undan sér stórum ákvörðunum sem vinda endalaust upp á sig. En enginn tekur ákvörðun um það sem þarf að gera," segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Atvinnulífið í öndunarvél

Íslenskt atvinnulíf er í öndunarvél á gjörgæsludeild á meðan uppgjöri gömlu og nýju bankanna er ólokið. Þetta segir Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP, sem Viðskiptablaðið útnefndi á dögunum stjórnarformann ársins.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gömlu bankarnir hrynja í áliti

Fjármálageirinn hefur borið mikinn hnekki í huga fólks samkvæmt árvissri ímyndarmælingu markaðsrannsókna- og ráðgjafarfyrirtækisins Fortuna. Ef til vill þarf ekki að koma á óvart að þar sé í huga fólks hæst fall stóru bankanna þriggja, sem nú eru í eigu ríkisins. Sparisjóðirnir hafa hins vegar bætt ímynd sína nokkuð milli ára, bæði hvað varðar hvaða kost fólk myndi fyrstan velja í bankaþjónustu og eins hvað traust varðar og trú á því að fyrirtækin verði starfandi um ókomna tíð. Þarna hefur líka fall gömlu bankanna verið mest.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Mikilvægast að hlúa að litlu fyrirtækjunum

„Þegar erfiðleikar líkir þeim sem nú steðja að í íslensku efnahagslífi blasa við, þá eykst hvatinn til að stofna ný, lítil fyrirtæki. Það er líklegt að slíkum fyrirtækjum muni fjölga mjög á næstunni,“ segir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skuggabankastjórn vill framtíðarsýn

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ætti að lækka stýrivexti bankans um þrjú prósentustig á vaxtaákvörðunardegi sínum á morgun, samkvæmt einróma áliti skuggabankastjórnar Markaðarins. Aukinheldur ætti að tilkynna um fyrirhugaða þriggja prósentustiga vaxtalækkun til viðbótar þegar í júníbyrjun.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Neikvæðir hagvísar

Vísbendingar eru um viðvarandi samdrátt hjá sjö stærstu aðildarríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), samkvæmt mati sem birt var á föstudag.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Atvinnuleysi eykst

Atvinnuleysi mældist 6,9 prósent í janúar innan þeirra 30 ríkja sem aðild eiga að Efnahags- og framfarastofnuninni (OECD), samkvæmt tölum sem birtar voru í vikunni. Þetta er 8,3 prósenta aukning á milli mánaða en 1,3 prósent frá sama tíma í fyrra. Af einstökum hagsvæðum mældist atvinnuleysi 8,3 prósent á evrusvæðinu en 8,1 prósent í Bandaríkjunum. Aukningin er innan allra aðildarríkjanna að Japan og Mexíkó undanskildum en þar dróst atvinnuleysi saman um 4,3 til 4,6 prósent milli mánaða. Mesta atvinnuleysið var á Spáni, eða 14,8 prósent.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Dökkar horfur í efnahagsmálum

„Við erum í svolítið skrítinni stöðu. Við héldum í byrjun árs að búið væri að grípa til aðgerða sem dygðu til að koma fjármálageiranum fyrir horn. Nú er ljóst að svo var ekki,“ segir Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, um horfur í efnahagsmálum á heimsvísu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eignamat gömlu bankanna næsta marklaust

Samanburður á verðmati gömlu bankanna er óraunhæfur. Skilanefnd Kaupþings, sem var stærsti banki landsins fyrir hrunið í fyrra, miðar eignastöðuna við nóvember í fyrra. Hinir bankarnir setja verðmiða á eignir sínar þrjú til sjö ár fram í tímann.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ár rekstrarmanna runnið upp

Stjórnendur fyrirtækja fóru alltof geyst áfram á síðustu árum og keyptu fyrirtæki allt of dýru verði. EBITDA var galdraorðið og menn kepptumst um að kaupa inn EBITDU.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Árangurslítill fundur í Alpabænum

Fimm daga ársfundi Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum) í Alpabænum Davos í Sviss lauk á sunnudag. Fundurinn var með rólegra móti en fyrri ár og eru menn nokkuð sammála um að yfirskrift hans hafi ekki verið í neinu samræmi við innihaldið. Hún var: Uppbygging í kjölfar kreppu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Álveislunni lokið

Rússneski olígarkinn Oleg Deripaska, ríkasti maður landsins, sem jafnframt er forstjóri og stærsti hluthafi álrisans Rusal, sagði á ársfundinum um helgina uppsveiflu í álgeiranum lokið í bili.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Skoðanakannanir á óþekktu landsvæði

Upphafsstafur:Landsmenn hafa aldrei verið svartsýnni um horfur í efnahags- og atvinnumálum en á þessu ári og ber almenningur lítið traust til stjórnvalda og opinberra stofnana. Þá eru hlutfallslega fleiri landsmenn fylgjandi byggingu álvera hér á landi en áður en talið er að þau geti lyft efnahagslífinu til betri vegar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Félagsleg lán eru ekki rót vandans

Bandarísku fasteignalánasjóðirnir Fannie Mae og Freddie Mac hafa verið í brennipunkti fjármálakreppunnar. Spurningar hafa vaknað um ábyrgð þeirra á hruninu. Einnig hefur verið horft til laga sem skylduðu banka til að veita minnihlutahópum fasteignalán.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Alþingi samþykkti upprunalega áætlun um Icesave

Alþingi samþykkti á föstudag þingsályktun sem heimilar ríkisstjórninni að ganga til samninga um Icesave málið. Forsenda þeirra viðræðna er að Íslendingar ábyrgist innistæður á reikningum upp að 20.887 evrum á hvern reikning. Málið tengist náið efnahagsaðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og ýmsum þjóðum. En sem kunnugt er fékkst sú aðstoð ekki fyrr en Icesave málinu var landað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hluthafar geta borið ábyrgð umfram hlutafé

„Grundvallarregla hlutafélagalaganna er að hluthafar beri ekki ábyrgð á skuldbindingum félagsins. Ef félag verður gjaldþrota, þá geta kröfuhafar eingöngu leitað fullnustu í eigum félagsins. En í algjörum undantekningartilvikum, þá getur ábyrgð náð til hluthafa,“ segir Áslaug Björgvinsdóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Hún flutti erindi um hluthafaábyrgð í háskólanum í gær. Þar fór hún meðal annars yfir tilvik og dóma þar sem hluthafar voru taldir bera ríkari ábyrgð en sem nemur meginreglu hlutafélaga­laganna. Þetta á við í einkamálarétti, gagnvart kröfuhöfum við gjaldþrot hlutafélaga. Í þessu felst að sá sem á kröfu á hlutafélag getur átt á hættu að fá ekki kröfu greidda, verði félag gjaldþrota.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hundruð milljarða lán í þagnargildi

Seðlabankastjóri, dómsmálaráðherra og formaður viðskiptanefndar Alþingis telja að bankaleynd eigi ekki við vegna gömlu bankanna. Útlán gömlu bankanna til eigenda sinna námu hundruðum milljarða króna. Ingimar Karl Helgason spurðist fyrir um málið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Einfaldur meirihluti dugir

Tuttugu og fjórir fulltrúar sitja í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins IMF). Þeir eru ýmist fulltrúar einstakra ríkja eða hópa ríkja. Atkvæði hvers um sig hefur mismikið vægi. Bandaríkjamenn ráða langmestu um afdrif umsókna, en í tilviki Íslands ræður einfaldur meirihluti hvort umsókn verður samþykkt eða felld.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fleiri leiðir kunna að vera til

„Í tillögum mínum er ekki gert ráð fyrir aðstoð sjóðsins. Fyrstu tveir liðirnir eru beinlínis í andstöðu við þær ráðstafanir sem þegar hafa verið kynntar á grundvelli áætlunar sjóðsins," segir Lilja Mósesdóttir hagfræðingur. Hún hefur lagt til áætlun í sjö liðum, meðal annars til að vekja athygli á því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leiði Íslendinga til að fara aðrar leiðir til að kljást við alþjóðlegu fjármálakreppuna en mörg önnur ríki geri, til að mynda Bandaríkjamenn og margar Evrópuþjóðir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Óbreyttir vextir á óvissutíma

Hluti af því að endurvekja traust á hagstjórn landsins er að bankastjórn Seðlabanka Íslands víki. Þetta er samdóma álit skuggabankastjórnar Markaðarins, en hana skipa Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, Edda Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Af sprotum sprettur ný framtíð

„Það er fullt af tækifærum," segir dr. Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks, nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins. Hann mælir með því að fólk hætti að horfa til fortíðar, brjóti baksýnisspegilinn og gefi í fram á veg. Hann segir ekkert að óttast.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þekking fjármálafólksins virkjuð

„Bankarnir tóku allt besta fólkið. Nú verðum við að virkja þá sem missa vinnuna og koma í veg fyrir að það fari úr landi,“ segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi.

Viðskipti innlent