Málefni trans fólks

Fréttamynd

„Karl­menn eru tölu­vert betri í skák“

Forseti Skáksambands Íslands segist ekki sammála ákvörðun Alþjóðaskáksambandsins um að banna trans konum að keppa í kvennaflokki á mótum á vegum sambandsins. Hann segir alþjóðasambandið óttast vandamál sem aldrei hefur komið upp. Þá sé keppt í kvennaflokki þar sem karlar séu betri í skák. 

Innlent
Fréttamynd

Mig langar ekki að vera sís

Hæ, ég heiti Alexander og ég er trans maður. Fyrir þau sem þurfa frekari útskýringu þá þýðir það að ég fékk úthlutað kvenkyni við fæðingu, allir héldu að ég væri stelpa og seinna, kona, þangað til að ég sagði þeim að ég væri í raun karlmaður.

Skoðun
Fréttamynd

Eignaðist ungan kynja­­könnuð: „Það ert þú sem ert ekki að skilja að ég er stelpa“

Rithöfundurinn og baráttukonan Þórdís Elva Þorvaldsdóttir hefur komið víða við. Samhliða því að gefa út bækur tengdu kynjajafnrétti braut hún blað í veraldarsögunni þegar þolandi og gerandi tóku höndum saman og fjölluðu um kynferðisofbeldi. Hún eignaðist tvíbura eftir tvísýna meðgöngu árið 2018 og hefur fjallað opinskátt á samfélagsmiðlum um hvernig fjölskyldan hefur hlúð að ódæmigerðri kyntjáningu Hlyns, annars tvíburanna.

Lífið
Fréttamynd

Stolt út um allt!

Þessa vikuna fögnum við fjölbreytileikanum í allri sinni dýrð og dásemd með Hinsegin dögum. Á þessum tíma árs nýti ég tækifærið og þakka fyrir frelsið og viðurkenninguna sem íslenskt samfélag hefur veitt mér sem lesbíu og öðru hinsegin fólki.

Skoðun
Fréttamynd

Baráttufólk lætur engan bilbug á sér finna

Hinsegin dagar eru handan við hornið með stútfullri dagskrá. Baráttufólk lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir skemmdarverk háværs minnihluta sem virðast tíðari á þessum árstíma.

Innlent
Fréttamynd

Er ég, virkilega, allt sem þú hatar? Kynvitund, kynhneigð og klám

Til hvers að skrifa? Til hvers að opna glugga inn í mína tilvist, fortíð og nútið? Til hvers að berjast við vindmyllur hatursins sem mörg ykkar segja að séu ekki alvöru, bara ímyndun á sama tíma og þið viðurkennið ekki tilvist mína?! Vegna þess að þið viðurkennið ekki tilvist mína. Vegna þess að þið viljið skerða mannréttindi mín enn frekar en nú er, þrátt fyrir að ég búi ekki við sömu lagaleg og samfélagsleg réttindi og þið. Vegna þess að það er ennþá, við og þið, í stað okkar.

Skoðun
Fréttamynd

Gos, gaslýsingar og geðveiki!

Það hefur varla farið framhjá neinum að enn eitt eldgosið er hafið á Reykjanesi og það má vissulega segja að við erum öll orðin vel sjóuð í eldgosafræðum, þar sem hin þrjú stig gossins eru rætt í þaula. Fyrsta stig, kvikusöfnun, oft nefnt kvikuinnskot sem veldur þrýstingi sem veldur stigi tvö sem eru jarðskjálftar og að lokum þriðja stig sem er gosið sjálft.

Skoðun
Fréttamynd

Gagnrýna Rúv fyrir að ala á sundrungu

Fjöldi fólks í Samtökunum '78 hafa gagnrýnt fréttaflutning Rúv um nýyrðasamkeppni samtakanna. Rúv hafi einblínt á neikvæð ummæli fólks úti í bæ frekar en að ræða við sérfræðinga. Þannig hafi þau alið á frekari misskilningi um málið. Viðmælandi Rúv segir að meginatriðin í viðtali við hana hafi ekki endurspeglast í endanlegri frétt.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur Íslands segir kynmisræmi sjúkdóm

Kynmisræmi er sjúkdómur samkvæmt dómi Hæstaréttar Íslands frá 28. júní 2023, sem sneri við dómi Landsréttar frá 4. nóvember 2022. Þar komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að kynmisræmi sé ekki sjúkdómur, meðal annars á grundvelli laga um kynrænt sjálfræði, og fjarvistir frá vinnu vegna tengdra læknisaðgerða því ekki greiðsluskyldar af hálfu atvinnurekanda.

Skoðun
Fréttamynd

Haturs­full um­mæli um regn­boga­stíginn vekja at­hygli

Íslenskum Twitter notendum hefur eflaust brugðið í brún þegar danskur læknir með nær fimmhundruð þúsund fylgjendur lét þau ummæli falla á forritinu á dögunum að regnbogaskreytingar sem prýða götur Íslands séu „gjörsamlega ógeðslegar“.

Innlent
Fréttamynd

Ofur­við­kvæm Ó­höpp náttúrunnar eða Englar al­heimsins?!

Í bók Einars Már Guðmundssonar, Englar alheimsins, kemur fram þessi gullna setning: „Kleppur er víða“ og er þá átt við, að það fólk sem ber gæfu til að leita sér hjálpar er ekki eina fólkið sem þjáist af einhvers konar geðveiki, öll erum við á einn hátt eða annan í raun geðveik, í baráttu við lífs tráma sem oft á tíðum er ekki og hefur ekki verið meðhöndlað, búandi í þjóðfélagi sem endurspeglar allt þetta tráma og er því fársjúkt sjálft.

Skoðun
Fréttamynd

Hættu­leg orð­ræða

Orð hafa áhrif. Við vitum þetta öll, en engu að síður er umræðan um það hvað er í lagi að segja - og hvað ekki - mjög skautuð og erfið. Undanfarið hefur verið fjallað um það hvort réttlætanlegt sé að búa til sérstaka aðgerðaráætlun til þess að taka á hatursorðræðu og fræða um hana víða innan stjórnkerfisins og meðal almennings.

Skoðun
Fréttamynd

Þau dul­búa hatur sitt sem á­hyggjur af vel­ferð barna

Í hinsegin samfélaginu deilum við sameiginlegri sögu baráttu og sigurs, sem er vitnisburður um seiglu okkar gegn misskilningi og hatri. Það er mikilvægt að muna að fræ fordóma spíra oft innan innstu hringa áður en þau dreifa sér út á við.

Skoðun
Fréttamynd

Opið bréf til feminískra og sam­kyn­hneigðra and­stæðinga trans fólks

Það var að komast í gegn frumvarp í Flórída sem leyfir yfirvöldum að taka börn af foreldrum sínum ef grunur leikur á að þau hafi fengið kynleiðréttandi meðferðir eða að þau muni mögulega verða útsett fyrir þeim í framtíðinni. Frumvarpið er orðað á óskýran hátt og eru ýmis atriði sem hægt er að túlka á ýmsa vegu eftir hentisemi.

Skoðun
Fréttamynd

Þegar tjáning eins verður að þjáningu annars

Maí er mánuður tileinkaður geðheilbrigði og geðheilbrigðismálum, þar sem við eigum að huga að okkar eigin geðheilbrigði og annarra. „Aðgát skal höfð í nærveru sálar“, segir máltækið, þó oft er það því miður mistúlkað og misnotað, þá þýðir það einfaldlega að koma vel fram við aðra og huga að þeirra tilfinningalegu vellíðan, að valda ekki andlegum sársauka.

Skoðun
Fréttamynd

Um tjáningarfrelsi kennara

Fyrir aðeins 15 árum var það almenn skoðun meðal Íslendinga að kynin væru tvö, karl og kona. Svo voru til frávik.

Skoðun
Fréttamynd

Aftur um heil­brigðis­þjónustu trans barna og ung­menna

Fyrir sléttri viku skrifaði borgarfulltrúi í Reykjavík pistil um heilbrigðisþjónustu trans barna og ungmenna. Þar viðraði hann áhyggjur sínar af tjáningarfrelsinu í tengslum við málaflokkinn og dró í efa að eftirfarandi fullyrðing mín og meðhöfundar í grein í Morgunblaðinu 18. apríl sl. ætti við rök að styðjast.

Skoðun
Fréttamynd

Lög­gjafinn í Kansas sam­þykkir víð­tækt salernis-bann

Löggjafinn í Kansas hefur samþykkt lög sem banna trans fólki að nota það salerni sem samræmist kynvitund þeirra. Um er að ræða eina mest takmarkandi löggjöfina af þessu tagi í Bandaríkjunum, þar sem hún nær ekki aðeins til salerna í skólum.

Erlent