Mannréttindadómstóll Evrópu
1 2 3 … 3 ›
Ögurstund í máli Julian Assange Hæstiréttur í Lundúnum tekur fyrir í dag og á morgun síðustu áfrýjun Julian Assange, eins stofnanda Wikileaks, um framsal til Bandaríkjanna. Þar á hann yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann fundinn sekur um brot á njósnalagalöggjöf landsins. Erlent 20.2.2024 11:46
Heift milli stjörnulögmanna brýst upp á yfirborðið Svo virðist sem stríð hafi brotist út milli lögmanna á samfélagsmiðlum og víðar. Eigast þar við Brynjar Níelsson annars vegar og hins vegar Vilhjálmur H. Vilhjálmsson auk þess sem Sveinn Andri Sveinsson blandast í slaginn. Innlent 1.2.2024 11:01
Mannréttindadómstóllinn vísar máli Hussein frá Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lýst kæru íranska hælisleitandans Hussein Hussein og fjölskyldu hans ótæka til efnismeðferðar og vísað henni frá. Einnig hefur dómstóllinn ákveðið að aflétta bráðabirgðastöðvun á flutningi Hussein frá Íslandi til Grikklands. Innlent 19.1.2024 17:29
Hussein yfirgaf Ísland ásamt fjölskyldu sinni Hælisleitandinn Hussein Hussein, sem er í hjólastól, ákvað á síðustu stundu að yfirgefa Ísland og fór með fjölskyldu sinni til Grikklands í gær. Fjölskylduvinur segir að Hussein hafi ekki getað hugsað sér að dvelja hér án fjölskyldu sinnar, sem vísað var úr landi. Aðstæður séu ömurlegar hjá þeim úti. Innlent 3.12.2023 11:59
Mannréttindadómstóllinn frestar brottflutningi Husseins og fjölskyldu Mannréttindadómstóll Evrópu kvað í dag upp úrskurð þess efnis að ekki mætti vísa Hussein Hussein og fjölskyldu af landi brott fyrr en í fyrsta lagi 21. nóvember næstkomandi. Innlent 31.10.2023 18:17
Unga fólkið gegn 32 ríkjum vegna loftslagsmála tekið fyrir hjá MDE Ellefu ára stúlka frá Portúgal er meðal sex ungmenna sem hafa höfðað mál gegn 32 ríkjum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Ungmennin segja ríkin hafa brotið gegn mannréttindum sínum með því að grípa ekki til aðgerða gegn loftslagsvánni. Erlent 27.9.2023 10:50
Caster Semenya vann mál fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu Suðurafríska hlaupakonan Caster Semenya vann mál fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu sem varðar reglur um magn testósteróns hjá frjálsíþróttafólki. Þó lítur ekki út fyrir að hún keppi á Ólympíuleikunum í París á næsta ári. Sport 11.7.2023 15:00
Oddný Mjöll verður dómari við MDE eftir langa fæðingu Þing Evrópuráðsins kaus í dag Oddnýju Mjöll Arnardóttur dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Oddný Mjöll var ein af þremur sem tilnefnd voru sem dómaraefni af hálfu íslenskra stjórnvalda. Oddný tekur við af Róberti Spanó sem hefur verið fulltrúi Íslands hjá dómstólnum frá 2013. Innlent 24.1.2023 15:07
Geir segir galið að hafa verið gerður að glæpamanni Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að sér þyki vænt um það að menn hafi viljað biðja sig afsökunar á því að hafa átt þátt í að draga sig fyrir Landsdóm. Það hafi hins vegar lítið gildi nema það sé gert opinberlega. Innlent 20.12.2022 08:01
Íslenska ríkið hafi gert rétt að svipta foreldra forsjá barna sinna Íslenska ríkið braut ekki á mannréttindum foreldra á Íslandi með því að svipta þau forsjá barna sinna. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu sem kvað upp dóm sinn í morgun. Dómurinn telur íslenska ríkið hafa haft hagsmuni barnanna að leiðarljósi í aðgerðum sínum. Innlent 15.11.2022 10:56
Málskostnaður og vextir sem falla á ríkið metið á um 70 milljónir króna Gestur Jónasson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar fjárfestis, hefur ritað grein sem hann birtir á Vísi þar sem hann segist vona að aldrei muni það gerast aftur að einstaklingur þurfi að standa í svo langvinnum málarekstri. Orð hans má túlka sem harða gagnrýni á ákæru- og dómsvaldið. Innlent 10.11.2022 14:58
Sakargiftum á hendur Jóni Ásgeiri og Tryggva vísað frá að hluta Hæstiréttur vísaði hluta af meiriháttar skattamáli á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni frá héraðsdómi þegar málið var tekið upp aftur í dag. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að brotið hefði verið á réttindum þeirra við upphaflega meðferð málsins. Viðskipti innlent 9.11.2022 15:36
Segir réttinda Hussein ekki gætt við handtöku Freyja Haraldsdóttir, réttindagæslumaður fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu, segir áhyggjuefni að Hussein Hussein, fötluðum flóttamanni frá Írak, hafi ekki verið gefinn beinn aðgangur að réttindagæslu- og lögmanni eftir handtöku. Lögmaður Husseins undirbýr nú kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu vegna málsins. Innlent 3.11.2022 07:18
Erla Bolladóttir stefnir á Mannréttindadómstól Evrópu með mál sitt Erla Bolladóttir stefnir á að fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og ætlar ekki að gefast upp. Dóttir Erlu segir að kerfið hafi greinilega brugðist móður sinni en lýsir henni sem fyrirmynd. Innlent 15.10.2022 20:52
Frávísunar krafist vegna dýrkeyptra mistaka í málum útrásarvíkinga Ríkissaksóknari hefur farið fram á frávísun í máli Milestone gegn Karli Wernerssyni í kjölfar frávísunar Hæstaréttar á sambærilegu máli Styrmis Þórs Bragasonar vegna mistaka endurupptökudóms. Nokkrum svipuðum hrunmálum var ranglega vísað til Hæstaréttar á síðasta ári. Fari hrunmál Karls og fleiri sömu leið og Styrmis standa áratugsgamlir sýknudómar óhaggaðir og ríkið dæmt til að greiða tugi milljóna í málsvarnarlaun. Innlent 13.10.2022 21:39
Ekkert sáttatilboð lagt fram í talningarmálinu Ríkislögmaður segir að ríkið hafi ekki lagt fram neitt sáttatilboð eða viðurkennt brot á mannréttindasáttmála Evrópu vegna kæru tveggja frambjóðenda í Alþingiskosningunum í fyrra. Frambjóðendurnir kærðu ákvörðun Alþingis að staðfesta kosningaúrslitin til mannréttindadómstólsins. Innlent 5.10.2022 17:36
Ríkið reyndi að ná fram sáttum í talningamálinu Ríkið hefur boðið fram sáttir í máli tveggja frambjóðanda er varðar umdeilda talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í síðustu Alþingiskosningum. Málið verður tekið fyrir hjá Mannréttindadómstól Evrópu á næstunni. Innlent 5.10.2022 06:28
„Ég vona að þetta klárist fyrir minn dag“ Erla Bolladóttir skoðar að fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu eftir að beiðni hennar um endurupptöku var hafnað. Hún glímir við ólæknandi krabbamein og kallar eftir því að ríkisstjórnin taki á sig rögg og ljúki Guðmundar- og Geirfinnsmálunum í eitt skipti fyrir öll. Innlent 21.9.2022 23:39
MDE skeri úr um lögmæti aðgerða lögreglunnar á Norðurlandi eystra Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, hefur falið Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni sínum, að óska eftir því að Mannréttindadómstóll Evrópu skeri úr um lögmæti framgöngu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Innlent 20.9.2022 17:30
Oddný tjáir sig ekki um afsökunarbeiðni Magnúsar Orra Magnús Orri Marínarson Schram, fyrrverandi alþingismaður, hefur slegið í gegn meðal Sjálfstæðismanna sem kunna sér vart læti yfir afsökunarbeiðni hans vegna hlutdeildar hans í Landsdómsmálinu. Innlent 20.9.2022 13:49
Foreldrar Madeleine McCann töpuðu hjá Mannréttindadómstólnum Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að foreldrar Madeleine McCann hafi fengið réttláta málsmeðferð í meiðyrðamáli sem þeir höfðuðu gegn lögreglumanni í Portúgal. Erlent 20.9.2022 09:21
Bjarni fagnar langþráðri hreinni sakaskrá Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood og fjárfestir, er ekki lengur með dóm á bakinu fyrir meiriháttar skattalagabrot. Málinu var vísað frá héraðsdómi í Hæstarétti í gær. Bjarni segir réttlætið hafa sigrað. Viðskipti innlent 15.9.2022 14:14
Þrjú sóttu um stöðu dómara við Mannréttindadómstólinn, aftur Þrjár umsóknir bárust um lausa stöðu í embætti íslensks dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Síðast þegar Íslands skilaði lista umsækjenda til dómstólsins var hann dreginn til baka. Innlent 10.8.2022 15:36
Furðar sig á niðurstöðu Hæstaréttar um vanhæfi Markúsar Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi Hæstaréttardómari, gefur lítið fyrir röksemdafærslu Hæstaréttar sem komst á miðvikudaginn að þeirri niðurstöðu að Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti réttarins, hafi ekki verið vanhæfur til að dæma í máli sem höfðað var gegn stjórnendum Glitnis. Var fallist á endurupptöku málsins þar sem Markús hafði tapað umtalsveðum fjárhæðum við fall Glitnis. Innlent 25.6.2022 07:00
Enn ein sneypuför íslenska ríkisins í Strassborg Íslenska ríkið hefur viðurkennt að hafa brotið gegn fólki í sextán málum sem voru til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu vegna ólögmætrar skipunar dómara í Landsrétt. Lögmaður telur að dómstólinn sé þar með búinn að greiða úr öllum þeim málum sem lágu fyrir. Hann gerir ráð fyrir að nokkrir muni krefjast endurupptöku og segir lendinguna til minnkunar fyrir íslenska ríkið. Innlent 24.6.2022 12:46
Ríkið viðurkennir brot í fjórtán málum hjá MDE Íslenska ríkið hefur viðurkennt brot gegn kærendum í fjórtán málum sem voru til meðferðar hjá Mannréttindadómstól Evrópu og eiga það öll sameiginlegt að hafa verið höfðuð vegna ólöglegrar skipan dómara við Landsrétt. Innlent 24.6.2022 06:52
Katrín segir engan tossalista hafa verið sendan til MDE Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir rétt hafa verið staðið að útnefningu dómaraefna til Mannréttindadómstóls Evrópu. Enginn tossalisti hafi verið sendur til dómstólsins. Innlent 22.6.2022 15:32
Skattamáli vísað frá héraði að ósk ákæruvaldsins eftir ákúrur Mannréttindadómstólsins Máli Ragnars Þórissonar, stofnanda vogunarsjóðsins Boreas Capital, var vísað frá héraðsdómi að ósk ákæruvaldsins í dag með öðrum dómi Hæstaréttar í málinu. Ragnar hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna málsins. Innlent 22.6.2022 15:09
Auglýst að nýju eftir íslenskum dómurum við MDE Forsætisráðuneytið hefur auglýst eftir nýjum aðilum sem tilnefndir verða af Íslands hálfu í stað þeirra tveggja sem drógu umsókn sína til baka. Innlent 22.6.2022 14:50
Of veikur listi umsækjenda sendur til Mannréttindadómstólsins Íslenska ríkið þarf að hefja umsóknarferli um dómarastöðu við Mannréttindadómstól Evrópu að nýju eftir að tveir af þremur umsækjendum, sem tilnefndir voru af íslenska ríkinu, drógu umsókn sína til baka í kjölfar viðtala. Innlent 21.6.2022 14:46