Hrund Gunnsteinsdóttir

Fréttamynd

Hreyfi­aflið í opin­berum inn­kaupum

Í opinberum innkaupum þar sem lögð er áhersla á sjálfbærni (e.Sustainable Public Procurement) liggur gífurlega öflugt hreyfiafl í átt að sjálfbærum viðskiptum, nýsköpun og mannvirkjagerð. Víða erum við að sjá stór skref tekin í að nýta þau til að færa okkur nær sjálfbærni og úr línulegu hagkerfi yfir í hringrásarhagkerfið. Þarna þarf markvisst samstarf löggjafans, ríkis, sveitarfélaga og einkageirans.

Skoðun
Fréttamynd

Mátturinn í hug­viti mann­kyns

Alþjóðlegt matvælakerfi er dæmi um einstakt afrek mannkynsins. Það fæðir 7.9 milljarða manna og um 40% af mannkyni starfar í matvælakerfinu sem skapar um þriðjung af vergri heimsframleiðslu. Covid-heimsfaraldurinn, áhrif loftslagsbreytinga og átök eins og innrás Rússa í Úkraínu hafa varpað ljósi á hversu samofin kerfin og virðiskeðjurnar okkar eru.

Skoðun
Fréttamynd

Þetta er allt saman hannað

Horfðu í kringum þig. Líttu niður og upp í loft. Ljósastaur eða ljós í lofti, gólfefni, púði í sófa og hurðarop. Flýgur flugvél yfir? Kíktu í vasann eða veskið, sími, lyklar, gleraugu, varalitur... Þetta er allt saman hannað af einhverjum.

Skoðun
Fréttamynd

152 á­stæður til bjart­sýni

Athygli þín er auðlind af skornum skammti. Nóbelsverðlaunahafinn Herbert A. Simon sagði athyglina vera „flöskuháls mannlegrar hugsunar“. Við tökum meðvitað eftir aðeins brotabroti af því sem gerist í kringum okkur.

Skoðun
Fréttamynd

Við tókum púlsinn

Heimsfaraldurinn COVID-19 hafði áhrif á starfsemi Festu líkt og annarra. Við héldum mest megnis til í netheimum í fjölmörgum gjöfulum samtölum, flestir viðburðir sem við héldum og samfélagsmiðlar Festu voru svo að segja rauðglóandi og fjölsóttir.

Skoðun
Fréttamynd

Spennandi tímamót og 8000 strætóar

Í hringrásarhagkerfi (e. circular economy) er leitast við að hanna burt úrgang, mengun og útblástur gróðurhúsalofttegunda, halda vörum og efnum lengur í notkun og endurnýja náttúruleg kerfi. 

Skoðun
Fréttamynd

Fram­tíðin er nor­ræn hring­rás

Nú í september 2020 voru sett á fót samnorræn samtök sem ætlað er að vera regnhlífarsamtök um hringrásarhagkerfið á Norðurlöndunum. Samtökin bera heitið ‘NordicCircularHotspot’ og hafa hlotið fjármögnun frá Nordic Innovation að fjárhæð 1,5m norskra króna.

Skoðun
Fréttamynd

Tæki­færið - til að hugsa tvennt í einu

Kórónavírusinn hægir á heiminum og dregur verulega úr mengun, sérstaklega í borgum og iðnkjörnum. Gervihnattamyndir frá Nasa og Evrópsku Geimvísindastofnuninni (ESA) sýna þetta svart á hvítu.

Skoðun
Fréttamynd

Hag­aðilar, sam­heldni og sjálf­bærni

Yfirskrift 50. ársfundar Alþjóðaefnahagsráðsins (e. World Economic Forum), sem fram fer þessa dagana í Davos í Sviss, er "Hagaðilar í þágu samheldni og sjálfbærs heims”.

Skoðun
Fréttamynd

Strigaskór úr kaffi

"Úrgangur og mengun eru ekki slys, heldur afleiðingar ákvarðana okkar. Um 80% af ákvörðunum sem hafa áhrif á umhverfið eru teknar á hugmyndastigi hönnunar,“ segir Ellen MacArthur, en stofnun í hennar nafni er leiðandi hugveita á sviði hringrásarhagkerfisins.

Skoðun
Fréttamynd

Kyndilberar heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

Í marsmánuði vakti Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð, athygli á heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og þeirri staðreynd að ríkisstjórn Íslands hefur tengt þau inn í stefnur sínar og áætlanir til ársins 2030.

Skoðun
Fréttamynd

Hringrásarhagkerfið og nýsköpun

Við erum í djúpum skít ef við grípum ekki til róttækra og víðtækra aðgerða strax og endurhugsum hvernig við neytum, hönnum, mælum, framleiðum, göngum um jörðina, skipuleggjum borgir og byggingar, færum okkur milli staða og knýjum fram orku.

Skoðun
Fréttamynd

Hugvit er auðlind

Jarðvegurinn fyrir nýsköpun drifna áfram af tækniþróun og vísindarannsóknum á Íslandi er vægast sagt frjór. Þar ægir saman þekkingu og hugmyndaauðgi einstaklinga úr ólíkum geirum og sérgreinum.

Skoðun
Fréttamynd

Framtíðin er þeirra

Við vitum öll að börn eru frjó í hugsun, með fjörugt ímyndunarafl og skapandi í eðli sínu.

Skoðun
Fréttamynd

Kvenréttindabaráttan er mesta bylting sögunnar

Fyrir rúmlega áratug var ein okkar stödd í fjallahéraði í Kósóvó til þess að kenna á námskeiði, þar sem konur af ólíkum þjóðernishópum komu saman til þess að ræða framtíð Kósóvó.

Skoðun
Fréttamynd

Tökum engu sem gefnu á degi kvenna

Heimssýn okkar mannfólksins í árhundruð og fram til ársins 1543 var sú að jörðin væri miðja alheimsins. Tilvist okkar og lífssýn mótaðist út frá þessari "staðreynd“ í árhundruð.

Skoðun
Fréttamynd

Dáið er allt án drauma og dapur heimurinn

Mohandas Gandhi, Wangari Mathaai, Nelson Mandela og frú Vigdísi Finnbogadóttur hefur öllum verið lýst sem visionaries í enskum textum um líf þeirra og störf. A visionary er enskt orð yfir einstakling sem hefur skýra sýn á framtíðina og getur séð fyrir sér óorðna hluti. A visionary

Skoðun
Fréttamynd

Vilt þú hafa fiðrildaáhrif?

Það var að næturlagi sem árásarmennirnir komu. Ég var sofandi og ein í húsinu. Þeir voru fimm. Þeir réðust inn og rifu mig úr fötunum. Þeir stungu mig með sveðju í höfuðið og ofarlega í handleggina á meðan þeir héldu höfðinu á mér aftur. Ég öskraði allan tímann á meðan þeir nauðguðu mér – allir fimm, hver á eftir öðrum.

Skoðun