Innlent
Með eiturlyf í Norrænu Handteknir vegna smygls. Innlent 20.12.2005 21:58 « ‹ ›
Búið að slökkva eldinn í Ísnet í Hafnarfirði Búið er að slökkva brunann í netafyrirtækinu Ísnet við Óseyrarbraut í Hafnarfirði. Tilkynnt var um brunann um klukkan sjö í kvöld og var allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út. Ekki er vitað um tjón að svo stöddu. Innlent 21.12.2005 19:50
Fjögurra bíla árekstur á Kringlumýrabraut við Borgartún Fjögurra bíla árekstur varð á Kringlumýrabraut við Borgartún fyrir stuttu. Ekki er vitað um meiðsl á fólki að svo stöddu. Kalla þurfti til dráttararbíla til að flytja tvo bíla burt af vettvangi. Búið er að opna fyrir umferð. Innlent 21.12.2005 19:28
Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út vegna bruna í Hafnarfirði Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna bruna í netafyrirtækinu Ísnet við Óseyrarbraut í Hafnarfirði. Tilkynnt var um eldinn fyrir um klukkan sjö í kvöld og eru slökkvibílar komnir á staðinn. Innlent 21.12.2005 19:15
KB-menn menn ársins að mati Frjálsrar verslunnar Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson hjá KB-banka hafa verið valdir menn ársins í íslensku atvinnulífi af tímaritinu Frjálsri verslun. Í fréttatilkynningu kemur fram að þeir hafi hlotið verðlaunin fyrir framúrskarandi hæfni við rekstur bankans, stækkun hans, farsælan feril, athafnasemi og frumkvöðlastarf í útrás íslenskrar bankaþjónustu og þróun íslensks fjármagnsmarkaðar. Innlent 21.12.2005 18:16
Truflun á netsambandi í nótt Búast má við truflunum á netsambandi við útlönd milli klukkan eitt í nótt til sex í fyrramálið, vegna viðhalds á Farice sæstrengnum. Verið er að auka öryggi strengsins og verður betur varinn strengur lagður á stuttum kafla í Skotlandi í nótt. Netsamband á meðan fer eftir gæðum þeirra varaleiða sem íslensku símafyrirtækin, sem verlsa við Farice, hafa að bjóða viðskiptavinum sínum. Innlent 21.12.2005 17:39
Úthlutað úr styrktarstjóði Baugs Group Á morgun, 22. desember, verður úthlutað 50 milljónum króna úr styrktarsjóði Baugs Group. Þetta er í fyrsta sinn sem úthlutun fer fram úr sjóðnum. Innlent 21.12.2005 16:30
Ragnhildur Helgadóttir formaður ritstjórnar bókar um sögu þingræðis Ragnhildur Helgadóttir lektor í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík hefur verið skipuð formaður ritstjórnar bókar um sögu þingræðis á Íslandi. Auk hennar sitja í ritstjórn þau Helgi Skúli Kjartansson prófessor í sagnfræði og dr. Þorsteinn Magnússon stjórnmálafræðingur. Innlent 21.12.2005 15:59
Hálka víða um land Hálka er á Hellisheiði og í Þrengslum og hálkublettir eru víða á Suðurlandi. Sama er að segja um færð á Vesturlandi og Vestfjörðum en þar er víða hálka og hálkublettir. Á Norðurlandi eru víða hálkublettir, hálka er á Öxnadalsheiði en Lágheiði er ófær. Á Norðausturlandi er hálka, hálkublettir og éljagangur. Þá eru einnig víða hálkublettir á Austur- og Suðurlandi. Innlent 21.12.2005 15:38
Almenningur treystir íbúðarlánasjóði Almenningur treystir Íbúðalánasjóði samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar IMG Gallups sem gerð var dagana 9.-15. desember. Alls telja 84,2% svarenda Íbúðarlánasjóð traustan en einungis 3,8% aðspurðra telja sjóðinn ótraustan. Innlent 21.12.2005 15:11
Reykjavík fær langmest fé Reykjavík fær tvöfalt hærra framlag úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga en það sveitarfélag sem fær næst mest úr sjóðnum. Framlögin sem Reykjavík fær eru að stærstum hluta vegna greiðslu húsaleigubóta. Innlent 21.12.2005 15:02
SÍF selur sinn hlut í Icebrit Ltd SÍF hf. hefur selt 40% eignarhlut sinn í sölufyrirtækinu Icebrit Ltd. í Bretlandi. Kaupandi er Páll Sveinsson og fjölskylda sem fyrir voru eigendur að 60% að félaginu. Söluverð er trúnaðarmál. Innlent 21.12.2005 14:15
Sala á Þorláksmessu til styrktar Palestínu Líkt og í fyrra verður Félagið Ísland-Palestína með sölu á bolum, palestínskum kafía klútum, nælum og disknum Frjáls Palestína til styrktar stríðshrjáðum í Palestínu í miðbænum á Þorláksmessu. Innlent 21.12.2005 14:06
Refsingu frestað í skjalafalsmáli Kona á fimmtugsaldri var fundin sek fyrir skjalafals í Héraðdsómi Reykjaness í dag. Hafði hún falsað tvo lyfseðla, breytt ávísuðu magni á báðum seðlunum og breytt öðrum úr einnota lyfseðil í fjölnota. Hún játaði brot sín skýlaust fyrir dómi og var tekið tillit til þess og einnig framlagðra sjúkraskýrslna. Refsingu var frestað haldi konan almennt skilorð í tvö ár. Innlent 21.12.2005 13:50
Samningar um yfirtöku Landsnets á flutningsvirkjum Samningar um yfirtöku Landsnets á flutningsvirkjum Landsvirkjunnar, Orkubús Vestfjarða og Rafmagnsveitna ríkisins. Samtals greiðir Landsnet hf. um 26 milljarða króna fyrir flutningsformin Innlent 21.12.2005 12:58
Tindafjöll sýknað Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Tindafjöll ehf. af skaðabótakröfu. Hérðasdómur Reykjavíkur komst að því í morgun að málið væri fyrnt og sýknaði því Tindafjöll af skaðabótakröfunni. Innlent 21.12.2005 12:16
Leysa ekki vanda með skemmtanabanni Foreldrar, lögregla og skólayfirvöld verða að bregðast við drykkju unglinga en vandamál henni tengd verða ekki leyst með því að banna skemmtanahöld nemenda segir rektor Menntaskólans við Sund. Lögreglan í Reykjavík hefur bannað skemmtanahald nemenda skólans fram á vor vegna drykkjuláta og uppákoma á síðustu tveimur böllum skólans. Innlent 21.12.2005 12:00
Þrír sækjast eftir stöðu sýslumanns á Hólmavík Þrír sækjast eftir stöðu sýslumanns á Hólmavík. Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. janúar 2006 Innlent 21.12.2005 11:55
Stúlka slasast illa á hönd Stúlka slasaðist illa á handarbaki þegar hún festi höndina í roðvél í fiskvinnslunni í Keflavík í morgun. Að sögn lögreglunnar á staðnum er óljóst hversu illa útleikin höndin er en töluvert af handarbakinu flettist af. Stúlkan var flutt með sjúkrabíl á Landsspítalann Háskólasjúkrahús í Fossvogi og að sögn læknis lögð inn á lýtarlækningardeild. Innlent 21.12.2005 11:50
Bilun í heitavatnsæð síðdegis í gær Bilun varð í heitavatnsæð við dælustöð í Stekkjabakka síðdegis í gær. Unnið var að viðgerð í gærkvöldi og nótt til að valda sem minnstum óþægindum. Innlent 21.12.2005 11:10
Síðasti dagurinn til að senda jólakortin Íslendingar eyða um það bil þrjú hundruð og fjörtíu milljónum króna í jólakort og sendingarkostnað um þessi jól. Það jafngildir því að sérhvert mannsbarn á Íslandi eyði um það bil eitt þúsund fimmtíu og sjö krónum í þessa gömlu hefð. Innlent 21.12.2005 10:53
Ungir hugvitsmenn vinna til verðlauna Fjórar íslenskar hugmyndir hlutu verðlaun í nýsköpunarsamkeppni sem InnoEd verkefnið stóð fyrir. Að verkefninu standa Íslendingar, Bretar, Finnar og Noregur og er markmið þess að koma á fót menntakerfi sem styður kennslufræðileg markmið nýsköpunar. Innlent 21.12.2005 11:03
Sýknað af bótakröfu starfsmanns Hæstiréttur hefur sýknað Ístak af kröfu starfsmanns fyrirtækisins sem slasaðist þegar hann féll til jarðar þar sem hann stiklaði milli gólfbita í Smáralind þegar hún var í byggingu. Varanleg örorka mannsins er metin fimmtán prósent. Innlent 21.12.2005 07:31
Byggingastjóri greiði fyrir galla á húsi Byggingastjóri parhúss í Garðabæ var í gær dæmdur til að greiða eiganda hússins eina og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna verulegra galla sem voru á byggingu hússins. Innlent 21.12.2005 07:20
Hætt við uppboð á eigum Bobby Fischer Uppboð á eigum Bobby Fischer á uppboðsvefnum e-bay sem sagt var frá í fréttum NFS í síðustu viku hefur nú verið dregið til baka. Seljandinn segist reiðubúinn að afhenda Fischer eigur sínar aftur fáist einhver til að greiða flutningskostnað. Innlent 21.12.2005 09:04
Hæstiréttur sýknaði ríkið Hæstiréttur sýknaði ríkið í gær af kröfu manns sem vildi að álagning iðnaðarmálagjalds á rekstur hans á árunum 2001 til 2004 yrði felld úr gildi. Innlent 21.12.2005 06:41
Fleiri innherjamál til Fjármálaeftirlitsins Innherjamálum sem Fjármálaeftirlitið fær til skoðunar hefur fjölgað að undanförnu að því er fram kemur í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins í morgun. Innlent 21.12.2005 06:12
Vélstjórar samþykktu samning Vélstjórar samþykktu kjarasamning sinn við Landhelgisgæsluna með 63 prósentum atkvæða. Tólf voru á kjörskrá og greiddu ellefu þeirra atkvæði. Sjö greiddu atkvæði með samningnum, tveir á móti og tvö atkvæði voru ógild. Innlent 21.12.2005 06:18
Vinnuhópur um verndun hafsins Norrænu ríkisstjórnirnar hafa sett á laggirnar vinnuhóp um verndun hafsins. Vinnuhópurinn á að koma með tillögur Norðurlanda að sameiginlegri Evrópskri stefnu um verndun sjávar. Formaður nefndarinnar er Tore Riise frá norska strand- og sjávarútvegsráðuneytinu. Innlent 21.12.2005 06:42
Íslenskri konu vísað úr sænskum strætó Sjónskert íslensk kona stóð í stappi við strætisvagnsstjóra á Skáni í Svíþjóð. Lögregla vísaði henni úr vagninum þegar hún stóð á rétti sínum og neitaði að borga undir aðstoðarmann sinn. Málið vakti mikla athygli ytra um helgina. Innlent 20.12.2005 21:58