Innlent
Atvinnuflugmenn eru í þrefalt meiri hættu á að fá ský á auga en aðrir Atvinnuflugmenn eru í þrefalt meiri hættu á að fá ský á auga en aðrir. Ský á auga getur valdið blindu. Ástæðan eru geimgeislar og hættan eykst eftir því sem menn fljúga lengur og hærra. Áður fyrr flugu farþegavélar í um það bil 20.000 feta hæð en þotur nútímans fljúga í 30-40.000 feta hæð. Læknir segir að flugmenn eigi erfitt með að verjast hinni skaðlegu geislun. Innlent 22.12.2005 22:03
Engan sakaði þegar bíll valt í Egilsstaðaskógi Bílvelta varð í Egilsstaðaskógi í dag. Ung kona var ein á ferð í bílnum og sakaði hana ekki. Talið er að ísing á veginum hafi orðið til þess að bíllinn valt með þeim afleiðingum að bíllin fór út af veginum og rakst á tré. Bíllinn er mikið skemmdur. Innlent 22.12.2005 21:24
Forsætisráðherra undrandi á úrskurði Kjaradóms Forsætisráðherra er undrandi á úrskurði Kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna og kallaði formann dómsins, Garðar Garðarson, á teppið í morgun. Óskaði ráðherrann eftir því að Garðar útskýrði ákvörðun sína fyrir þjóðinni. Játti Garðar því. Forystumenn stjórnmálaflokkanna lýsa flestir yfir furðu á dómnum og vera kann að það verði tekið fyrir á Alþingi. Innlent 22.12.2005 20:54
Hyggst halda áfram í hungurverkfalli uns kjör öryrkja verða bætt Öryrkinn Sonja Haralds hefur ekki neytt matar í 28 daga og hyggst halda hungurverkfallinu áfram uns kjör öryrkja verða bætt eða hún sjálf deyr. Hún hefur gengið þannig frá málum að ef ástand hennar verður lífshættulegt má ekki gera tilraunir til að lífga hana við. Aðstoðarlandlæknir segir fólk ráða lífi sínu og ekki sé hægt að þvinga það til að þiggja læknismeðferð. Innlent 22.12.2005 20:48
Íslensk tónlist selst vel fyrir jólin Íslensk tónlist selst eins og heitar lummur nú fyrir jólin enda er það vinsælt að gefa hljómplötur með íslenskum tónlistarmönnum í jólagjöf. Sala á íslenskri tónlist hefur aukist ár frá ári. Innlent 22.12.2005 20:22
Fá 50% meiri launahækkun en ófaglært verkafólk Ráðherrar og þingmenn fá 50% meiri launahækkun en verkafólk á árinu. Laun forsætisráðherra hækka um rúm 10% frá janúar á þessu ári fram í janúar á næsta ári en laun ófaglærðs verkafólks hækka hins vegar um tæp 7% á sama tíma. Innlent 22.12.2005 20:15
Býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri Bergur Þorri Benjamínsson stjórnarmaður í Verði, félagi ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í prófkjöri sem fram fer þann 5. febrúar. Bergur Þorri er 26 ára viðskiptafræðinemi við Háskólann á Akureyri. Innlent 22.12.2005 16:01
BSRB styrkja Mannréttindaskrifstofu BSRB afhenti Mannréttindaskrifstofu Íslands í dag einnar milljón króna styrk til reksturs skrifstofunnar í ár. Innlent 22.12.2005 15:15
Styrkja krabbameinssjúk börn Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa ákveðið að styrkja Félag krabbameinssjúkra barna um 150 þúsund krónur. Rósa Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri félagsins veitti styrknum viðtöku fyrir hönd þess fyrr í dag. Innlent 22.12.2005 14:38
Fimmtán mánaða fangelsi fyrir sölu fíkniefna Héraðsdómur Reykjaness dæmdi i dag Tuttugu og tveggja ára karlmann í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir sölu og vörslu fíkniefna. Innlent 22.12.2005 14:14
Brugðust rangt við neyðarkalli Starfsmenn færeysku Sjóbjörgunarmiðstöðvarinnar brugðust rangt sjálfvirku neyðarkalli Jökulfellsins sem sökk norðaustur af Færeyjum sjöunda febrúar síðast liðinn að því er fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa á eynni Mön. Innlent 22.12.2005 14:03
Á þriðja hundrað milljóna virði Landsmenn spara sér á annað hundrað milljónir króna með því að baka smákökurnar sjálfir fyrir jólin frekar en að kaupa þær. Þetta er niðurstaða starfsmanna fjármálaráðuneytisins sem eru komnir í jólaskap ef marka má nýjasta tölublað vefrits fjármálaráðuneytisins. Innlent 22.12.2005 13:11
Sífellt fleiri vilja skötu Það hefur færst í aukana síðastliðin ár að fólk borði skötu á Þorláksmessu og er þessi vestfirski siður einna langlífastur allra íslenskra jólasiða. Vestfirðingar vilja skötuna vel kæsta og borða með henni hnoðmör en vinsælust er millikæst skata, jafnvel söltuð með hamsatólg og kartöflum. Innlent 22.12.2005 12:18
Fordæmi fyrir að fella kjaradóm úr gildi Þingmenn hafa mælst til þess að Alþingi nemi síðustu launahækkun Kjaradóms þeim til handa úr gildi. Það yrði ekki í fyrsta skipti sem launahækkanir æðstu ráðamanna yrðu dregnar til baka með lagasetningu á Alþingi. Innlent 22.12.2005 12:03
74 sveitarfélög innheimta hæsta útsvar 74 sveitarfélög innheimta hæsta leyfilega útsvar af íbúum sínum á næsta ári en það er 13,03 prósent. Þrjú sveitarfélög innheimta hins vegar lægsta útsvar sem þeim er heimilt. Það eru Ásahreppur, Helgafellssveit og Skorradalshreppur þar sem útsvarið er 11,24 prósent. Innlent 22.12.2005 08:54
Kristján Þór vill fyrsta sætið Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri sækist eftir fyrsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar næsta vor. Hann útilokar ekki að fara í þingframboð. Innlent 22.12.2005 10:29
Landsmenn að verða 300 þúsund Landsmenn verða að öllum líkindum orðnir 300 þúsund talsins innan tveggja mánaða. Landsmenn voru orðnir 299.404 1. desember og hafði þá fjölgað um rúmlega sex þúsund á einu ári samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Innlent 22.12.2005 09:21
Hálka og hálkublettir víða um land Nokkur hálka er í Borgarfirði, Dölum og á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum er víða verið að hreinsa vegi, þar er einnig hálka. Innlent 22.12.2005 09:10
Vill endurskoða gjaldskrá presta Umboðsmaður Alþingis vill að dóms- og kirkjumálaráðuneytið taki gjaldskrá fyrir aukaverk presta til endurskoðunar. Þetta kemur fram í áliti umboðsmanns í máli manns sem leitaði til hans vegna gjalds sem hann var rukkaður um fyrir fermingu barns síns. Innlent 22.12.2005 06:39
Gæsluvarðhald yfir Albana stytt Hæstiréttur stytti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Albana sem grunaður er um að hafa myrt mann í Grikklandi á jóladag í fyrra. Maðurinn bíður framsals til Grikklands og hafði héraðsdómur úrskurðað hann í gæsluvarðhald til þrettánda janúar. Innlent 22.12.2005 06:19
Annríki hjá slökkviliði Reykjavíkur Mikið annríki var hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og nótt. Tilkynnt var um mikinn reyk í íbúð við Hringbraut um kl. 22.30 í gærkvöld. Í fyrstu var talið að maður væri meðvitundalaus í íbúðinni Innlent 22.12.2005 07:05
Hafa hækkað tvöfalt á við aðra Laun ráðherra og þingmanna hafa hækkað tvöfalt meira en launavísitala síðustu sjö árin. Laun ráðherra hafa hækkað um 103 prósent og laun þingmanna um 102 prósent á sama tíma og launavísitala hefur hækkað um 51 prósent að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Innlent 22.12.2005 07:40
Greiðir 27 milljarða fyrir flutningsvirkin Landsnet kaupir flutningskerfi raforku. Innlent 21.12.2005 21:54
Þjófur sætti lagi meðan enginn var heima Ung kona í Reykjavík lenti í að brotist var inn hjá henni um hábjartan dag meðan hún brá sér frá. Þrjár vikur voru síðan hún keypti sér nýja fartölvu. Nýlega var gripinn þjófur sem bankaði upp á í húsum til að gá hvort einhver væri heima. Innlent 21.12.2005 21:54
Eldur kom upp í íbúð í Vesturbæ Slökkviliðinu í Reykjavík barst tilkynning um eld í íbúð í Vesturbæ rétt í þessu. Slökkvilið er komið á staðinn og er að ráða niðurlögum eldsins. Ekki er vitað að svo stöddu hvort einhverjir hafi verið fluttir á slysadeild. Innlent 21.12.2005 22:35
Aukin áfengisneysla í desember Neysla áfengis eykst mikið í kringum jólin enda tilefnin æri mörg til að fá sér í glas. Lýðheilsustofnunin hefur hafið auglýsingaherferð til að minna fólk á að gæta varúðar í meðferð áfengis. Innlent 21.12.2005 22:09
Vetrarsólstöðuhátíð Ásatrúarfólks haldin í Öskjuhlíð Vetrarsólstöðuhátíð Ásatrúarfélagsins var haldin í Öskjuhlíðinni í kvöld. Hátíðin er ein helsta hátíð Ásatrúarfólks og að venju var fjöldi fólks samankominn til að fagna því að nú fer daginn að lengja á ný. Innlent 21.12.2005 22:02
Leikskólabörn læra um jólahefðir fyrr á öldum Leikskólabörn streyma á byggðasafnið í Hafnarfirði til að sjá hvernig jólin voru haldin fyrir 200 árum. Margt hefur breyst hér á landi síðustu 200 árin og eru jólin þar engin undantekning. Á Byggðasafninu í Hafnarfirði er tekið á móti sex barnahópum á dag frá því fyrsti jólasveinninn kemur til byggða og fram á Þorláksmessu. Börnunum er sagt frá jólunum eins og þau voru í Sívertsenhúsinu fyrir tveimur öldum. Innlent 21.12.2005 21:22
Vill að íslenskir friðargæsluliðar sinni borgaralegri friðagæslu Framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar segir að það skapi hættu fyrir hjálparstarfsmenn þegar friðargæsluliðar sinna neyðar- og þróunaraðstoð eins og íslenskir friðargæslumenn gera í Afganistan. Hann segir það skoðun sína að Íslendingar eigi fremur að leggja áherslu á borgaralega friðargæslu en vopnaða. Innlent 21.12.2005 21:18
Varaformaður fjárlaganefndar vill að launahækkun ráðamanna og embættismanna verði afturkölluð Varaformaður fjárlaganefndar Alþingis vill að forsætisráðherra kalli saman þing eða setji bráðabirgðalög til að afturkalla launahækkun sem Kjaradómur úrskurðaði ráðamönnum og æðstu embættismönnum ríkisins. Hann segir að launahækkunin ríði efnahagslífinu á slig og að hann er ekki einn um að gagnrýna hana. Innlent 21.12.2005 21:06