Innlent

Fréttamynd

Lögregla lýsir eftir stolinni bifreið

Aðfaranótt síðastliðins þriðjudags var bifreiðinni LV 026 stolið af bifreiðastæði við Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Bifreiðin er svört Audi A4. Þeir sem hugsanlega verða varir við bifreiðina eru beðnir að láta lögreglu vita.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú innbrot í Reykjavík í morgun

Tilkynnt var um þrjú innbrot í Reykjavík í morgun. Brotist var inn í húsnæði í endurbyggingu í austurborginni í einu tilvikinu. Þaðan var stolið miklu magni rafmagnsverkfæra og annarra verkfæra. Þá var brotist inn í íbúð á Grettisgötu og tækjum stolið úr Borgarholtsskóla, þar sem reyndar var farið inn um opnar dyr.

Innlent
Fréttamynd

Hver að verða síðastur að ná sér í jólatré

Jólatré eru að seljast upp, í það minnsta á höfuðborgarsvæðinu, og fer hver að verða síðastur til að ná sér í slíkt stofustáss. Mikil aukning hefur verið á sölu jólatrjáa milli ára og nú er svo komið að kaupmenn sjá fram á að þau seljist upp.

Innlent
Fréttamynd

Búist við að velta í verslun aukist um þriðjung milli ára

Kaupmenn búast við að veltan í jólamánuðinum aukist um þriðjung að meðaltali á milli ára. Aukinn kaupmáttur er sagður aðalástæða þess. Lausleg og óformleg könnun fréttastofu NFS leiðir hins vegar í ljós að flestir eru á svipuðu róli og í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Nýr sýslumaður á Hólmavík

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur skipað Kristínu Völundardóttur, deildarstjóra í dómsmálaráðuneytinu, sýslumann á Hólmavík frá og með 1. janúar n.k.

Innlent
Fréttamynd

Helstu þjóðvegir færir

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að allir helstu þjóðvegir landsins séu færir, en búast má við hálku eða hálkublettum víða um land.

Innlent
Fréttamynd

Atlantsskip undirrita samning við DFDS Transport

Atlantsskip hafa undirritað samstarfssaming við flutningsfyrirtækið DFDS Transport um flutninga fyrirtækisins í Skandinavíu. DFDS Transport er öflugasti forflutningsaðilinn á þessu svæði og er samningurinn því mikil viðurkenning fyrir Atlantsskip og ljóst að flutningsgeta fyrirtækisins mun aukast til muna frá því sem áður hefur verið.

Innlent
Fréttamynd

Vann til silfurverðlauna á EM í kranastjórnun

Ingi Björnsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í kranastjórnun, hlaut nýverið silfurverðlaun í Evrópukeppni Liebherr í kranastjórnun sem fram fór í Suður-Þýskalandi þann 30. nóvember síðastliðinn.

Innlent
Fréttamynd

Í gæsluvarðhald vegna umfangsmikils fíkniefnasmygls

Tveir menn, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnasmygls með ferjunni Norrænu, reyndust vera með fjögur kíló af hassi og eitt kíló af amfetamíni. Mönnunum hefur nú verið sleppt úr gæslu en þeir hafa úrskurðaðir í farbann til 20. janúar.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að Dagur víki sæti sem borgarfulltrúi

Ungir framsóknarmenn krefjast þess að Dagur B. Eggertsson víki sæti sem borgarfulltrúi, þar sem hann sé ekki lengur óháður frambjóðandi. Hann hafi fengið sæti sitt á silfurfati sem fulltrúi óháðra kjósenda en nú séu forsendur fyrir framboði hans brostnar.

Innlent
Fréttamynd

Ákvörðun Kjaradóms ábyrgðarleysi og skapar þrýsting

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins, segir að ákvörðun Kjaradóms um launahækkun æðstu embættismanna sé tekin af algeru ábyrgðarleysi og skapi þrýsting á vinnumarkaði. Ef ákvörðunin fái að standa grafi það undan getu og vilja verkalýðshreyfingarinnar til að stuðla að langtímasamningum.

Innlent
Fréttamynd

Jólatrén að seljast upp

Jólatrén eru að seljast upp og fer hver að verða síðastur til að ná sér í fallegt jólatré. Mikil aukning hefyr verið á sölu jólatrjáa milli ára og margir eru að kaupa sér fleiri en eitt tré

Innlent
Fréttamynd

Erlendum jólagestum fer fjölgandi

Á undanförnum tveimur árum hefur jólaferðamönnum fjölgað um helming. Sjö til átta hundruð erlendir ferðamenn gista á hótelum í Reykjavík yfir jólahátíðina. Ekkert eitt þjóðerni er áberandi fjölmennt í ferðamannahópnum, en þó virðist sem Bandaríkjamönnum og Bretum sé að fjölga og talsvert er um Japani og Evrópubúa.

Innlent
Fréttamynd

Árlega friðargöngur í kvöld í Reykjavík og Akureyri

Íslenskir friðarsinnar standa að blysför niður Laugaveginn á Þorláksmessu. Safnast verður saman á Hlemmi og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðargangan á Þorláksmessu er nú orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og sjötta í röðinni. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göngunnar. Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans í Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfssonar kórstjóra tekur að vanda þátt í blysförinni sem endar með stuttum fundi á Ingólfstorgi. Þar mun séra Bjarni Karlsson halda stutt ávarp. Fundinum lýkur síðan með friðarsöng. Friðargöngur verða einnig á Akureyri og Ísafirði á Þorláksmessukvöld. Gangan á Akureyri verður þó seinna en sú í Reykjavík en þar verður lagt af stað frá Menntaskólanum á Akureyri, Eyrarlandsvegi 28 klukkan 22. Göngunni lýkur með fundi þar sem Margrét Heinreksdóttir lögfræðingur flytur ávarp og kór Akureyrarkirkju syngur.

Innlent
Fréttamynd

175 þúsund afskorin blóm flutt inn næsta hálfa árið

Landbúnaðarráðuneytið hefur úthlutað tollkvóta vegna innflutnings á afskornum blómum og pottaplöntum. Fimm tilboð bárust vegna innflutnings a afskornum blómum í tvö hundruð þúsund stykki á meðalverðinu tuttugu og sjö krónur.

Innlent
Fréttamynd

Akranes tengist leiðakerfi Strætó

Í lok ársins verða undirritaðir samningar um almenningssamgöngur á milli Reykjavíkur og Akraness, en þessir samningar hafa verið í burðarliðnum um nokkurt skeið.

Innlent
Fréttamynd

NSÍ vill frekari friðlýsingu í Þjórsárverum

Náttúruverndarsamtök Íslands fagna ákvörðun umhverfisráðherra um friðlýsingu Guðlaugstungna, Svörtutungna og Álfgeirstungna norðan Langjökuls og Hofsjökul og skora á ráðherra að halda áfram á sömu braut.

Innlent
Fréttamynd

Fundu hass á manni á Akureyrarflugvelli

Maður var handtekinn á Akureyrarflugvelli í gær eftir að lítið magn af hassi fannst í farangri hans. Lögreglan á Akureyri er með átak í gangi og er grannt fylgst með öllum farþegum og farangri þeirra sem þar fara um. Lögreglan biður fólk um að hugsa sig tvisvar um þegar það pakkar niður fyrir ferðalagið, því ef dóp sé í töskunum, mun lögreglan finna það.

Innlent
Fréttamynd

Þorskkvóti í Barentshafi dregst saman

Heildarafli íslenskra skipa af þorski í Barentshafi dregst saman um tvöhundruð og ellefu tonn á milli ára samkvæmt reglugerð sem Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út. Leyfilegur heildarafli , að teknu tilliti til heimilaðs aukaalfa verður áttaþúsund níuhundruð og fimmtíu tonn.

Innlent
Fréttamynd

Verið að opna leiðir á Vestfjörðum

Á Suðurlandi og Vesturlandi er hálka eða hálkublettur á vegum samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Á Vestfjörðum er verið að opna syðri leiðina frá Reykhólum um Hálsana til Patreksfjarðar og Bíldudals. Einnig er verið að hreinsa á norðaverðum fjörðunum, frá Þingeyri til Ísafjarðar og Bolungarvíkur, einnig um Djúp og Steingrímsfjarðarheiði til Hólmavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Dagur B. Eggertsson víki

Ungir Framsóknarmenn í Reykjavík krefjast þess að Dagur B. Eggertsson víki úr borgarstjórn. Segir í yfirlýsingu sem Ungir framsóknarmenn hafa sent frá sér að þar sem Dagur hafi verið á framboðslista R-listans sem fulltrúi óháðra kjósenda séu forsendur fyrir setu hans í borgarstjórn brostnar og því beri honum að víkja og eðlilegt sé að Jóna Hrönn Bolladóttir varaborgarfulltrúi taki sæti hans.

Innlent
Fréttamynd

33 árekstrar í Reykjavík í gær

Alls urðu 33 árekstrar í Reykjavík í gær frá klukkan sjö að morgni til klukkan ellefu að kvöldi. Engin slasaðist alvarlega og einungis var um minniháttar meiðsl að ræða í nokkrum tilvikum. Þetta er nokkuð mikill fjöldi árekstra en alls verða um 13 árekstrar að meðaltali á degi hverjum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Eldur kom upp í rútu í Vogum

Eldur kom upp í rútu í Vogum á Vatnsleysuströnd á áttunda tímanum. Ekki er vitað nánar um tildrög eldsins. Rútan stendur í íbúðabyggð en samkvæmt upplýsingum lögreglu er ekki talin hætta á ferðum. Verið er að slökkva eldinn og talið að því verði lokið innan stundar.

Innlent
Fréttamynd

Játaði manndráp en neitaði ásetningi

Ungur maður játaði fyrir dómi að hafa orðið öðrum að bana með því að stinga hann með hnífi. Hann neitar ásetningi. Aðalmeðferð fer fram í janúarlok. Foreldrar látna piltsins gera kröfu um tæpar 5,4 milljónir króna í bætur.

Innlent
Fréttamynd

33 árekstrar í Reykjavík í dag

Alls urðu 33 árekstrar í Reykjavík í dag frá klukkan sjö að morgni til klukkan ellefu nú í kvöld. Engin slasaðist alvarlega og var einungis um minniháttar meiðsl að ræða í nokkrum tilvikum. Þetta er nokkuð mikill fjöldi árekstra en alls verða um 13 árekstrar að meðaltali á degi hverjum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi

Dráttarvél og sorphirðubíll rákust saman á Skagastrandavegi nú í kvöld. Þá valt einnig lítill jeppi í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu í dag. Í gær varð svo önnur bílvelta í umdæmi lögreglunnar á Blönduósi en bíll valt í nágrenni Enniskots. Enginn slasaðist í umferðaróhöppunum. Mikil hálka er nú í Húnavatnssýslunum.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að snúa á keppinautana

Íbúðalánasjóður reyndi að snúa á keppinauta sína á íbúðalánamarkaði með því að bjóða út íbúðabréf á meðan markaður var lokaður. Þetta er í fyrsta sinn sem sjóðurinn gerir það.

Innlent