Innlent
Hlutabréf í FL Group halda áfram að hækka Hlutabréf í FL Group héldu áfram að hækka í dag. Bréf í félaginu hækkuðu um 2,6% í dag. Bréf í Mosaic Fashions hf. hækkuðu mest í dag eða um 3,3%. Innlent 27.12.2005 16:51
Kjaradómur endurskoði ákvörðun sína Ríkisstjórnin hefur óskað eftir því að Kjaradómur endurskoði ákvörðun sína um hækkun launa þingmanna og ráðherra. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tilkynnti forsvarsmönnum aðila vinnumarkaðarins þessa ákvörðun á fundi í Ráðherrabústaðnum klukkan tvö í dag. Innlent 27.12.2005 16:41
Mörg gæludýr þurfa róandi lyf Það styttist í áramótin og hunda-, katta- og hrossaeigendur eru margir hverjir farnir að huga að úrræðum fyrir dýr sín sem mörg hver hræðast flugeldana og hávaðann sem þeim fylgir. Sumir kaupa róandi lyf fyrir hunda sína en þess gerist þó ekki þörf fyrir alla hunda. Innlent 27.12.2005 16:17
Góðir gestir heimsóttu biskupsstofu á aðventu Nokkrir forsvarsmenn nýrrar útgáfu á laginu Hjálpum þeim, fulltrúar Mæðastyrksnefndar og hópur ungs fólks sem safnaði fyrir brunni í Afríku, þáðu súkkulaði og smákökur að lokinni jólahelgistund á biskupsstofu í vikunni fyrir jól. Innlent 27.12.2005 16:16
Nokkuð rólegt á slysadeild Nokkuð rólegt hefur verið á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús í dag og heldur færri komið en venjulegt er. Að sögn vakthafandi læknis var jólahelgin einnig nokkuð róleg á slysadeildinni. Innlent 27.12.2005 16:16
Kettirnir fá glaðning á jólunum í Kattholti Hátt í 100 kettir eru nú í óskilum í Kattholti. Augljóst er að þeir sakna eigenda sinna enda magir hverjir búnir að vera fjarri heimilum sínum svo vikum og jafnvel mánuðum skiptir. Þeir voru ánægðir með athyglina þegar fréttamann bar að garði í Kattholti. Innlent 27.12.2005 16:14
Karl og kona fundust látin Lík karls og konu milli þrítugs og fertugs fundust í húsi við Frakkastíg í Reykjavík um miðjan dag. Lögregluna grunar að parið hafi tekið of stóran skammt af fíkniefnum. Nágrannar tilkynntu lögreglu um líkfundinn. Rannsókn á vettvangi stendur enn yfir. Svæðið er lokað almenningi. Innlent 27.12.2005 15:45
Fundust látnir í húsi við Frakkastíg Óstaðfestar fregnir herma að tveir einstaklingar hafi fundist látnir í bakhúsi við Frakkastíg eftir hádegið í dag. Lögregla vill ekki staðfesta þetta, en mikill viðbúnaður er á svæðinu í kring. Innlent 27.12.2005 15:34
Eldur í þvottavél Eldur kom upp í þvottavél í íbúð í Hafnarfirðinum fyrr í dag. Búið var að slökkva eldinn þegar slökkviliðið kom á svæðið en reykræsta þurfti íbúðina. Innlent 27.12.2005 15:16
Stífluð niðurföll valda vandræðum Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna þriggja vatnsleka í dag. Um er að ræða stífluð niðurföll sem verða til þess að það flæðir inn í nærliggjandi íbúðir þegar rigning er og vatn á götum er mikið. Allar íbúðirnar sem flætt hefur inn í eru kjallaraíbúðir og er búið að hreinsa vatn upp í þeim öllum. Um óverulegar skemmdir er að ræða í öllum íbúðunum. Innlent 27.12.2005 15:11
Byrjað að fljúga Innanlandsflug hófst aftur klukkan þrjú til allra staða á landinu nema Vestmannaeyja. Flug til Vestmannaeyja klukkan 15:45 er í athugun. Innlent 27.12.2005 15:07
Eldur í bíl Eldur kom upp í metangasbíl á horni Miklubrautar og Lönguhlíðar rétt fyrir klukkan þrjú. Bílstjórinn var einn í bílnum og kom sér sjálfur úr bílnum áður en mikill eldur braust út. Útkallið kom um tíu mínútur í þrjú og gekk greiðlega að slökkva eldinn. En aðeins tók um fjórar mínútur að slökka eldinn. Innlent 27.12.2005 15:02
Annasamur dagur Nokkuð mikið hefur verið að gera hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins í sjúkraflutningum í dag. Slökkviliðið hefur farið tæplega fimmtíu sjúkraflutningaferðir það sem af er deginum. Á meðal degi ná flutningarnir ekki fimmtíu fyrr en um kvöldmatarleyti. Flutningarnir eru bæði vegna veikinda og einnig er nokkuð um að verið sé að flytja fólk á milli stofnana. Innlent 27.12.2005 14:50
Ljósmyndasýningin Eftir Tsunami opnuð í Smáralindinni í dag Ljósmyndasýningin Eftir Tsunami verður opnuð í Smáralindinni klukkan þrjú í dag. Á sýningunni eru myndir frá Indónesíu og Sri Lanka, sem teknar voru af Þorkeli Þorkelssyni ljósmyndara í september síðastliðnum, þegar níu mánuðir voru liðnir frá því að flóðbylgjan skall á löndum við Indlandshaf með þeim afleiðingum að hátt í 200 þúsund manns týndu lífi. Innlent 27.12.2005 14:39
Fá send flugeldagleraugu Blindrafélagið og Slysavarnarfélagið Landsbjörg senda öllum foreldrum 10 til 15 ára barna gjafabréf fyrir flugeldagleraugum. Um síðustu áramót urðu 9 augnslys, öll hjá strákum á aldrinum 9 til 18 ára en enginn þeirra var með flugeldagleraugu á sér. Innlent 27.12.2005 14:36
Gestur fer fram í prófkjöri Gestur Kr Gestsson býður sig fram í annað til þriðja sæti í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík sem fram fer nú í lok janúar. Innlent 27.12.2005 13:47
Fundur vegna úrskurðar kjaradóms Forsvarsmenn Alþýðusambandsins hitta Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á fundi klukkan tvö í dag vegna úrskurðar Kjaradóms um hækkun launa æðstu embættismanna ríkisins. Innlent 27.12.2005 12:33
Um 28.000 börn og unglingar fá send gjafabréf fyrir flugeldagleraugum í ár Blindrafélagið og Slysavarnarfélagið Landsbjörg senda í ár öllum 10 til 15 ára börnum og unglingum gjafabréf fyrir fulgeldagleraugum í samstarfi við Íslandspóst, Sjóvá og Prentsmiðjuna Odda. Með stuðningi þessa fyrirtækja fá tæplega 28.000 börn send gjafabréf fyrir flugeldagleraugum. Innlent 27.12.2005 10:16
Innanlandsflug liggur niðri vegna veðurs Allt innanlandsflug liggur niðri vegna veðurs og verður athugað fyrst með flug um klukkan 11 í dag. Einhver seinkun var á flugi til og frá landinu en er þó er allt á áætlun. Innlent 27.12.2005 09:57
Færð á vegum víðast hvar góð Færð er víðast hvar góð á landinu en talsvert hvassviðri er á Suðvesturlandi. Á Vestfjörðum og vestanverðu Norðurlandi er unnið að snjóhreinsun á vegum, meðal annars um Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði. Gert er ráð fyrir að nokkur hálka verði á því svæði í dag. Innlent 27.12.2005 09:22
Samið um rekstur gleraugnaverlsunar í FLE Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og Optical Studio hafa gert með sér samning um rekstur verslunar með gleraugu, sólgleraugu, linsur, fylgihluti með sjóntækjum og sjónmælingar. Það voru Kjartan Kristjánsson, eigandi Optical Studio og Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, undirrituðu samninginn. Viðskipti innlent 27.12.2005 09:16
Landsnet hf. kaupir flutningsvirki Landsnet hf. hefur keypt flutningsvirki þau sem voru í eigu Orkubús Vestfjarða, RARIK og Landsvirkjunnar. Söluverðið er 26,8 milljarðar króna og var það greitt með skuldabréfum og hlutabréfum en eignarhlutur Orkubús Vestfjarða er allur í hlutabréfaeign. Innlent 27.12.2005 08:04
Íþróttamaður Árborgar kjörinn 29. desember Íþróttamaður Árborgar verður kjörinn á uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar sem haldin verður næstkomandi fimmtudagskvöld í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi. Þá verða einnig veittar viðurkenningar og styrkjum úthlutað úr afreks- og styrktarsjóði sveitafélagsins. Alls eru tíu íþróttamenn tilnefndir til kjörsins. Innlent 27.12.2005 08:11
Rólegt hjá lögreglunni um allt land Rólegt var í umdæmum lögreglunnar um allt land þrátt fyrir aftakaveður víða um land. Engin meiriháttar óhöpp voru tilkynnt og er greinilegt að skemmtanaglaðir Íslendingar hafi tekið nóttinni rólega og má slá því föstu að veðrið hafi haft þar einhver áhrif. Einn maður var þó handtekinn á Akureyri fyrir ölvun og gistir hann nú fangageymslu. Innlent 27.12.2005 07:21
Fyrsti kynjaskipti leiksskólinn á Akureyri opnaður á næsta ári Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Margrét Pála Ólafsdóttir, framkvæmdarstjóri Hjallastefnunnar, hafa undirritað samning um rekstur leiksskólans Hólmasólar á Akureyri. Hólmasól verður fyrsti kynjaskipti leikskólinn á Akureyri. Innlent 27.12.2005 06:48
Óskar Bergsson tilkynnir um framboð í efsta sæti Framsóknarflokksins í Reykjavík Óskar Bergsson hefur tilkynnt um framboð í efsta sæti lista Framsóknarflokksins í Reykjavík. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Óskar kennir óvinsældum flokksforystunnar í ríkisstjórn um lítið fylgi flokksins í höfuðborginni. Þá segist hann hafa þess orðið var að flokksmönnum hafi líkað illa framboð Björns Inga Hrafnssonar í efsta sæti listans. Innlent 27.12.2005 06:37
Ófært vegna snjókomu Lögreglan á Blönduósi varar við því að ófært er um vegi í umdæmi lögreglunnar vegna mikillar snjókomu. Tvö umferðaróhöpp hafa orðið núna síðdegis en engin meiðsl á fólki. Innlent 26.12.2005 17:16
Ófært á Hrafnseyrarheiði og Lágheiði Hrafnseyrarheiði og Lágheiði eru ófærar vegna snjókomu samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hins vegar er greiðfært um Hellisheiði og um Þrengsli. Innlent 26.12.2005 15:34
Varað við stormi vestanlands Veðurstofan varar við stormi á Vesturlandi og miðhálendinu í nótt og fram eftir degi á morgun. Innlent 26.12.2005 13:44
Fá ekki mjólkurpeninga í nautgriparækt Það kemur ekki til greina að nautgriparæktendur fái hluta þeirra styrkja sem voru eyrnamerktir mjólkurframleiðendum í síðasta búvörusamningi, segir formaður Landssambands kúabænda. Að öðru leyti er hann reiðubúinn að ræða styrki þeim til handa. Innlent 26.12.2005 12:06