Innlent

Fréttamynd

Heróín ekki algengt hérlendis

Samkvæmt upplýsingum frá bæði SÁÁ og fíkniefnadeild Lögreglunnar í Reykjavík heyrir enn til undantekninga að fíklar hér á landi noti heróín og ekki virðist vera mikið um að efnið gangi kaupum og sölum á fíkniefnamarkaði.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta gervihnettinum í sérstöku ESB verkefni skotið á loft í morgun

Fyrsta gervihnettinum í sérstöku verkefni Evrópusambandsins var skotið á loft í Kazakstan í morgun. Verkefnið, sem gengur undir nafninu Galíleó, er sagt vera mótsvar Evrópu við GPS-staðsetningartækni Bandaríkjamanna sem byggist á móttöku merkja frá gervitunglum í sérstaka móttakara og staðsetur þá með mikilli nákvæmni í heiminum.

Erlent
Fréttamynd

440 hafnfirskir íþróttamenn unnið til Íslandsmeistaratitla á árinu

Alls hafa 440 hafnfirskir íþróttamenn unnið til Íslandsmeistaratitla á árinu í 20 greinum, átta hópar hafa unnið Bikarmeistaratitla og fjórir einstaklingar hafa orðið Norðurlandameistarar. Íþróttamaður Hafnarfjarðar 2005 verður krýndur í dag á viðurkenningarhátíð sem haldin verður í íþróttahúsinu við Strandgötu.

Sport
Fréttamynd

Penninn hf. gerir samning um rekstur verslunnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og Penninn hf. hafa gert samning um rekstur verslunnar undir nafni Eymundsson. Penninn hf. mun taka við sölu blaða, tímarita, bóka og annarra vara af Íslenskum markaði, en verslunin verður lögð niður í núverandi mynd þegar búið verður að gera samninga við nýja aðila um um rekstur verslanna með þá vöruflokka sem þar eru seldir í dag.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Varað við mikilli hálku á Lágheiði

Vegagerðin varar við mikilli hálku á Lágheiði en á Norðurlandi er víða nokkur hálka eða snjóþekja. Á Vesturlandi eru sumsstaðar hálkublettir, einkum á Snæfellsnesi en þar er éljagangur. Á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði er hálka og éljagangur. Víðast hvar eru vegir auðir á Vestfjörðum en þó er snjóþekja, hálka og hálkublettir á heiðum.

Innlent
Fréttamynd

Fuglalíf við Reykjavíkurtjörn í hættu

Andar- og kríustofnu við Reykjavíkurtjörn hefur hrakað mikið og hefur afkoma unga ekki verið verri frá því að mælingar hófust. Í skýrlsunni Fuglalíf tjarnarinnar eftir Ólaf K. Nilsen og Jóhann Óla Hilmarsson kemur fram að um mánaðarmótin júlí-ágúst hafi einungis 18 stokkandarungar verið á lífi og aðeins hafi fundist 15 kríuhreiður en engir ungar komust á legg.

Innlent
Fréttamynd

Atlanta segir upp 35 erlendum flugmönnum

Atlanta hefur sagt 35 flugmönnum upp vegna samdráttar og breytinga á flugflotanum. Samkvæmt fréttavef Morgunblaðsins eru flugmennirnir flestir erlendir og ráðnir í gegnum áhafnaleigur, en fastráðnir og innlendir flugmenn missa ekki vinnuna. Áformað er að fjölga flugmönnum á ný á næsta ári.

Innlent
Fréttamynd

Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist milli ára

Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist á milli ára en ef litið er til fyrstu ellefu mánaða ársins nema nettókaup innlendra aðila á erlendum verðbréfum 105 milljörðum króna. Þetta er umtalsverð aukning miðað við sama tímabil síðasta árs, en þá námu nettókaup á erlendum verðbréfum 65,4 milljörðum krónan. Samkvæmt Vegvísi greiningardeildar Landsbankans má rekja stóraukinn áhuga innlendra aðila á erlendum verðbréfum að hluta til til styrkingar krónunnar á árinu.

Innlent
Fréttamynd

Tólf létust í sprengingu í vopnaverslun í Venesúela

Að minnsta kosti tólf létust þegar eldur kom upp í vopnaverslun í suðausturhluta Venesúela í gær. Þegar eldurinn kom upp varð mikil sprenging í versluninni með fyrrgreindum afleiðingum. Talið er að nokkuð magn flugelda hafi verið geymt í versluninni. Fimm verslanir í nágrenninu urðu fyrir töluverðu tjóni við sprengingunna. Hugsanlegt er að mannfallið hafi verið nokkru meira og herma sumar fregnir að allt að átján hafi látist.

Erlent
Fréttamynd

Mótmæla fyrirhuguðu framboði í þingkosningunum í Palestínu

Stuðningsmenn Fatah-flokksins í Palestínu mótmæltu í gærkvöldi því að sumir eldri og reyndari áhrifamenn innan flokksins hafa hótað að kljúfa flokkinn og bjóða fram nýtt framboð í fyrirhuguðum þingkosningum. Deilurnar innan Fatah eru til talsverðra vandræða fyrir Mahmoud Abbas forseta heimastjórnar Palestínumanna sem reynir nú hvað hann getur til að sameina fylkingar innan flokksins fyrir kosningarnar.

Erlent
Fréttamynd

Björgólfur maður ársins í íslensku viðskiptalífi

Björgólfur Thor Björgólfsson er maður ársins samkvæmt dómnefnd Markaðarins, viðskiptablaði Fréttablaðsins. Björgólfur þykir hafa verið fremstur meðal íslenskra viðskiptamanna í ár. Aðrir íslenskir viðskiptamenn sem komust á blað á eftir Björgólfi voru Pálmi Haraldsson, bræðurnir í Bakkavör og Jón Ásgeir Jóhannsson.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í íbúð á Grenimel

Slökkviliðið var kallað út vegna elds í íbúð á Grenimel í Reykjavík upp úr klukkan fimm í morgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en eldri hjón sem voru sofandi í íbúðinni voru flutt á slysadeild vegna.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur á Akureyri

Kona var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt norðan við Akureyri um klukkan átta í gærkvöld. Í öðrum bílnum var kona ásamt tveimur börnum og var hún flutt á Fjórðungssjúkrahúsið og er hún hugsanlega beinbrotin. Börnin sakaði ekki. Í hinum bílnum var aðeins ökumaður og kvartaði hann undan eymslum undan bílbeltinu.

Innlent
Fréttamynd

Stuðningur við landbún­að gæti minnkað mikið

Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri í land­bún­aðar­ráðuneytinu, segir fyrir­séð að sam­þykkt­ir á vegum Alþjóða­við­skipta­stofnunar­innar kalli á breyt­ing­ar á landbúnaðarkerfinu. Hann segir skýrast með vor­inu hverjar þær kunni að verða, en býst við helm­ings­niðurskurði í innan­landsstuðningi við land­búnað. Úr­lausn erfiðra álitamála var frestað til aprílloka á fundi Alþjóðavið­skipta­stofn­un­ar­inn­ar í Hong Kong. Guð­mundur leiðir viðræður fyrir hönd landbúnaðarráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Aukin kaup á erlendum verðbréfum

Kaup á erlendum verðbréfum hafa aukist á milli ára en ef litið er til fyrstu ellefu mánaða ársins nema nettókaup innlendra aðila á erlendum verðbréfum 105 milljörðum króna. Þetta er umtalsverð aukning miðað við sama tímabil síðasta árs, en þá námu nettókaup á erlendum verðbréfum 65,4 milljörðum krónan.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnarandstaðan setur fyrirvara við væntanlega endurskoðun Kjaradóms

Stjórnarandstaðan styður að hálfu leyti þá ákvörðun Halldórs Ásgrímssonar að skipa Kjaradómi að endurskoða ákvörðun sína varðandi laun þjóðkjörinna fulltrúa. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vill aðkomu Alþingis að málinu og Ögmundur Jónasson vill einnig sjá endurskoðun á launum dómara.

Innlent
Fréttamynd

Siglfirðingar geta skellt sér skíði

Siglfirðingar gátu skellt sér á skíði í dag en opið var á skíðasvæði Siglfirðingar í Skarðsdal milli eitt og fjögur í dag. Stefnt er að því að hafa skíðasvæðið opið út vikuna ef veður leyfir.

Innlent
Fréttamynd

Harður tveggja bíla árekstur

Kona var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt norðan við Akureyri nú um klukkan átta í kvöld. Í öðrum bílnum var kona ásamt tveimur börnum og var hún flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og er hún hugsanlega beinbrotin.

Innlent
Fréttamynd

Öldruð kona finnst látin

Tæplega áttræð kona fannst látin á heimili sínu í Vesturbænum á aðfangadag. Að sögn lögreglu er ekki hægt að segja til um hversu langt er síðan konan lést fyrr en að krufningu lokinni en ljóst sé að það hafi verið fyrir þó nokkru. Það voru nágrannar konunnar sem kölluðu til lögreglu þegar torkennileg lykt var farin að berast frá íbúðinni.

Innlent
Fréttamynd

Fimm fluttir til skoðunar eftir árekstur

Fimm voru fluttir á Heilsugæsluna í Snæfellsbæ til skoðunar eftir árekstur tveggja bíla á Snæfellsvegi rétt austan Ólafsvíkur um hálf fimmleytið í dag. Engin er þó alvarlega slasaður en tveir voru sendir í nánari skoðun á slysadeild Landspítala-Háskólasjúkrahús. Um var að ræða sendibíl og fólksbíl en var sendibíllinn kyrrstæður þegar slysið átti sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Auglýsingaiðnaðurinn sameinast um sjóð til stuðnings góðum málefnum

Auglýsingaiðnaðurinn hefur sameinast um sjóð sem hefur það markmið að styðja góð málefni í samfélaginu á markvissan hátt með afli auglýsinga. Sjóðurinn ber nafnið AUGA – auglýsingar, afl til góðra verka. Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum í sjóðinn með auglýsingum í dagblöðum.

Innlent
Fréttamynd

Plata Helga Björnssonar í mörgum pökkum

Einn kaupandi var af fjórum af hverjum tíu plötum Helga Björnssonar fyrir jólin. Kaup stórfyrirtækja á diskum og bókum skekkja myndina þannig að sölutölur lýsa ekki endilega vinsældum listamannanna. Í raun er helst að marka lista sem tekinn er saman um plötur sem seldar eru yfir búðarborðið.

Innlent
Fréttamynd

Endurskoða þarf úrskurð

Mál málanna er ósk stjórnvalda um að kjaradómur endurskoði úrskurð sinn um laun ráðamanna á Íslandi. Formaður kjaradóms vill ekki tjá sig um beiðni stjórnvalda um að dómurinn endurskoði ákvörðun sína um laun forseta, ráðherra og þingmanna en kjaradómur mun fjalla um beiðnina á morgun. Þingmenn bæði stjórnar og stjórnarandstöðu telja að kalla hefði átt Alþingi saman.

Innlent
Fréttamynd

Útsölur strax byrjaðar

Nokkuð var um að verslanir væru lokaðar í dag enda margir verslunarmenn þreyttir eftir mikla törn í desember. Útsölur hófust í örfáum búðum í dag en ekki þó í Kringlunni, þar sem húsreglur segja að ekki megi hefja útsölur fyrr en þriðja janúar.

Innlent
Fréttamynd

Eldur kom upp í metangasbíl í annað sinn á skömmum tíma

Ökumaður bílsins var á leið vestur Miklubraut þegar hann sá eldglæringar undan bílnum. Slökkviliðið var í nágrenninu og tók því skamma stund að koma á staðinn og gekk slökkvistarf greiðlega. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem eldur kemur upp í metangas bíl en í september þá kom eldur upp í slíkum bíl og voru báðir bílarnir framleiddir af Citroen.

Innlent
Fréttamynd

Fundust látin

Maður á fimmtugsaldri og kona á fertugsaldri fundust látin í íbúð sem þau leigðu á Frakkastíg í Reykjavík eftir hádegi í dag. Talið er víst að þau hafi látist af ofneyslu eiturlyfja.

Innlent
Fréttamynd

Flogið á alla staði innanlands

Innanlandsflug er að komið í samt lag eftir að hafa legið niðri í allan morgun. Lengst af var ófært til Vestmannaeyja en farið var að fljúga þangað aftur nú um fimm leytið.

Innlent