Innlent
Augnslys og brunasár algengustu flugeldaslysin Um hver áramót verður að jafnaði um tugur slysa þar sem óvarlega er farið með flugelda. Slysin eru misalvarleg en slys á augum og brunasár eru algengust. Innlent 28.12.2005 22:00
Til í að endurskoða forsendurnar Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segir flokk sinn reiðubúinn að taka þátt í nefndarstörfum þar sem farið er yfir lög um kjaradóm. Innlent 28.12.2005 21:04
Ósáttur við niðurstöðu kjaradóms Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, er ósáttur við niðurstöðu kjaradóms. Hann telur niðurstöðuna óábyrga. Halldór ætlar að skipa nefnd sem fulltrúar allra stjórnmálaflokka eiga fulltrúa í og mun sú nefnd fara yfir málið. Innlent 28.12.2005 20:53
Langeðlilegast að Alþingi taki nú á málinu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir að niðurstaða Kjaradóms komi sér ekki á óvart. Kjaradómi sé mikill vandi á höndum eftir skilaboðin sem hann fékk frá forsætisráðherra. Ingibjörg telur langeðlilegast að Alþingi taki á málinu. Skoða verði þær forsendur sem kjaradómi er uppálagt að fara eftir. Innlent 28.12.2005 20:45
Flökkusagan um kettlinga í þvottavélum sönn Flökkusagan um kettlinga sem lenda í þvottavélum með skelfilegum afleiðingum er ekki bara sönn, heldur gerist þetta bara nokkuð oft. Dýralæknir segir nauðsynlegt að kattaeigendur hugi vel að því að Keli litli eða Snúlla séu víðsfjarri þegar þvottavélin er sett í gang. Innlent 28.12.2005 20:34
Setur ríkisstjórnina í talsverðan vanda "Þetta kemur mér talsvert í opna skjöldu," segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins, um þá niðurstöðu Kjaradóms að úrskurður hans um laun kjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna frá 19. desember skuli standa óbreyttur. "Þetta setur ríkisstjórnina í talsverðan vanda." Innlent 28.12.2005 20:39
Úrskurður Kjaradóms stendur Úrskurður Kjaradóms um launahækkanir þingmanna, ráðherra og embættismanna frá 19. desember stendur óbreyttur. Þetta er niðurstaðan af fundi Kjaradóms síðla dags en Kjaradómur var kallaður saman að beiðni forsætisráðherra sem vildi að dómurinn færi aftur yfir forsendur úrskurðar síns. Innlent 28.12.2005 19:58
Risaborar að Kárahnjúkum allir farnir að snúast Risaborarnir þrír í Kárahnjúkavirkjun eru nú allir farnir snúast og boruðu þeir samtals sjötíu metra í gær. Haldi þeir þessum afköstum mun takast að klára þá fimmtán kílómetra sem eftir eru á tilsettum tíma fyrir næsta haust. Innlent 28.12.2005 18:50
Ólga innan VG í Kópavogi eftir forval Ólga er innan Vinstri grænna í Kópavogi eftir forval flokksmanna í nóvember síðastliðnum. Þorleifur Friðriksson, sem laut í lægra haldi í baráttunni um efsta sætið, sakar keppinaut sinn um að smala langt út fyrir bæjarmörkin. Slíkt er hins vegar heimilt samkvæmt lögum flokksins, en stuðningsmenn hans hóta engu að síður úrsögn og hafa rætt við Samfylkingarmenn í bænum um að ganga til liðs við þá. Innlent 28.12.2005 18:47
Mannréttindadómstóll vísar máli Kjartans frá Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vísað frá máli Kjartans Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, vegna dóms Hæstaréttar Íslands. Kjartan skaut málinu til mannréttindadómstólsins eftir að Sigurður G. Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og þáverandi framkvæmdastjóri Norðurljósa, var sýknaður í meiðyrðamáli. Innlent 28.12.2005 18:39
Kjaradómur hefur komist að niðurstöðu Kjaradómur hefur komist að niðurstöðu varðandi beiðni forsætisráðherra um að dómurinn endurskoði úrskurð sinn varðandi laun kjörinna fulltrúa landsins. Þetta tilkynnti Garðar Garðarsson, formaður dómsins, í fréttum NFS fyrir stundu. Niðurstaðan verður nú kynnt forsætisráðherra áður en fjölmiðlar fá að vita hana. Innlent 28.12.2005 18:33
Borgarstjóri fundar með FL á föstudag Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, fundar með forystumönnum Félags leikskólakennara á föstudaginn kemur. Þar verur fjallað um stöðuna sem upp er komin í launamálum leikskólakennara í kjölfar nýgerðra kjarasamninga borgarinnar við Eflingu og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Innlent 28.12.2005 17:56
Halda ráðstefnu um menningu í fangelsum Fangelsismálayfirvöld á Norðurlöndum hafa fengið um 900.000 krónur í styrk frá Norræna menningarsjóðnum til að halda fangelsismenntaráðstefnu þar sem fjallað verður um menningu í fangelsum. Ráðstefnan verður haldin í maí á næsta ári á Selfossi. Innlent 28.12.2005 17:35
Vatnsleki í Hafnarfirði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um hádegið í dag vegna vatnsleka í kjallaraíbúð í Hafnarfirði. Stíflað niðurfall í nágrenni íbúðarinnar olli því að vatn safnaðist fyrir og lak inn í íbúðina. Vel gekk að hreinsa upp vatnið og er tjón af völdum þess ekki talið mikið. Innlent 28.12.2005 17:11
Fundur Kjaradóms að hefjast Kjaradómur hyggst koma aftur saman nú um klukkan hálfsex að ræða beiðni forsætisráðherra um endurskoðun úrskurðar um launahækkanir þjóðkjörinna fulltrúa. Innlent 28.12.2005 17:15
3,2 milljónir til baráttunnar gegn mansali Utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja 3,2 milljónum króna til baráttunnar gegn mansali á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2005 voru fjórar milljónir króna til ráðstöfunar til stuðnings verkefnum á sviði mannréttindamála og hafði 800 þúsund krónum áður verið ráðstafað til Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. Innlent 28.12.2005 17:09
Aflamark úthafsrækju verði 10 þúsund tonn Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hefur í samræmi við tillögu Hafrannsóknastofnunar, ákveðið að heildaraflamark úthafsrækju á fiskveiðiárinu 2005-2006 verði 10 þúsund tonn, en það er sama og lagt var til til bráðabirgða í upphafi sumars. Innlent 28.12.2005 16:50
Éljagangur á Suðvesturlandi Éljagangur er á Suðvesturlandi, um Snæfellsnes og Vestfirði. Víða er hálka á vegum á þessu svæði eftir því sem Vegagerðin greinir frá. Á Holtavörðuheiði er hálka, skafrenningur og nokkuð hvasst. Á Vestfjörðum er ófært um Dynjandisheiði og Hrafseyrarheiði. Skafrenningur er víða á vegum á Vestfjörðum, einkum á heiðum. Innlent 28.12.2005 16:42
Um 184 þúsund í Húsdýragarðinn á árinu Aðsókn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn var ofan við meðaltalið í ár eftir því sem Einar Karlsson, markaðsstjóri garðsins, segir. Alls sóttu um 184 þúsund manns garðinn en rysjótt veðurfar í júní og ágúst setti strik í reikninginn. Innlent 28.12.2005 16:31
Jón Atli tilnefndur til Norrænu leikskáldaverðlaunanna Leiklistarsamband Íslands hefur tilnefnt Jón Atla Jónasson leikskáld til Norrænu leikskáldaverðlaunanna 2006, fyrir leikverkið BRIM sem Vesturport sýndi. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi á Litla sviði Þjóðleikhússins á fimmta tímanum. Innlent 28.12.2005 16:25
Fjögur tilboð í úttekt á Reykjavíkurflugvelli Fjögur tilboð bárust í rekstrar- og skipulagslega úttekt á Reykjavíkurflugvelli að sögn Helga Hallgrímssonar, formanns samráðsnefndar um úttekt á Reykjavíkurflugvelli. Nefndin vinnur að því að samningar náist á milli Reykjavíkurborgar og samgönguráðuneytisins um skipulag Vatnsmýrarinnar. Innlent 28.12.2005 15:43
UVG í Reykjavík lýsir yfir stuðningi við samninga Stjórn Ungra vinstri grænna í Reykjavík lýsir yfir afdráttarlausum stuðningi og ánægju með þá kjarasamninga sem Reykjavíkurborg gerði nýverið við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Eflingu, þar sem lægstu laun voru hækkuð. Innlent 28.12.2005 15:28
Dró aflvana bát til Siglufjarðar Björgunarbáturinn Sigurvin frá Siglufirði var kallaður út laust fyrir klukkan níu í morgun vegna aflvana báts á firðinum. Þar var á ferðinni dragnóta- og netabáturinn Guðrún Jakobsdóttir EA 144 sem gerður er út frá Dalvík en var á leið til dragnótaveiða á Skagafirði. Innlent 28.12.2005 15:19
Breytingar á reglugerð skila sveitarfélögum 600 milljónum Breytingar sem gerðar hafa verið á reglugerð um fasteignaskatt skila sveitarfélögunum 600 milljónum króna á ári í auknum tekjum frá ríkinu þegar þær koma að fullu til framkvæmda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Með breytingunu hefur undanþágum frá greiðslu fasteignaskatts fækkað verulega og þær nýju fasteignir sem nú verða skattskyldar eru flestar í eigu ríkissjóðs. Umræddar eignir verða í sérstökum gjaldflokki er nefnist b-flokkur. Innlent 28.12.2005 14:53
Meðalaldur íbúa í Broddaneshreppi á Stöndum tæp 52 ár Meðalaldur íbúa Broddaneshrepps á Stöndum er hugsanlega sá langhæsti á landinu í einum hreppi samkvæmt útreikningum fréttavefjarins Strandir.is. Meðalaldur íbúanna er tæp 52 ár í lok árs, ef miðað er við þá einstaklinga sem eiga lögheimili í hreppnum samvkæmt tölum Hagstofu Íslands frá 1. desember síðastliðnum. Innlent 28.12.2005 13:08
Skýrsla um reynslu flóttamanna kynnt á morgun Á Íslandi hefur verið tekið við ríflega 450 flóttamönnum síðan árið 1956 en þá kom fyrsti hópurinn frá Ungverjalandi eftir að Sovétmenn réðust inn í landið. Innlent 28.12.2005 12:40
Lítið um skil á jólabókum Bókasala var jöfn og góð fyrir jólin að sögn bóksala. Lítið hefur verið um skil á bókum enn sem komið er en flestar bókaverslanir taka við bókum fram yfir áramót. Innlent 28.12.2005 12:07
Halda prófkjör vegna sveitarstjórnarkosninga Sjálfstæðisflokkurinn á Fljótsdalshéraði hefur ákveðið að halda prófkjör þann 4. og 5. febrúar vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor. Alls hafa borist framboð frá níu einstaklingum. Innlent 28.12.2005 11:19
Innheimtufyrirtæki sameinast Innheimtufyrirtækin AM-Kredit og Premium hafa komist að samkomulagi um samruna. Fimm sparisjóðir eiga hlut í sameinuðu fyrirtæki. Fyrirtækið mun áfram sinna innheimtuþjónustu en einnig leggja áherslu á að fjármagna viðskiptakröfur. Viðskipti innlent 28.12.2005 11:14
Landspítalinn stendur sig ágætlega Stjórnendum Landspítala-háskólasjúkrahúss hefur gengið allvel að halda niðri kostnaði við rekstur spítalans undanfarin ár. Spítalinn stendur ágætlega í samanburði við breska spítala þegar litið er til afkasta og gæða. Innlent 28.12.2005 10:43