Innlent
Hálka og skafrenningur á Suðvesturlandi Það er hálka og skafrenningur á Hellisheiði og í Þrengslum en víða hálkublettir á Suðurlandi og Reykjanesi samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Á Vesturlandi eru víðast hvar hálkublettir eða jafnvel hálka. Á Holtavörðuheiði er hálka og skafrenningur. Innlent 3.1.2006 11:51
Hefur áhyggjur af vaxandi launamisrétti Stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði lýsir yfir áhyggjum af vaxandi launamisrétti í landinu. Í álytkun sem samþykkt var á fundi hennar segir að bilið aukist stöðugt milli þeirra sem vinna á umsömdum launatöxtum og hinna sem taka laun eftir ákvörðunum stjórna fyrirtækja eða fá laun sín ákvörðuð eftir öðrum leiðum, s.s. kjaradómi eða kjaranefnd. Innlent 3.1.2006 11:28
Hagstofustjóri verður formaður matvælanefndar Hallgrímur Snorrason, hagstofustjóri, verður formaður nefndar sem ætlað er að stuðla að lækkun matarverðs á Íslandi. Forsætisráðherra boðaði skipan slíkrar nefndar í áramótaávarpi sínu á gamlárskvöld. Innlent 3.1.2006 11:11
Mótmæla harðlega hækkun á fargjöldum Strætós Stjórn ungra vinstri grænna í Reykjavík mómælir harðlega allt að 13,6 prósenta hækkun á fargjöldum Strætós um áramótin. Þetta gangi þvert á stefnu þeirra í umhverfis- og samgöngumálum. Þeir benda á sem fýsilegan kost að allri gjaldtöku verði hætt af ungmennum, námsmönnum, eldri borgurum og öryrkjum. Innlent 3.1.2006 08:57
Bensín hækkar hjá stóru olíufélögunum Bensínlítrinn hækkaði um eina krónu og fimmtíu aura hjá stóru olíufélögunum þremur í gær og kostar nú tæpar 110 krónur miðað við fulla þjónustu. Félögin bera öll við hækkandi heimsmarakðsverði. Lítrinn af dísillolíu er kominn upp í tæpar 108 krónur. Innlent 3.1.2006 08:42
Fundu eitt kíló af hassi Rúmlega kíló af hassi fannst við húsleit í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Hassið tilheyrir karlmanni sem var handtekinn á Gamlársdag og úrskurðaður í gæsluvarðhald en síðan þá hefur verið gerð leit í fjölda húsa í Vestmannaeyjum. Innlent 3.1.2006 09:03
Slapp ómeiddur þegar eldur gaus upp í jeppa Ökumaður, sem var einn á ferð í jeppa sínum, slapp ómeiddur, þegar eldur gaus upp í bílnum í Eyjafirði í gærkvöldi. Þegar eldurinn kom upp missti ökumaður stjórn á bílnum, sem hafnaði utan vegar, en þar komst maðurinn út. Innlent 3.1.2006 07:01
Lægra verð en áður hefur þekkst Íslensk ferðaskrifstofa býður nú ferðir til Kanaríeyja í tvær vikur á tæpar tuttugu og sex þúsund krónur á manninn. Framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar segir þetta mögulegt vegna samstarfs við erlenda ferðaskrifstofu. Hann segir fólk ekki þurfa að óttast óvenju mikið samneyti við skordýr eða skemmtanaglaða sígauna, þrátt fyrir hið lága verð. Innlent 3.1.2006 01:13
Kríum fjölgar um nær helming Kríum hefur fjölgað mjög á Seltjarnarnesi hin síðari ár samkvæmt könnun Jóhanns Óla Hilmarssonar fuglafræðings. Rúmlega 4.500 kríupör eru á Seltjarnarnesi og hefur þeim fjölgað um 43 prósent frá árinu 2003. Innlent 3.1.2006 06:25
Jeppi og fólksbíll skullu saman á Kjalarnesi Fólksbíll og jeppi skullu saman á Kjalarnesi um fimmleytið í gær með þeim afleiðingum að jeppinn valt. Kona var flutt á slysadeild en ekki er talið að um alvarleg meiðsl á fólki hafi verið að ræða. Það tók um hálftíma að klippa bílstjóra jeppabifreiðarinnar úr flakinu. Innlent 3.1.2006 06:59
Ættu að reka stjórnarformanninn Hluthafar í FL Group ættu að reka stjórnarformann fyrirtækisins fyrir að gera nærri 300 milljóna króna starfslokasamninga við tvo fyrrum forstjóra fyrirtækisins, þau Ragnhildi Geirsdóttur og Sigurð Helgason, segir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Innlent 3.1.2006 06:41
Svifryksmengun langt yfir heilsuverndarmörk á nýársnótt Svifryksmengun fór langt yfir heilsuverndarmörk í Reykjavík á nýársnótt, samkvæmt mælingum Umhverfissviðs borgarinnar. Yfirleitt er mengunin mest fyrst upp úr miðnætti, en nú var hún yfir hættumörkum alveg til morguns. Þetta er mun meiri mengun er mældist á sama tíma fyrir ári og árið þar áður. Innlent 3.1.2006 06:57
Eldur í bílskúr í Grafarvogi Eldur kviknaði í bílskúr við parhús í Grafarvogi um fjögurleytið í nótt og var slökkviliðið kvatt á vettvang. Þegar það kom logaði í skúrnum en eldurinn var slökktur á nokkrum mínútum. Skemmdir urðu á ýmsum munum, sem þar eru geymdir, og húsið fylltist af reyk, sem þurfti að ræsta út. Engum varð þó meint af og eru eldsupptök ókunn. Innlent 3.1.2006 06:55
Sveitarstjórnarmenn skilja loks alvarleika málsins Formaður Félags leikskólakennara leggur traust sitt á vinnuhóp um bætt kjör leikskólakennara og telur að vinna hans leiði til launahækkana og að leikskólakennarar hætti við að segja upp störfum. Vinnuhópurinn verður boðaður til fundar síðar í vikunni. Innlent 2.1.2006 20:13
Gleymdist að loka bensínloki Sjúkraflug á Vestfirði dróst úr hömlu á nýársnótt, meðal annars vegna þess að það gleymdist að loka bensínloki á sjúkraflugvélinni. Innlent 2.1.2006 19:07
Tómas í fríi frá störfum sínum á Landspítalanum Tómas Zoega geðlæknir, sem vann mál í Héraðsdómi fyrir helgi sem hann höfðaði gegn Landspítalanum fyrir að færa hann úr starfi yfirlæknis í starf sérfræðilæknis, er kominn í frí. Þegar fréttastofan spurði eftir Tómasi á Landspítalanum nú síðdegis fengust þau svör að hann yrði í fríi næstu þrjár vikurnar. Innlent 2.1.2006 17:14
Fjöldi banaslysa talsvert undir meðaltali Nítján létust í sextán banaslysum hér á landi á síðasta ári, þrettán karlar og sex konur. Það er talsvert færra en þeir sem látist hafa að meðaltali á síðastliðnum fimm árum. Innlent 2.1.2006 15:19
Vestfirðingar telja Sturlu Böðvarsson hafa staðið sig best Vefritið Skessuhorn framkvæmdi könnun á vef sínum um miðjan desember. Spurt var að því hvaða þingmaður NV kjördæmis hefði staðið sig best á árinu. Niðurstaðan varð sú að flestir völdu Sturlu Böðvarsson, eða 29,7%. Í öðru sæti varð Kristinn H Gunnarsson með 22,9%, þá Einar K Guðfinnsson með 9,7% og Sigurjón Þórðarson með 8,6%. Í réttri röð þar á eftir komu Jón Bjarnason, Guðjón A Kristinsson, Jóhann Ársælsson, Magnús Stefánsson, Einar Oddur Kristjánsson og Anna Kristín Gunnarsdóttir. Innlent 2.1.2006 14:02
Hlaut varanlegan augnskaða af völdum flugelds Pilturinn sem fékk flugeld í andlitið á Tálknafirði á gamlárskvöld liggur enn á augndeild Landspítalans og mun vera þar næstu daga að sögn vakthafandi læknis. Pilturinn er með töluverða áverka á hægra auga og ljóst er að hann mun ekki fá fulla sjón á því auga aftur. Innlent 2.1.2006 13:43
Saga Boutique Icelandair gerir samning við Flugstöðina Saga Boutique Icelandair og Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. hafa gert með sér samning um rekstur verslunar með dömu- og herrafatnað, skó og fylgihluti. Lögð verður áhersla á þekkt vörumerki s.s. Boss, Burberry, Sand, Wolford og Lacoste auk þess sem fatnaður eftir íslenska hönnuði mun standa til boða í versluninni. Innlent 2.1.2006 13:39
Draga uppsagnir líklega til baka Þeir tólf leikskólakennarar sem sögðu upp störfum á leikskólanum Sólbrekku á Seltjarnarnesi á fimmtudaginn síðasta munu að öllum líkindum draga uppsagnir sínar til baka, að sögn Ásdísar Þorsteinsdóttur aðstoðarleikskólastjóra. Innlent 2.1.2006 13:35
Nokkur erill hjá lögreglu í Árnessýslu um áramótin Nokkur erill var hjá lögreglu í Árnessýslu þessi áramót, en frá hádegi á gamlársdags að miðnætti nýársdags voru skráð 27 verkefni hjá lögreglunni eftir því sem fram kemur í dagbók hennar. Stærsta verkefnið var stórbruninn í húsi Hjálparsveitar skáta í Hveragerði upp úr hádegi á gamlársdag. Innlent 2.1.2006 12:29
Segir vakt hafa verið í Reykjavík til miðnættis Rúnar Árnason, framkvæmdastjóri Landsflugs, vill taka fram að þótt sjúkravél félagsins hafi verið flogið frá Ísafirði á hádegi á gamlársdag, hafi verið vakt í Reykjavík til að sinna sjúkaraflugi vestur, alveg til miðnættis, en útkallið kom rétt eftir miðnætti. Þá átti Mýflug að hafa tekið við. Innlent 2.1.2006 13:06
Flughált frá Súðavík í Ögur og um Eyrarfjall Flughált er á Vestfjörðum frá Súðavík í Ögur og um Eyrarfjall samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Hálka er á Steingrímsfjarðarheiði, hálkublettir eru á Ströndum og á sunnanverðum Vestfjörðum er hálka og hálkublettir. Innlent 2.1.2006 12:18
Séreignasparnaður skerðir lífeyrisgreiðslur Séreignarsparnaður er dreginn frá lífeyrisgreiðslum og skerðir tekjutryggingaraukann. Lagabreytingu þarf til að koma í veg fyrir skerðinguna, segir Kristinn H. Gunnarsson, formaður stjórnar Tryggingastofnunar. Innlent 2.1.2006 11:45
Falun Gong liðar vilja bætur frá ríkinu Þeir Falun Gong liðar sem meinað var að koma til landsins þegar Jiang Zemin, forseti Kína, kom í heimsókn fyrir um þremur árum krefja íslenska ríkið um bætur vegna málsins og vilja fá þann lista yfir Falun Gong iðkendur sem íslensk stjórnvöld höfðu til grundvallar. Innlent 2.1.2006 12:06
Virðist hafa hætt sjúkraflugi of snemma Landsflug virðist hafa hætt sjúkraflugsþjónustu sinni á Vestfjörðum of snemma og Mýflug tekið of seint við henni með þeim afleiðingum að óeðlilega langan tíma tók að útvega sjúkraflugvél frá Flugfélagi Íslands á nýársnótt. Innlent 2.1.2006 12:01
Harður árekstur í Njarðvík í gær Allharður árekstur varð í gærkvöld í Njarðvík á mótum Holtsgötu og Gónhóls. Þar rákust saman tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að önnur þeirra hafnaði inni í húsgarði og skemmdi þar þriðju bifreiðina í innkeyrslu. Einn var fluttur á sjúkrahús en hlaut ekki alvarlega áverka. Viðkomandi kvartaði þó undan verkjum í hnjám og baki. Innlent 2.1.2006 11:00
Leikskólagjöld í Reykjavík lækka nú um áramótin Leikskólagjöld í Reykjavík lækkuðu nú um áramót sem nemur tveggja stunda gjaldfrjálsri vistun eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá borgarstjóra. Innlent 2.1.2006 09:55
Eimskip tekur við rekstri Herjólfs Vestmannaeyjaferjan Herjólfur fer fyrstu ferð sína á þessu ári í dag samkvæmt nýju leiðakerfi, eftir að Eimskip tók við rekstrinum um áramótin. Ferðum hefur verið fjölgað í tvær á dag nema hvað ein ferð verður farin einstaka hátíðisdaga. Innlent 2.1.2006 07:41