Innlent
Heppilegra að bíða með aðgerðir Það er betra að fara hægar en hraðar þegar kemur að því að heimila hjónavígslu samkynhneigðra, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að fólk verði að gefa sér tíma til að ræða málið út frá öllum hliðum áður en lengra sé haldið. Innlent 5.1.2006 14:09
Kallar eftir þjóðarsátt um að hækka lægstu laun Ármann Kr. Ólafsson, forseti bæjarstjórnar Kópavogs, kallar eftir þjóðarsátt um að hækka lægstu launin fyrir launamálaráðstefnu sveitarfélaganna sem halda á 20. janúar næstkomandi. Hann segir minni sveitarfélög ekki þola að launahækkanir verði jafnmiklar yfir alla línuna. Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi gagnrýnir bæjarstjórnina fyrir að grípa ekki strax í taumana til þess að koma í veg fyrir frekari uppsagnir á leikskólum bæjarins. Innlent 5.1.2006 14:02
Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir karlmanni vegna fíkniefnabrota. Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók manninn á Gamlársdag og hefur lagt hald á um 1,5 kíló af hassi auk annarra fíkniefna og peninga. Innlent 5.1.2006 13:56
Innflutningurinn nam 285 milljörðum Íslendingar fluttu inn vörur fyrir 23 milljarða króna í síðasta mánuði samkvæmt bráðabirgðatölum um innheimtu virðisaukaskatts. Það er fimm milljörðum minna en í nóvember þegar fluttar voru inn vörur fyrir 28 milljarða, meira en í nokkrum öðrum mánuði síðasta árs. Alls voru fluttar inn vörur fyrir 285 milljarða króna í fyrra. Innlent 5.1.2006 13:28
Hægt að lækka matvælaverð Hægt er að lækka matvælaverð á Íslandi með því að afnema tolla og höft á innfluttum matvælum, að mati aðjúnkts við Háskólann í Reykjavík. Hann segir einnig að matvælaverð myndi lækka ef Íslandi gengi í Evrópusambandið. Þetta kom fram á fundi Samtaka verslunar og þjónustu og Félags viðskipta- og hagfræðinga í morgun. Innlent 5.1.2006 13:14
Fjölga ferðum vegna hláku Flutningafyrirtækin sem annast landflutninga hafa orðið að fjölga ferðum og aka með hálftóma bílana, eftir að Vegagerðin greip í gær til þess ráðs að setja þungatakmarkanir á vegi víða um land til að verja þá skemmdum í hlákunni. Innlent 5.1.2006 12:01
Fjármálaeftirlitið líklega vanhæft Sigurður G. Guðjónsson lögmaður segir að ekki hafi myndast nýr virkur eignarhlutur á aðalfundi Sparisjóðs Hafnarfjarðar í fyrra, það hafi einungis verið vel heppnuð stjórnarbylting. Vafasamt sé að Fjármálaeftirlitið sé hæft til að fjalla um málið og að því hafi verið tilkynnt um væntanlegt stjórnarframboð fyrir aðalfundinn. Innlent 5.1.2006 12:50
Hornfirðingar kaupa í flugfélagi Hópur Hornfirðinga hefur keypt 10% hlut í eignarhaldsfélaginu City Star sem á og rekur flugfélag í Skotlandi og Landsflug sem flýgur meðal annars milli Reykjavíkur og Hornafjarðar. Forsvarsmaður fjárfestahópsins segir kaupin opna fyrir möguleika á leiguflugi frá Hornafirði til borga í Evrópu. Innlent 5.1.2006 12:12
Vinstri-grænir fordæma bæjaryfirvöld Vinstri-grænir í Kópavogi lýsa þungum áhyggjum vegna stöðu leikskólamála í bænum í ályktun sem þeir hafa sent frá sér. Þar segir að bæjaryfirvöld hafi þubast við og ekkert gert til að leysa vandann þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir starfsfólks og foreldra. Innlent 5.1.2006 11:47
Beiðni um ógildingu framsals vísað frá dómi Hæstiréttur hefur vísað frá kröfu albansks karlmanns sem grunaður er um manndráp í Grikklandi á jóladag 2004 um að ákvörðun dómsmálaráðherra um að framselja hann til Grikklands yrði hnekkt. Maðurinn kærði framsalið til Héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfesti framsalið. Innlent 5.1.2006 11:39
Aldrei fleiri komur í Kvennaathvarf Konum og börnum sem dvöldu í Kvennaathvarfinu fjölgaði á síðasta ári. 92 konur og 74 börn dvöldu í athvarfinu á síðasta ári, það er fjórum konum og nítján börnum meira en árið þar á undan. Komur í athvarfið voru fleiri á síðasta ári en nokkru sinni frá því það var opnað árið 1982. Innlent 5.1.2006 11:22
Gæsluvarðhald framlengt Hæstiréttur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir albönskum karlmanni sem grunaður er um að hafa myrt mann í Grikklandi á jóladag 2004. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi til 16. janúar eða þar til niðurstaða hefur fengist í máli sem rekið er vegna ákvörðunar stjórnvalda um að framselja hann grískum yfirvöldum. Innlent 5.1.2006 11:05
Verðbólgan næstmest hérlendis Íslendingar bjuggu við næst mesta verðbólgu allra þjóða innan Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu og nokkurra helstu iðnríkja utan Evrópu á síðasta ári. Verðbólgan var aðeins hærri í Tyrklandi en lægri í 28 ríkjum. Innlent 5.1.2006 10:08
Víðast góð færð Vegir eru víðast hvar auðir en hálkublettir á stöku fjallvegum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Þá er komin snjóþekja á norðanverðu Snæfellsnesi og sunnanverðum Vestfjörðum. Innlent 5.1.2006 10:57
Spá aukinni verðbólgu Verðbólga eykst og verður áfram yfir efri þolmörkum Seðlabankans og langt yfir verðbólgumarkmiði hans gangi spá Greiningardeildar Íslandsbanka um verðbólgu milli desember og janúar eftir. Innlent 5.1.2006 10:15
Tveir slösuðust í árekstri Ökumenn tveggja bíla slösuðust þegar bílarnir skullu saman í mótum Sæbrautar og Faxagötu um klukkan hálf tvö í nótt. Annar bíllinn stóð kyrr á rauðu ljósi þegar hinum var ekið aftan á hann á talsverðri ferð. Bílarnir stórskemmdust og þurfti að fjarlægja þá af vettvangi með kranabílum. Innlent 5.1.2006 07:53
Hringvegurinn opnaður á ný Hringvegurinn, sem lokaðist í gærkvöldi austan við Höfn í Hornafirði vegna vatnavaxta í Jökulsá í Lóni, var opnaður á ný á tíunda tímanum. Vatn flæddi yfir veginn í alla nótt, en þrátt fyrir það urðu þar óverulegar skemmdir. Vegageraðrmenn eru nú að aka möl í skörð, þar sem runnið hefur úr köntum. Innlent 5.1.2006 09:26
Búum við fimmta mesta frjálsræði í heimi Íslendingar búa við fimmta mesta efnahagsfrelsi allra þjóða heims samkvæmt nýrri úttekt The Heritage Foundation sem ár hvert metur hversu mikið frjálsræðið er í ríkjum heims. Það er mest í Hong Kong en minnst í Norður-Kóreu. Innlent 5.1.2006 09:56
Grunaðir um fjárdrátt Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gærluvarðhald, grunaðir um fjárdrátt af fyrirtækinu Og Vodafone, eftir að upp komst um falsaðar beiðnir í umferð á milli jóla og nýárs. Innlent 5.1.2006 09:32
Hópur Hornfirðinga kaupir hlut í CityStar Hópur Hornfirðinga hefur keypt tíu prósent hlutabréfa í flugfélaginu CityStar í Aberdeen í Scotlandi. Frá þessu er greint á fréttavefnum Hornafjörður.is. Flugfélagið er í eigu Íslendinga og flýgur frá Aberdeen til Lundúna, Óslóar og Stafangurs og hefur einnig verið með leiguflug til Íslands. Innlent 5.1.2006 07:46
Átta prósenta aukning milli ára Gistinóttum á hótelum fjölgaði um rúm átta prósent frá nóvember 2004 til nóvember í fyrra samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Gistinætur voru 57.400 talsins í nóvember í fyrra en 53 þúsund árinu áður. Innlent 5.1.2006 09:04
Þungatakmarkanir á vegum víða um land Vegagerðin hefur gripið til þess að setja þungatakmarkanir á vegi víða um land vegna aurbleytu á vegum, sem ekki hafa bundið slitlag, og til að hlífa slitlaginu, þar sem það er. Í hlýindunum hefur klaki í vegunum bráðnað og er hætt við skemmdum þar sem þungum bílum er ekið um við þær aðstæður. Innlent 5.1.2006 07:34
Jókst um 30 prósent milli ára Íbúðaverð á Akureyri hækkaði um 12,5 prósent á síðasta ári samkvæmt samantekt Fasteignamats ríkisins á kaupsamningum síðasta árs. Meðalíbúðaverðið fór úr 12,5 milljónum króna í fjórtán milljónir og seldum íbúðum fjölgaði um þrjátíu prósent milli ára. Innlent 5.1.2006 06:23
Tólf kíló af ruslpósti Safnast þegar saman kemur, segir orðtakið og það á við þó með óvenjulegum hætti sé, þegar ruslpóstinum sem kemur inn um dyralúgur landsmanna er safnað saman. Því komst Ísfirðingurinn Linda Pétursdóttir að þegar hún safnaði og vigtaði ruslpósti síðasta árs, samanlagt tæpum tólf kílóum. Innlent 5.1.2006 07:27
Erlent flutningaskip tók niðri skammt frá Viðey Erlent flutningaskip, Irena Artica, tók niðri skammt frá Viðey, þegar það var að sigla út úr Sundahöfn í gærkvöldi. Því var snúið aftur til hafnar þar sem kafarar könnuðu skemmdir. Þær reyndust ekki alvarlegar og ollu ekki leka. Tildrög íhappsins liggja ekki fyrir en hafnsögumaður var um borð þegar atvikið varð. Innlent 5.1.2006 07:18
Hringvegurinn lokaður austan Hornafjarðar Hringvegurinn hefur verið lokaður austan við Hornafjörð síðan í gærkvöldi vegna vatnavaxta í Jökulsá í Lóni. Hún flæðir enn yfir veginn en samkvæmt athugun vegagerðarmanna fyrir stundu virðist vegurinn ekki hafa rofnað. Aðstæður verða kannaðar nánar með birtingu og þá verður jafnvel hægt að helypa einhverri umferð á veginn á ný. Innlent 5.1.2006 07:12
Bæjarstjóri Seltjarnarness gefur starfsmönnum gjafabréf án samþykkis Þrjátíu leikskólastarfsmenn á Seltjarnarnesi fengu gjafabréf í Kringlunni upp á 20 þúsund krónur að gjöf frá bæjaryfirvöldum um áramótin. Bæjarstjóri Seltjarnarness gaf vilyrði fyrir gjöfinni án samráðs við fjárhags- og launanefnd bæjarins. Hann hefur einnig gefið vilyrði fyrir því að allir 300 starfsmenn bæjarins fái sams konar gjafabréf. Innlent 4.1.2006 22:12
Lítil ástæða til að óttast hringormasmit í sushi Hringormasmit er eitthvað sem líklega enginn vill greinast með en þeir geta leitað í mannslíkamann eftir neyslu á hráum og hálfhráum fiski. Sushineytendur ættu þó ekki að þurfa að óttast þrátt fyrir að hrár fiskur sé megin uppistaðan í þessu japanska góðgæti. Innlent 4.1.2006 22:04
Mikil óvissa ríkir um starfssemi leikskóla í Kópavogi vegna uppsagna starfsfólks Mikil óvissa ríkir um starfsemi leikskólanna í Kópavogi vegna uppsagna starfsfólks. Forráðamenn foreldrafélaganna í bænum funduðu í kvöld vegna málsins og segja kjarabætur nauðsynlegar til að halda starfsfólkinu í vinnu. Jóhanna Þorsteinsdóttir, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í bænum, segir launahækkun starfsfólksins ekki vera lausn á þeirri stöðu sem komin er upp. Innlent 4.1.2006 21:56
Aldrei aðgerðir gegn friðsamlegum mótmælum Samband ungra sjálfstæðismanna skorar á ríkisstjórnina að grípa aldrei framar til aðgerða gegn friðsamlegum mótmælum. Í ályktuninni er sérstaklega vísað til viðbragða ríkisstjórnarinnar við komu Falun-gong liða hingað til lands sumarið 2002. Innlent 4.1.2006 20:41