Innlent
Skora á stjórnvöld að stofna til íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár Aðalfundur Vélstjórafélags Íslands skorar á íslensk stjórnvöld að stofna hið fyrsta til íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár með tilheyrandi hliðarráðstöfunum. Ísland er eina landið innan Evrópu sem ekkert hefur gert til þess að tryggja að héðan séu gerð út kaupskip með íslenskum áhöfnum þrátt fyrir þá staðreynd íslensk þjóð á allt sitt undir öflugum siglingum að og frá landinu. Áframhaldandi aðgerðarleysi stjórnvalda í þessu máli mun hafa þær afleiðingar að innan fárra ára mun áratuga þekking og reynsla farmanna heyra sögunni til. Innlent 6.1.2006 09:15
Jólatré fjarlægð við lóðamörk 7. - 13. janúar Starfsmenn Reykjavíkurborgar munu fjarlægja jólatré sem sett hafa verið út fyrir lóðamörk dagana frá og með morgundeginum og til 13. janúar. Eftir að átakinu lýkur geta íbúar losað sig við jólatré á gámastöðvar Sorpu. Innlent 6.1.2006 08:49
Umboðsmaður ver ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra Umboðsmaður alþingis hefur svarað kvörtun lögreglumanns sem kvartaði yfir ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra um skipun yfirlögregluþjóns við embætti sýslumannsins á Seyðisfirði. Í kvörtuninni var því haldið fram að ákvörðun ráðherra hefði farið gegn bæði jafnræðisreglu stjórnarskrár og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga auk þess sem því var haldið fram að rökstuðningur ráðherra hefði ekki verið í samræmi við efni stjórnsýslulaga. Innlent 6.1.2006 08:56
Auka umsvif í flugrekstri á norðurslóðum Íslenskir fjárfestar hafa enn aukið umsvif sín í flugrekstri á norðurslóðum eftir að KB banki eignaðist rúm sex prósent í finnska flugfélaginu Finnair í fyrradag. Innlent 6.1.2006 07:32
Féll af bifhjóli og viðbeinsbrotnaði Ökumaður bifhjóls viðbeinsbrotnaði og hlaut fleiri meiðsl þegar hann féll af hjóli sínu á mótum Glerárgötu og Þórunnarstrætis á Akureyri í gærkvöldi. Slysið var með þeim hætti að hann óttaðist að ökumaður bíls, sem kom á móti, ætlaði að beygja þvert fyrir hann. Hann nauð hemlaði því hjólinu en við það féll hann í götuna. Innlent 6.1.2006 07:30
Fjögur fíkniefnamál í Hafnarfirði og Kópavogi Fjögur fíkniefnamál komu upp í sameiginlegu átaki lögreglunnar í Hafnarfirði og í Kópavogi í gærkvöldi og í nótt og var lagt hald á hass, anfetamín og kókaín. Fjórir menn voru handteknir í aðgerðunum en sleppt undir morgun að yfirheyrslum loknum. Auk þessa var einn maður handtekinn í Keflavík í nótt með fíkniefni í fórum sínum. Innlent 6.1.2006 07:26
Fundu loðnu út af Héraðsflóa Skipverjar á hafrannsóknaskipinu Árna Friðirkssyni fundu loðnu út af Héraðsflóa í nótt en langt er síðan nokkur loðna hefur fundist hér við land. Að sögn Sveins Sveinbjörnssonar leiðangursstjóra,virðist þetta þó vera lítil torfa og hin loðnuskipin fimm, sem taka þátt í skipulegri leit, hafa ekkert fundið eftir því sem best er vitað. Innlent 6.1.2006 07:22
Framboðslisti Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningar samþykktur Vinstri grænir í Reykjavík samþykktu framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor á félagsfundi sem haldinn var nú í kvöld. Í efsti sex sæti er raðað samkvæmt úrslitum prófkjörs sem haldið var í haust, fyrir utan fimmta sætið sem féll í skaut Gríms Atlasonar í prófkjörinu en hann kaus að taka ekki sætið. Efstu sæti listans eru því þannig skipuð að Svandís Svavarsdóttir leiðir listann, í öðru sæti Árni Þór Sigurðsson, þriðja sæti Þorleifur Gunnlaugsson, í því fjórða Sóley Tómasdóttir, Hermann Valsson í fimmta og Ugla Egilsdóttir í sjötta. Innlent 6.1.2006 07:21
Gengið frá lista VG fyrir borgarstjórnarkosningar Hermann Valsson íþróttakennari skipar 5.sætið á lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs til borgarstjórnarkosninga í vor. Svandís Svavarsdóttir framkvæmdastjóri leiðir listann. Tillaga uppstillingarnefndar um skipan á lista VG fyrir kosningarnar í vor var samþykkt á almennum félagsfundi nú í kvöld. Innlent 5.1.2006 22:29
Árni segir göng kosta sextán milljarða Áætlun tveggja norskra sérfræðinga gerir ráð fyrir að göng á milli lands og Eyja kosti um sextán milljarða króna. Árni Johnsen og félagar hans í hópi sem stóð að úttekt á gangagerð kynntu niðurstöður hennar á fundi í dag. Innlent 5.1.2006 22:21
Tónleikar gegn stóriðjuframkvæmdum Heimsþekktir tónlistarmenn, íslenskir og erlendir, koma fram til styrktar íslenskri náttúru í Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið. Með tónleikunum sem bera yfirskriftina "Er þjóðin að verða náttúrulaus?" vill hópurinn og listamennirnir sem þar koma fram vekja athygli á einstakri innanlands sem utan á náttúru Íslands og þeirri hættu sem að henni steðjar vegna stóriðjuframkvæmda. Innlent 5.1.2006 22:20
Takmarkaðir vöruflutningar víða um land vegna hláku Vöruflutningar um helstu samgönguleiðir landsins, þar á meðal á milli Reykjavíkur og Akureyrar, hafa verið takmarkaðir vegna aurbleytu og hættu á slitlagsskemmdum. Hver trukkur verður að skerða farm sinn um allt að fimm tonn í hverri ferð. Innlent 5.1.2006 22:17
Rúmlega helmingur Íslendinga trúir því að eitthvað taki við eftir dauðann Rúmlega helmingur Íslendinga trúir því að eitthvað taki við eftir dauðann án þess að geta útskýrt það frekar. Þetta kemur fram í könnun sem unnin var af IMG gallup fyrir Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma í febrúar og mars árið 2004. Alls töldu 458 aðspurðra í könnuninni eða 55,9%, að eitthvað taki við eftir dauðanna en enginn geti vitað hvað það sé. Innlent 5.1.2006 21:42
Brot á leikreglum segir bæjarfulltrúi Það á að umbuna starfsmönnum Seltjarnarnesbæjar með einhverju öðru en gjafakorti í Kringlunni. Þetta segir oddviti minnihlutans í bæjarstjórn en bæjarstjóri hefur upp á sitt einsdæmi gefið vilyrði fyrir því að allir starfsmenn Seltjarnarnesbæjar, 300 að tölu, fái gjafakort að upphæð tuttugu þúsund krónur. Brot á leikreglum, segir fulltrúi minnihlutans. Innlent 5.1.2006 21:29
Starfslokasamningar þurfa ekki að vera einkamál fyrirtækja Starfslokasamningar þurfa ekki að vera einkamál fyrirtækja sem slíka samninga gera eða æðstu stjórnenda þeirra, segir viðskiptasiðfræðingur við Háskólann í Reykjavík. Hann segir að almenningur geti gert kröfu um að fyrirtæki sem skipta miklu máli í samfélaginu borgi starfsmönnum sínum laun í takt við hefðir og venjur í samfélaginu en snúi ella baki við fyrirækinu. Innlent 5.1.2006 21:26
Bifhjólamaður slasaðist nokkuð þegar hann féll í götuna Bifhjólamaður slasaðist nokkuð þegar hann reyndi að koma í veg fyrir árekstur við bíl innanbæjar á Akureyri um sexleitið. Slysið varð með þeim hætti að tvö bifhjól komu akandi eftir Glerárgötu og mætti bíl sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ökumaður fyrra bifhjólsins hélt að ökumaður bílsins ætlaði að beygja í veg fyrir hjólið og inn Þórunnarstræti svo hann hemlaði á hjólinu og féll í götuna. Innlent 5.1.2006 21:20
Laun kvenna lægri í öllum atvinnugreinum Árslaun karla eru hærri en árslaun kvenna í öllum þeim atvinnugreinum sem athugaðar voru í launasamanburði sem gerður var í tæplega 30 Evrópulöndum. Þær atvinnugreinar sem skoðaðar voru eru iðnaður, byggingastarfsemi og mannvirkjagerð og verslunar- og viðgerðarþjónusta. Innlent 5.1.2006 21:08
Matvælaverð myndi lækka ef Ísland gengi í ESB Matvælaverð á Íslandi myndi lækka ef gengið yrði í Evrópusambandið. Eins væri hægt að lækka matvöruverð með því að afnema tolla og fjarlægja viðskiptahöft af innfluttum matvælum. Þetta segir aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík. Innlent 5.1.2006 20:51
Ný lyfta bíður Jólin hafa ekki verið mjallahvít og óvenjuleg hlýindi um land allt í upphafi ársins hafa ekki lofað góðu fyrir skíðamenn. Ekkert var skíðafærið í Bláfjöllum snemma í morgun enda rigndi þar eins og hellt væri úr fötu eða þar til allt í einu, eins og hendi væri veifað, að allt fór á bólakaf í jólasnjó. Innlent 5.1.2006 19:42
Ekkert saknæmt átti sér stað Krufningu á fólkinu sem fannst látið í húsi við Frakkastíg á milli jóla og nýárs er lokið. Engir áverkar fundust og er ekkert saknæmt því talið hafa átt sér stað. Innlent 5.1.2006 19:40
40% utan nýbyggingarsvæða 40% nýbyggðra íbúða í Reykjavík eru á þéttingarsvæðum. Af 5.150 íbúðum, sem fullgerðar voru í Reykjavík á árunum 1996-2004, voru 2.025 á þéttingarsvæðum, það er að segja utan nýbyggingarsvæðanna austast í borginni. Innlent 5.1.2006 18:09
Enn mikið vatn á hringveginum við Jökulsá í lóni Enn rennur talsvert mikið vatn yfir hringveginn vestan vð Jökulsá í Lóni á Suðausturlandi. Vegfarendur eru beðnir að aka með gát um þessa leið. Hálka er á Hellisheiði og Þrengslum og þá eru einnig hálkublettir á Suðurlandi. Á Vesturlandi er hálka og skafrenningur er á Holtavörðuheiði. Innlent 5.1.2006 18:05
Boða til opins fundar vegna stöðu leikskólamála Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar í Kópavogi óskuðu eftir því að bæjarstjórnarflokkar í Kópavogi byðu foreldrum og starfsmönnum leikskóla til fundar þar sem farið yrði yfir stöðu leikskólamála. Forystumenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogu lýstu því yfir í dag að ekki væri vilji hjá þeim til að taka þátt í slíkum fundi að sögn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar. Innlent 5.1.2006 17:58
Laun á Íslandi há samanborið við önnur Evrópulönd Árslaun á Íslandi eru há samanborið við önnur Evrópulönd. Þetta kemur fram í alþjóðlegum samanburði á launum sem gerður var undir forystu Evrópsku hagstofunnar. Þegar tillit er tekið til verðlags færist Ísland hins vegar nokkuð neðar á listann. Innlent 5.1.2006 18:06
Lífeyrissjóður Norðurlands og Lífeyrissjóður Austurlands hyggja á sameiningu Stjórnir Lífeyrissjóðs Norðurlands og lífeyrissjóðs Austurlands hafa undirritað viljayfirlýsingu um að athuga möguelika á sameiningu sjóðanna. Markmið sameiningarinnar er að auka hagkvæmni í rekstri, bæta áhættudreyfingu og ávöxtun eigna og hámarka með þeim hætti lífeyrisréttindi sem sameinaður sjóður getur veitt sjóðsfélögum sínum. Innlent 5.1.2006 17:13
Enginn slasaðist þegar vörubíll valt í Hveradalabrekku Vörubíll valt á hliðina í Hveradalabrekku í nágrenni skíðaskálans í Hveradölum á öðrum tímanum í dag. Engin slys urðu á fólki en loka þurfti tveimur akreinum til austurs um tíma vegna slyssins og kalla þurfti til kranabíl til að koma vörubílnum á hjólin á ný. Innlent 5.1.2006 16:34
Þrjú menningarverkefni tilnefnd til Eyrarrósinnar Þrjú menningarverklefni á landsbyggðinni eru í ár tilnefnd til Eyrarrósarinnar en það eru Jöklasýningin á Höfn í Hornafirði, Kórastefna við Mývatn og LungA - listahátíð ungs fólks, Austurlandi. Þetta er í annað sinn sem Eyrarrósin verður afhent, en verðlaunin verða afhent á Bessastöðum 13. janúar næstkomandi. Verkefnin þrjú voru tilnefnd úr hópi fjölmargra umsækjenda. Innlent 5.1.2006 16:22
Umboðsmaður alþingis gerir ekki athugasemdir Umboðsmaður alþingis gerir ekki athugasemdir við skipun yfirlögregluþjóns við embætti sýslumanns á Seyðisfirði í svari sínu við kvörtun lögreglumanns sem lagði inn kvörtun yfir ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra um skipum yfrirlögregluþjóns við embættið. Innlent 5.1.2006 16:14
Salan á Iceland Express að fara í gang Salan á Iceland Express er fyrst nú að fara í gang. KB banki annast sölu fyrirtæksins og eru menn þar nú farnir að útbúa útboðsgögn sem verða til á næstu tveimur til þremur vikunum. Innlent 5.1.2006 16:04
Erlendum félagsmönnum í VR fjölgar um þriðjung Félagsmönnum í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur með erlent ríkisfang hefur fjölgað um nær þriðjung á ári og eru nú 650 eftir því sem fram kemur á heimasíðu VR. Tíu prósent eða 66 manns eru frá Danmörku en fast á hæla þeirra eru Pólverjar, þá Þjóðverjar, Bandaríkjamenn, Júgóslavar og Bretar. Innlent 5.1.2006 14:40