Innlent

Fréttamynd

Flosi gefur kost á sér í fjórða sætið í Kópavogi

Flosi Eiríksson, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs til tveggja kjörtímabila, hyggst gefa kost á sér í fjórða sæti á lista flokksins í prófkjöri fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fer 4. febrúar næstkomandi. Flosi sagði í samtali við NFS að ástæðan fyrir því að hann gæfi kost á sér í fjórða sætið nú væri sú að Samfylkingin ætti nú þrjá menn í bæjarstjórn og hann vildi með þessu reyna að fjölga fullrúunum.

Innlent
Fréttamynd

Engin viðbrögð hérlendis ákveðin

Engin viðbrögð af hálfu íslenskra heilbrigðisyfirvalda hafa verið ákveðin í ljósi nýjustu frétta af fugleflensuveirunni. Flensan breiðist út í Tyrklandi og gæti því tekið sig upp í Vestur-Evrópu á næstunni.

Innlent
Fréttamynd

300 þúsundasti landsmaðurinn er piltur

Drengur sem fæddist á fæðingardeild Landspítala - Háskólasjúkrahúss á sjöunda tímanum í morgun varð 300 þúsundasti landsmaðurinn. Foreldrar hans eru Erla María Andrésdóttir og Haraldur Arnarson en þau búa í Reykjanesbæ.

Innlent
Fréttamynd

Vill hætta við framkvæmdur við Þjórsárver

Samfylkingin vill að hætt verði við öll áform um orkuframkvæmdir á Þjórsárverasvæðinu og vill að friðland Þjórsárvera verði stækkað verulega. Þetta kemur fram í yfirlýsingu þingflokks Samfylkingar sem telur áætlanir um framkvæmdir við Norðlingaöldu og víðar í nágrenni Þjórsárvera komnar í öngstræti.

Innlent
Fréttamynd

Tóku 100 milljarða að láni

Actavis hefur tekið lán upp á rúmlega 100 milljarða króna. Sex erlendir bankar veita lánið sem er tekið í bandarískum dollurum og að upphæð 1,27 milljarðar í þeim gjaldmiðli.

Innlent
Fréttamynd

Mikill verðmunur á nikótínlyfjum

Algengur verðmunur á nikótínlyfjum er 25-30 prósent. Þetta kemur fram í verðkönnun neytendasamtakanna. Mestur var munurinn 45% á munnsogstöflumfrá Nicotinell. Hæsta verð var lang oftast hjá Lyfjum og heilsu eða í 22 tilvikum. Lægsta verð var oftast í Skipholtsapóteki eða í 16 tilvikum og hjá Lyfjaveri í 14 tilvikum.

Innlent
Fréttamynd

Enn lýst eftir árásarmanni

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir hugsanlegum vitnum að því þegar ráðist var á unga stúlku á Sogavegi á föstudagskvöld. Maðurinn var á rauðum, eða dökkrauðum fólksbíl, sem líkist Subarau Impresa, en gæti þó verið stærri bíll.

Innlent
Fréttamynd

Níutíu kærðir fyrir smygl

Um níutíu kæruskýrslur voru gerðar hjá embætti sýslumannsins á Seyðisfirði um helgina, flestar vegna smygltilrauna. Óvenju mikil umferð var um Egilsstaðaflugvöll um helgina.

Innlent
Fréttamynd

Andri Snær valinn á fyrirlestraröð í Columbiu-háskóla

Andri Snær Magnason rithöfundur hefur verið valinn einn af fimm fyrirlesurum til að ávarpa nemendur í Columbia-háskóla í Bandaríkjunum. Fyrirlestraröð vorannar er undir yfirskriftinni „Orð og gjörðir" en aðrir fyrirlesarar verða m.a. George Bizos, lögfræðingur Nelsons Mandela. Columbiu-háskóli er einn virtasti háskóli í heimi.

Innlent
Fréttamynd

Leiðindaveður á Hellisheiði í gærkvöldi

Nokkrir ökumenn misstu stjórn á bílum sínum, sem höfnuðu utan vegar, þegar óveður gerði á Hellisheiði í gærkvöldi. Enga í bílunum sakaði og heldur ekki í pallbíl, sem valt þar út af veginum fyrr um kvöldið. Lögregla kom ökumönnum til aðstoðar, en ekki kom til þess að kalla þyrfti út björgunarsveitir.

Innlent
Fréttamynd

Sterling vill flytja flugmenn nauðungarflutningum

Sterling-flugfélagið, sem er í eigu Íslendinga, vill flytja danska flugmenn nauðungarflutningum til annarra landa á Norðurlöndunum að sögn Jótlandspóstsins. Skýringin er sú að Sterling hefur nú starfsstöðvar í Osló, Stokkhólmi og Gautaborg og vill að hluti flugmannanna verði framvegis búsettur þar í sparnaðarskyni.

Innlent
Fréttamynd

Nokkrir höfnuðu utan vegar á Hellisheiði

Nokkrir ökumenn misstu stjórn á bílum sínum sem höfnuðu utan vegar þegar óveður gerði á Hellisheiði í gærkvöldi. Enga í bílunum sakaði og heldur ekki í pallbíl sem valt þar út af veginum fyrr um kvöldið.

Innlent
Fréttamynd

Söluhagnaður Straums-Burðaráss 16 milljarðar króna

Söluhagnaður Straums-Burðaráss af sölu á tæplega fjórðungshlut fyrirtækisins í Íslandsbanka nemur um 16 milljörðum króna, að sögn Þórðar Más Jóhannessonar forstjóra. Miklar vangaveltur eru þegar uppi um frekari eignatilfærslur hér innanlands eftir að Straumur-Burðarás fékk um 80 milljarða króna fyrir hlutinn.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Verið er að hreinsa vegi á Vestfjörðum

Verið er að hreinsa vegi á sunnanverðum Vestfjörðum en flughált og snjóþekja er í Ísafjarðardjúpi. Þæfingur er á Steingrímsfjarðarheiði. Á Vesturlandi er hálka og hálkublettir og hálkublettir eru sömuleiðis á Norðurlandi. Greiðfært er um Norðaustur-, Austur- og Suðausturlandi. Þá eru hálkublettir á Hellisheiði og í Þrenglsum en aðrar leiðir á Suðurlandi eru greiðfærar.

Innlent
Fréttamynd

Þrjú hundruð þúsundasti Íslendingurinn er fæddur

Þrjú hundruð þúsundasti Íslendingurinn er fæddur samkvæmt vefsíðu Hagstofunnar fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hvar hann fæddist, eða neitt nánar, að svo stöddu. Þetta gerðist heldur fyrr en reiknað hafði verið með því spár bentu til þess að áfanganum yrði náð undir lok mánaðarins eða snemma í febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Þurfa að sýna fram á 300 vinnustundir á tveggja ára tímabili

Lagabreyting sem varðar fjárjagsaðstoð frá hinu opinbera í Danmörku mun taka gildi um 15 mánuðum fyrr en áður hafði verið ráðgert. Lögin gera ráð fyrir að einstaklingar sem ekki hafi unnið 300 vinnustundir yfir tveggja ára tímabil, munu missa fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Lögin taka gildi 1. mars næstkomandi en 1. mars 2007 er sá dagur sem miðað er við að fólki þurfi að sýna fram á 300 vinnustundir ef það vill ekki missa fjárhagsaðstoð.

Erlent
Fréttamynd

Sharon enn á milli heims og helju

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, liggur enn á milli heims og helju. Læknar Sharons ætla að freista þess að vekja hann klukkan hálfníu að íslenskum tíma en þá fyrst verður hægt að meta skaðann sem Sharon hefur orðið fyrir vegna heilablóðfallsins sem hann fékk á miðvikudag.

Erlent
Fréttamynd

Skýrari blokkir eftir Íslandsbankasöluna

Sala Straums til FL Group, Þáttar og fleiri aðila skýrir línur í eignarhaldi stærstu bankanna. Þrjár megin viðskiptablokkir eru með stærstu viðskiptabankanna í miðju sinni. Viðskiptin marka skil í átökum sem verið hafa í eigendahópi bankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hringvegurinn gæti styttst um 13 kílómetra

Verið er að kanna möguleika á að leggja nýjan veg norðan Svínavatns í Austur-Húnavatnssýslu. Það er Leið ehf. félag um einkafjarmögnun vegamannvirkja sem fékk rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri til að gera skýrslu um fjárhagslega arðsemi tæplega 16 kílómetra langs vegakafla sem myndi stytta þjóðveginn um 13 kílómetra.

Innlent
Fréttamynd

Nýr frystitogari til Eskifjarðar

Aðalsteinn Jónsson, eða Alli ríki fyrrverandi athafnamaður á Eskifirði, er á farinn úr plássinu þar sem ekki er rúm fyrir hann á elliheimilinu. Staðgengill hans, Aðalsteinn Jónsson SU 11, frystitogari í eigu Eskju, sem mun í framtíðinni gera út frá þorpinu, var hinsvegar vígður við hátíðlega athöfn í gær.

Innlent
Fréttamynd

Félagsmálaráðherra í leyfi næstu vikurnar

Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, verður í leyfi frá störfum næstu vikur vegna veikinda eiginkonu sinnar. Áætlað er að ráðherrann taki aftur til starfa í byrjun febrúar. Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, gegnir embætti félagsmálaráðherra í fjarveru Árna en Sæunn Stefánsdóttir varaþingmaður tekur sæti Árna á Alþingi.

Innlent
Fréttamynd

Sharon haldið sofandi áfram

Ariel Sharon fór í enn eina sneiðmyndatökuna í morgun. Niðurstaðan liggur fyrir, en verður ekki tilkynnt fyrr en núna á næstu mínútunum. Sharon hefur verið haldið sofandi í tvo sólarhringa, en læknar hans ákveða í dag hvort hættandi sé á að vekja hann í kvöld.

Erlent
Fréttamynd

Enn leitað vitna að árás á stúlku sem beið í strætóbiðskýli

Rannsóknarlögreglan leitar enn vitna að árás karlmanns á 16 ára gamalli stúlku í strætóskýli við Miklubraut á föstudagskvöldið. Stúlkan var að bíða eftir strætosvagni í biðskýli milli hálf-níu og níu og lenti í átökum við karlmann. Átökin bárust að Sogavegi þar sem stúlkunni tókst að losa sig frá manninum.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á ungan dreng í Grindavík

Ekið var á ungan dreng við Miðgarð í Grindavík um klukkan hálf níu í gærkvöldi. Talið var að drengurinn væri fótbrotinn en annar fótur hans hafði orðið undir afturhjóli bifreiðar sem hafði ekið framhjá honum. Drengurinn, sem er sex ára, var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar og þar kom í ljós að hann var ekki fótbrotinn. Hann hafði tognað á fætinum og fékk að fara heim að skoðunn lokinni.

Innlent
Fréttamynd

Ófært víða á Vestfjörðum

Hálkublettir eru á Hellisheiði og í Þrengslum sem og á flestum vegum á Suðurlandi. Á Vesturlandi er víða ýmist hálka eða hálkublettir og á Holtavörðuheiði er hálka og skafrenningur. Á Vestfjörðum er óveður og ófært, bæði á Hálfdán- og Gemlufallsheiði en verið er að moka Kleifarheiði og Klettháls.

Innlent