Innlent
Aukin framlög til þróunaraðstoðar Framlög úr ríkissjóði til þróunaraðstoðar verða aukin jafnt og þétt næstu ár. Þetta kemur fram kemur í ársskýrslu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir árið 2004. Innlent 11.1.2006 13:39
Skorað á fulltrúa á Launamálaráðstefnu Samflot bæjarstarfsmannafélaga skorar á fulltrúa á Launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður þann 20. janúar næstkomandi að tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf verði launuð á sama hátt, óháð kynferði eða búsetu þess er starfinu gegnir. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi formanna samflotsfélaganna í gær. Innlent 11.1.2006 12:50
Mikilvægast að losa koltvíoxíð úr andrúmsloftinu Wallace S. Broecker, sem talinn er með einum fremstu vísindamönnum heims í rannsóknum á umhverfis- og loftslagsbreytingum jarðarinnar, telur mikilvægast að losa koltvíoxíð úr andrúmsloftinu til að sporna gegn gróðurhúsaáhrifunum. Hann flytur fyrirlestur um gróðurhúsaáhrifin í Öskju, Náttúruvísindahúsi Háskóla Íslands á föstudag. Innlent 11.1.2006 12:18
Mótmæla því að Vegagerðarmenn fái lögregluvald Landssamband lögreglumanna mótmælir harðlega fyrirliggjandi frumvarpi til breytinga á umferðarlögum þar sem starfsmönnum Vegagerðarinnar er veitt víðtækt lögrelgluvald. Innlent 11.1.2006 12:16
Úrskurður um athugun á reikningum ógnar trúnaðarsambandi Formaður Lögmannafélagsins telur það ógna trúnaðarsambandi lögmanna og skjólstæðinga þeirra, að Fjármálaeftirlitið skuli með dómsúrskurði geta skoðað vörslureikninga lögmanna. Stjórn Lögmannafélagsins ætlar að fjalla um málið á fundi í dag. Innlent 11.1.2006 12:07
Öll sveitarfélögin hafa lækkað álagningar fasteignagjalda Öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa lækkað álagningargrunn fasteignagjalda fyrir þetta ár. Hafnarfjarðarbær varð í gær síðastur í röðinni til að samþykkja lækkun hans. Innlent 11.1.2006 11:55
Skora á DV að endurskoða ritstjórnarstefnu Hafin er undirskriftasöfnun á Netinu þar sem skorað er á blaðamenn, ritstjórn og útgefanda DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína og sýna ábyrgð og virðingu í umfjöllun um menn og viðkvæm málefni. Áskorunin kemur til vegna fréttar blaðsins í gær um grunaðan kynferðisofbeldismann á Ísafirði, en maðurinn svipti sig lífi eftir að blaðið kom út. Innlent 11.1.2006 12:13
Blaðamannafélagið fundar í hádeginu Stjórn Blaðamannafélags Íslands kemur saman til fundar í hádeginu til að ræða umfjöllun DV um mál manns sem blaðið sagði grunaðan kynferðisofbeldismann en maðurinn svipti sig lífi eftir að blaðið kom út í gær. Innlent 11.1.2006 12:07
Segja lítinnn áhuga á olíufélögum Fjármálasérfræðingar segja að lítill áhugi virðist vera á því að kaupa olíufélagið Esso og Skeljungur mun hafa verið falur um hríð, án þess að fjárfestar hafi sýnt áhuga. Innlent 11.1.2006 12:01
Essó hækkaði bensín um 2 krónur og dísilolíu um 50 aura Olíufélagið Essó hækkaði bensínlítrann um tvær krónur á miðnætti og hefur þá hækkað bensínið um þrjár krónur og 50 aura frá áramótum. Dísilolían var hækkuð um 50 aura. Á heimasíðu félagsins segir að hækkunina megi rekja til hækkunar á heimsmarkaði. Innlent 11.1.2006 11:08
22 gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi Tuttugu og tveir gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningar sem fram fer 4. febrúar næstkomandi. Tveir gefa kost á sér í fyrsta sæti, Guðríður Arnardóttir framhaldsskólakennari og Jón Júlíusson íþróttafulltrúi. Innlent 11.1.2006 10:02
Stjórn BÍ kannar hugsanlegan þátt DV í sjálfsvíginu Arna Schram, formaður Blaðamannafélagsins, segir á vefsíðu félagsins að stjórn þess muni kanna hvort eða hvaða þátt DV átti í því að karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi á Ísafirði í gær. Innlent 11.1.2006 09:34
Of snemmt að segja hvort loðnustofninn sé hruninn Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir of snemmt að kveða upp úr um það hvort loðnustofninn sé hruninn. Hann hefur engu að síður áhyggjur af því að engin loðna hafi fundist og segir að verulegt magn þurfi að finnast af henni til þess að hægt sé að mæla með veiðum. Innlent 10.1.2006 23:06
Nýr kjarasamningur stætóbílstjóra undirritaður Fulltrúar strætóbílstjóra í Reykjavík og Strætó undirrituðu nýjan kjarasamning í gær sem borinn verður undir atkvæði bílstjóranna á næstunni. Samningurinn er sagður á sömu nótum og borgin samdi nýverið um við Starfsmannafélag borgarinnar. Innlent 11.1.2006 07:58
Íbúinn kveikti sjálfur í Íbúi í íbúðinni sem eyðilagðist í eldi í fjölbýlishúsi í Lómasölum í Kópavogi í fyrrinótt kveikti sjálfur í. Hann gaf sig fram við lögregluna og játaði verknaðinn án skýringa. Faðir mannsins er skráður eigandi íbúðarinnar. Líklegt má telja að maðurinn verði ákærður bæði fyrir eignaspjöll og að hafa stofnað lífi nágranna í hættu. Innlent 11.1.2006 07:13
Tæplega nítjánþúsund manns hafa mótmælt Rúmlega átjánþúsund og sjöhundruð manns hafa undirritað mótmæli gegn ritstjórnarstefnu DV í dag á Deiglunni. Um tíma komust færri að síðunni en vildu og hrundi hún vegna of mikils álags. Síðan verður opin áfram á morgun. Innlent 11.1.2006 23:22
Mikill verðmunur á fiski Mikill verðmunur er á fiski milli verslana samkvæmt kverðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði þriðjudaginn 10. janúar síðast liðinn. Mestur er munurinn 111% á heilli hausaðri rauðsprettu sem kostaði frá 375 krónum upp í 790 krónur. Minnstur var munurinn 22% á reyktum ýsuflökum þar sem lægsta verð var 980 krónur en það hæsta var 1198 krónur. Kannað var verð á 27 ferskum fisktegundum í fiskbúðum og stórmörkuðum sem hafa fiskborð í verslunum sínum. Verðið var oftast lægst í FiskbúðinniÁrbjörgu, Hringbraut og í Fiskbúðinni okkar við Smiðjuveg en oftast dýrast í Fiskbúðinni Vör, Höfðabakka. Innlent 11.1.2006 23:45
Síðbúnar þrettándabrennur í kvöld Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs. Seltirningar kveiktu í brennu á Valhúsahæð og lögðu fjölmargir leið sína þangað þrátt fyrir nokkurn kulda. Safnast var saman við Mýrarhúsaskóla og þaðan gengið fylktu liði undir lúðrablæstri upp á hæðina. Innlent 10.1.2006 23:09
Nýr samningur hjá Strætó Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og Strætó bs. hafa skrifað undir nýjan kjarasamning fyrir starfsfólk Strætós. Fram kemur á heimasíðu Strætós að nýi samningurinn sé í öllum meginatriðum sambærilegur og áþekkur samningi Reykjavíkurborgar og starfsmannafélagsins, en aðilar hafa þó litið til sérstöðu starfseminnar og aðlagað samninginn að því. Innlent 10.1.2006 22:03
Kærir líklega ekki Sverri Þór Sverrissyni, eða Sveppa eins og hann er betur þekktur, þykir ólíklegt að hann kæri þann sem gaf honum glóðarauga um helgina. Árásarmaðurinn hefur beðið hann afsökunar. Innlent 10.1.2006 21:22
Stjórnin kölluð saman Karlmaður á sextugsaldri svipti sig lífi í morgun, eftir að DV birti mynd af honum á forsíðu og bendlaði hann við kynferðislegt ofbeldi gegn ungum piltum. Ásakanirnar gegn honum hafa ekki verið sannaðar og bróðir mannsins segir að DV hafi nánast rekið hann í dauðann. Formaður Blaðamannafélagsins hyggst kalla saman stjórn félagsins af þessu tilefni. Innlent 10.1.2006 21:52
Skipan fjölmiðlanefndar í uppnámi Menntamálaráðherra getur ekki skipað fulltrúa allra þingflokka í nýja fjölmiðlanefnd, sem á að semja drög að fjölmiðlalögum. Stjórnarandstaðan á Alþingi hefur sent ráðherra bréf, þar sem þess er krafist að málefni Ríkisútvarpsins verði rædd í nefndinni, en að öðrum kosti hyggst stjórnarandstaðan ekki tilnefna fulltrúa í hana. Innlent 10.1.2006 21:13
Ók á ljósastaur Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og ók á ljósastaur á Hafnavegi, nálægt aðalhliðinu hjá Varnarliðinu á Miðnesheiði snemma kvölds. Lítil sem engin meiðsl urðu á fólki. Innlent 10.1.2006 21:44
Kveikt í þrettándabrennum í kvöld Þrettándanum var fagnað með þremur brennum á höfuðborgarsvæðinu í kvöld, en ekki var hægt að kveikja í þeim á föstudaginn var vegna veðurs. Innlent 10.1.2006 21:24
Smygluðu milljónum sígarettna Þrír norskir skipstjórar og einn íslenskur hafa játað smygl á nærri tveimur milljónum sígarettna og fleiri þúsundum lítra af áfengi til Noregs. Smyglvarninginn keyptu skipstjórarnir, sem starfa á tveimur norskum fragtskipum, í Hollandi og Þýskalandi. Innlent 10.1.2006 21:21
Ríkissaksóknari fær málið á morgun Mál Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélags Reykjavíkur, vegna sjóslyssins á Viðeyjarsundi, verður sent til Ríkissaksóknara á morgun. Þar verður tekin ákvörðun um hvort ákært verði í málinu. Innlent 10.1.2006 21:14
Fékk heillaskeyti frá forsætisráðherra 300 þúsundasti landsmaðurinn kom í heiminn í gær en það var drengur sem á ættir sínar að rekja til Reykjanesbæjar. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra og Hallgrímur Snorrason hagstofustjóri heimsóttu foreldrana og drenginn á fæðingardeild Landsspítalans klukkan eitt í dag og afhentu þeim heillaóskaskeyti í beinni útsendingu á NFS. Innlent 10.1.2006 20:22
Úthlutað fyrir lok umsóknarfrests Umhverfisráðherra hefur úthlutað Náttúrufræðistofnun 6,6 milljónum króna úr veiðikortasjóði þrátt fyrir að umsóknafrestur um styrki úr sjóðnum sé ekki runninn út. Innlent 10.1.2006 20:14
300 milljóna borhola skilar engu Tvær borholur Reykjanesvirkjunar virðast ekki ætla að skila neinni orku en sú dýrari kostaði yfir þrjúhundruð milljónir króna. Engu að síður stefnir í að virkjunin verði gangsett á fullu afli þann 1. maí næstkomandi. Innlent 10.1.2006 20:03
Álagningarprósentan lækkar Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í dag að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á íbúðahúsnæði um 20 prósent, eða úr 0,335 prósentum í 0,27 prósent. Lóðarleiga og vatnsgjald lækka einnig. Þetta verður þó ekki til að álögur lækka heldur hækka þær ekki meira en sem nemur verðlagsþróun. Innlent 10.1.2006 19:26