Innlent
40 grömm af hassi fundust í bíl og íbúð manns Lögreglan í Kópavogi handtók mann í nótt eftir að talsvert af fíkniefnum fundust í bíl hans og er hann grunaður um að hafa ætlað að selja efnin. Í framhaldinu var gerð húsleit heima hjá honum og fundust samtals rösklega 40 grömm af hassi. Innlent 12.1.2006 09:34
111% verðmunur á rauðsprettu Mikill verðmunur er á fiski milli verslana samkvæmt verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði síðastliðinn þriðjudag. Mestur er munurinn 111% á heilli hausaðri rauðsprettu sem kostaði frá 375 krónum upp í 790 krónur. Innlent 12.1.2006 09:26
Enginn fíkniefnaneytandi greindist með HIV-smit Enginn fíkniefnaneytandi var í hópi þeirra átta sem greindust með HIV-smit á Íslandi á síðasta ári. Þetta kemur fram í Farsóttafréttum sóttvarnalæknis. Innlent 12.1.2006 09:24
4 mánuðir skilorðsbundnir fyrir vörslu barnakláms Karlmaður á þrítugsaldri var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tæplega 800 ljósmyndir af barnaklámi og 60 hreyfimyndir með samskonar efni í fórum sínum, og að veita öðrum aðgang að því. Innlent 12.1.2006 09:19
Íslendingar láta ekki fuglaflensu trufla fyrirhugaðar sólarlandaferðir Á sama tíma og fréttir berast af fuglaflensutilfellum í mönnum í Tyrklandi er ekkert lát á bókunum hér á Íslandi á sólarlandaferðum til Tyrklands í sumar. Innlent 12.1.2006 00:45
Fyrirtæki í eigu Baugs byggir 200 orlofshús í Tyrklandi Danska fasteignafyrirtækið Keops, sem Baugur eignaðist þriðjungs hlut í nýverið, er að ráðast í byggingu tvö hundruð orlofshúsa í Istanbúl í Tyrklandi. Það ætlar auk þess að reisa þar nýjar höfuðstöðvar félagsins. Innlent 12.1.2006 08:39
Orkuveitan gerir samning við sjónvarpsfyrirtækið Bonnie og Fast TV Orkuveita Reykjavíkur hefur gert samning við evrópska sjónvarpsfyrirtækið Bonnie og íslenska kvikmyndaleyfishafann SAM um að sjónvarpsstöðvar Fast TV verði aðgengilegar heimilum sem tengd eru ljósleiðarakerfi Orkuveitunnar. Innlent 12.1.2006 08:07
FlyMe tvöfaldast í verði Hlutabréf í sænska lággjaldaflugfélaginu FlyMe, sem er að stærstum hluta í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar í Fons eignarhaldsfélagi, hækkuðu gríðarlega í gær í miklum viðskiptum. Gengið stóð í 0,23 sænskum krónum á hlut rétt fyrir lokun markaða og hafði hækkað um 30 prósent á einum degi. Frá áramótum er hækkunin um 85 prósent. Viðskipti innlent 11.1.2006 17:24
Sjö fyrirtæki mega þegar byrja að selja raforku Sjö fyrirtæki hafa fengið leyfi til að selja raforku til neytenda eftir að raforkusala var gefin frjáls um síðustu áramót. Veitur sem framleiða rafmagn þurfa sérstakt leyfi til að selja utan síns dreifisvæðis. Þær sem hafa fengið leyfi eru Hitaveita Suðurnesja, Norðurorka, Orkubú Vestfjarða, Orkuveita Húsavíkur, Orkuveita Reykjavíkur, Rafmagnsveitur ríkisins - RARIK og Rafveita Reyðarfjarðar. Viðskipti innlent 11.1.2006 17:24
Bandaríkjadalur að lækka Erlendir sérfræðingar telja að gengi bandaríkjadals muni lækka gagnvart helstu gjaldmiðlum á árinu. Kemur þetta fram á vefsíðu greiningardeildar Íslandsbanka. Viðskipti innlent 11.1.2006 17:24
Yfirtaka sjónvarpsfélags stöðvuð Þýska útgáfufyrirtækið Axel Springer fær ekki að taka yfir sjónvarpskeðjuna ProSiebenSat1, samkvæmt úrskurði eftirlitsstofnunar fjölmiðla í landinu. Líklegt þykir að Axel Springer áfrýji úrskurðinum til þýskra dómstóla. Viðskipti innlent 11.1.2006 17:24
Góð ávöxtun Vista Séreignarsjóðurinn Vista, sem rekinn er af KB banka og tekur við viðbótarlífeyrissparnaði, skilaði góðri ávöxtun árið 2005. Ein fjárfestingaleiða sjóðsins, innlend hlutabréf, skilaði 67,4 prósenta nafnávöxtun eða 60,7 prósenta raunávöxtun. Er það 2,7 prósentum umfram hækkun úrvalsvísitölunnar. Viðskipti innlent 11.1.2006 17:24
Björgúlfur vildi hætta útgáfu DV skömmu fyrir jól Mikil umræða hefur spunnist um fréttaflutning DV síðasta sólarhring eftir að maður á Ísafirði svipti sig lífi, í kjölfar myndbirtingar og ásakana á hendur honum í blaðinu. Hörð gagnrýni á DV er þó ekki ný af nálinni, þótt sviptingarnar hafi ekki alltaf komist upp á yfirborðið. Blaðið er hluti fjölmiðlasamsteypunnar 365, eins og Fréttablaðið, Stöð 2 og NFS. Allt er þetta í eigu móðurfélagsins Dagsbrúnar, þar sem Baugur ræður mestu, en Landsbankinn á líka lítinn hlut í Dagsbrún. Innlent 11.1.2006 23:03
Mikið annríki hjá Hafnafjarðarlögreglu Óvenju mörg umferðaróhöpp hafa orðið í umdæmi Hafnarfjarðarlögreglu. Flest þeirra má rekja til óvarkárni en mjög hált hefur verið þar í allan dag. Engin meiðsl hafa verið á fólki en lögreglan vill minna fólk á að fara varlega. Innlent 11.1.2006 23:01
Bókun stjórnar Lögmannafélags Íslands Stjórn Lögmannafélags Íslands hefur sent frá sér bókun frá fundi stjórnarinnar í dag vegna fréttaflutnings um aðgengi Fjármálaeftirlitsins að bankareikningum lögmanna. Hún er svohljóðandi: Innlent 11.1.2006 20:11
Undirskriftalistar til að mótmæla ritstjórn DV Mál málanna í dag hefur verið umfjöllun DV um grunaðan kynferðisbrotamann, sem svipti sig lífi eftir að blaðið hafði samband við hann. Lögreglan á Ísafirði hefur ekki ákveðið hvort rannsókn á meintu kynferðislegu ofbeldi hans gegn tveimur unglingspiltum verði haldið áfram, þótt hann sé látinn. Lögmenn segja rannsókninni þó sjálfhætt samkvæmt íslenskum réttarreglum. Innlent 11.1.2006 20:00
Hluthafalisti Íslandsbanka eftir viðskipti undanfarinna daga Íslandsbanki hefur birt áætlaðan hluthafalista eftir undangengin viðskipti og hlutfjárhækkun síðustu daga. Frágangi útboðs lýkur í næstu viku og þá verður nýr hluthafalisti gefinn út. Þess ber að geta að hlutur Þáttar/Milestone er skv. tilkynningu á Kauphöll um viðskipti innherja og telur því með framvirka samninga. Hlutur Íslandsbanka er að frádregnum framvirkum samningum. Innlent 11.1.2006 17:46
Landspítalinn skaðabótaskyldur gagnvart konu Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag að Landspítalinn væri skaðabótaskyldur gagnvart fimmtugri konu vegna læknismeðferðar hjá spítalanum. Innlent 11.1.2006 17:28
KLH rannsóknastofa öðlast faggildingu Klínísk lífefnafræðistofa Holtasmára, eða KLH hefur tekið við vottorði frá SWEDAC, faggildingarstofnun Svíþjóðar, því til staðfestingar að algengustu mælingar KLH væru faggildar. KLH er fyrsta íslenska rannsóknastofa á heilbrigðissviði sem öðlast faggildingu. Innlent 11.1.2006 17:04
Þrettán þúsund undirskriftir hafa safnast Um þrettánd þúsund manns hafa skráð nafn sitt í undirskriftasöfnun á vegum ungliðafylkinga stjórnmálaflokkanna og nokkurra annarra aðila þar sem skorað á blaðamenn og ritstjóra DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína. Innlent 11.1.2006 16:51
Arnaldur Indriðason á útlánamet bókasafnanna síðasta ár Enginn slær Arnaldi Indriðasyni við í útlánum hjá bókasöfnum landsins. Hann er efstur líkt og undanfarin ár samkvæmt útlánatölum frá Landskerfi bókasafna. Landskerfi bókasafna hefur tekið saman lista yfir þær bækur sem mest voru lánaðar út í bókasafnskerfinu Gegni á síðastliðnu ári. Í ljós kom að Arnaldur Indriðason á 7 útlánahæstu titlunum í flokki íslenskra skáldsagna. Innlent 11.1.2006 16:12
Heildarafli minnkar um 61 þúsund tonn milli ára Heildarafli ársins 2005 var 1.667.287 tonn samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Það er 61 þúsund tonnum minni afli en árið áður. 157 þúsund tonnum minni kolmunnaafli skýrir þennan samdrátt segir í tilkynningu frá Fiskistofu. Innlent 11.1.2006 16:08
Formenn þingflokka hvetja til endurskoðunar á ritstjórnarstefnu DV Formenn þingflokka á Alþingi taka undir ályktun ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna þar sem því er beint til ritstjórnar DV að endurskoða ritstjórnarstefnu sína. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá formönnunum. Innlent 11.1.2006 15:33
Færeyskur togari staðinn að ólöglegum veiðum Áhöfn Sýnar, flugvélar Landhelgisgæslunnar, stóð færeyskan togara að meintum ólöglegum veiðum í íslensku efnahagslögsögunni í lok síðustu viku. Togarinn var gripinn rétt innan við miðlínuna milli Íslands og Færeyja en deilur hafa staðið um legu hennar. Innlent 11.1.2006 15:15
Vörubíl ekið aftan á annan vörubíl á Krísuvíkurvegi Vörubíl var ekið aftan á annan vörubíl á Krísuvíkurvegi upp við Vatnsskarð á fjórða tímanum. Lögregla og sjúkrabíll eru á vettvangi en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Hafnarfirði eru ökumenn vörubílanna ekki alvarlega slasaðir og þykja hafa sloppið mjög vel. Vörubílinn sem ekið var aftan á hinn er mikið skemmdur en ekki er talið að tafir verið á umferð um Krísuvíkurveg af þessum sökum. Innlent 11.1.2006 15:31
Ótækt að DV starfi ekki eftir siðareglum Blaðamannafélagsins. Blaðamannafélag Íslands harmar þann atburð sem leitt hefur til umræðu um vinnubrögð og ritstjórnarstefnu DV. Þetta segir í álytkun frá stjórninni og jafnframt leggur stjórnin leggur áherslu á það að í siðareglum Blaðamannafélagsins stendur að blaðamenn skuli sýna fyllstu tilitsemi í vandasömum málum, forðast allt sem valdið geti saklausu fólki eða fólki sem á um sárt að binda óþarfa sársauka eða vanvirðu. Innlent 11.1.2006 15:12
Vill lögfestingu rammaáætlunar um virkjanaframkvæmdir Kristinn H. Gunnarsson, fulltrúi Framsóknarflokks í umhverfisnefnd Alþingis, segist reiðubúinn að beita sér fyrir lögfestingu rammaáætlunar um virkjanaframkvæmdir hér á landi. Þá líst honum ekki á að ráðast í gerð fjögurra stórra álvera á næstu sjö árum eins og rætt hefur verið um að gera Innlent 11.1.2006 14:06
Landsbjörg sjósetur tvö ný björgunarskip Slysavarnafélagið Landsbjörg sjósetti í gær tvö ný ARUN-björgunarskip sem félagið festi kaup á frá breska sjóbjörgunarfélaginu RNLI. Munu þau koma í stað eldri skipa á Vopnafirði og Siglufirði. Skipin eru 18 ára gömul en voru endurbyggð fyrir um 3 árum og eru því nánast eins og ný. Innlent 11.1.2006 13:57
Mál DV rætt á stjórnarfundi Dagsbrúnar á föstudag Stjórn Dagsbrúnar, móðurfélags 365 miðla sem gefa út DV, mun ræða þá umfjöllun sem átt hefur sér stað um frétt DV á áður boðuðum stjórnarfundi á föstudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þórdísi Sigurðardóttur, stjórnarformanni Dagsbrúnar. Innlent 11.1.2006 14:07
Spá áframhaldandi hækkun Úrvalsvísitölunnar Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands heldur áfram að hækka á árinu 2006 og mun hækka um 20% á árinu að mati greiningadeildar Íslandsbanka. Innlent 11.1.2006 13:56