Innlent
Tveir skjálftar á rúmlega hálftíma Tveir skjálftar hafa mælst í dag sem eru sterkari en þrír á Richterkvarða. Fyrri skjálftinn mældist um þrír á Richter og varð í Vatnajökli, norðan við Bárðarbungu, og reið yfir rétt fyrir klukkan þrjú. Seinni skjálftinn varð rétt út af Tjörnesi um hálftíma síðar og mældist hann 3,5 á Richterkvarða. Innlent 13.1.2006 17:28
Tekist á um aðfarahæfi Mál Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og Jóns Ólafssonar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Annars vegar var tekinn fyrir ágreiningur um aðfararhæfni enska dómsins á Íslandi og hins vegar krafa um að fjárnámsgerð sýslumanns yrði felld úr gildi. Innlent 13.1.2006 17:04
Ekki góð blanda Fullt tungl hefur löngum vakið forvitni meðal mann og hugsanleg áhrif þess á menn og málleysingja. Sumir vilja meina að fleiri börn fæðist á fullu tungli en ella og á fullu tungli komi einnig í ljós hvorf varúlfar séu manna á meðal eður ei. Við leituðum til spákonu til að fræðast um áhrif fulls tungls og hjátrúnna í kringum föstudaginn þrettánda. Innlent 13.1.2006 16:59
Él um allt vestanvert landið Gengið hefur á með éljum um allt vestanvert landið og snjór og hálka er á vegum. Þrátt fyrir þetta eru allar helstu leiðir færar samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Hálka eða hálkublettir eru einnig í öðrum landshlutum. Innlent 13.1.2006 16:42
Fylgja siðareglum Blaðamannafélagsins Ritstjórn DV mun hér eftir fylgja siðareglum Blaðamannafélags Íslands segir Björgvin Guðmundsson, annar tveggja nýráðinna ritstjóra blaðsins. Hann segir að í framtíðinni verði lögð meiri áhersla en verið hefur á að segja fréttir af stjórnmálum og viðskiptum. Innlent 13.1.2006 16:29
Fjölmenni á fyrsta bæjarstjórnarfundinum Um tíundi hver íbúi Voga á Vatnsleysuströnd, eða um hundrað manns, mætti á bæjarstjórnarfund í gær. Fundurinn var sá fyrsti sem bæjarstjórn heldur eftir að hreppurinn sem lengi hefur verið til varð að sveitarfélagi. Innlent 13.1.2006 15:44
Sorphirðan dýrust á Ísafirði Ísfirðingar greiða hæst sorphirðugjöld af íbúum fimmtán stærstu sveitarfélaga landsins. Þau hafa jafnframt hækkað meira á milli ára en í öllum hinum stærstu sveitarfélögunum. Innlent 13.1.2006 15:25
Stjórn og starfsfólk slegin Í yfirlýsing frá Strætó bs.segir að starfsfólk og stjórn Strætó bs. séu harmi slegin vegna hins hörmulega umferðaslyss í morgun þar sem strætisvagnsstjóri beið bana. Innlent 13.1.2006 14:54
Ekki þrýst á ritstjóra DV að segja upp Gunnar Smári Egilsson, forstjóri Dagsbrúnar, segir að ekki hafi verið þrýst á ritstjóra DV að segja upp, enda engin ástæða til þess. Ritstjórarnir, Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, tilkynntu um uppsögn sína í morgun sem þeir sögðu tilkomna til að skapa að nýju ró um blaðið og koma á vinnufriði hjá starfsfólki. Innlent 13.1.2006 14:52
Eyrarrósin afhent á Bessastöðum í dag Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum upp úr klukkan fjögur í dag. Eyrarrósin er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands hafa sett á stofn. NFS verður með beina útsendingu frá athöfninni. Innlent 13.1.2006 14:18
Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf harmar orð biskups Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf, ÁST, harmar orð biskups Íslands, herra Karls Sigurbjörnssonar, í sjónvarpsviðtali á NFS 2. janúar síðastliðinn þar sem hann ræddi um hjónabandið í tengslum við fram komna tillögu á Alþingi. Innlent 13.1.2006 14:11
Tíu árekstrar og eitt banaslys Tíu árekstrar höfðu orðið í Reykjavík fyrir hádegi og þar af eitt banaslys á Sæbraut. Vegna slæmrar færðar á götum höfuðborgarsvæðisins í morgun gekk umferðin hægt. Starfsmenn ruðningstækja höfðu í nógu að snúast í morgun, en nú ætti færð á öllum helstu umferðaræðum að vera orðin góð. Innlent 13.1.2006 12:04
Yfirlýsing frá stjórn Dagsbrúnar Stjórn Dagsbrúnar ræddi á fundi sínum í dag málefni dagblaðsins DV í kjölfar hinna hörmulegu atburða á Ísafirði. Í yfirlýsingu frá stjórninni segir að hún starfi eftir starfsreglum þar sem m.a. er kveðið á um að stjórnarmönnum sé óheimilt að hlutast til um einstök umfjöllunarefni fjölmiðla í eigu félagsins. Innlent 13.1.2006 10:57
Banaslys á Sæbraut Banaslys varð á níunda tímanum í morgun þegar flutningabíll og strætisvagn skullu saman á Sæbraut, rétt ofan við Húsasmiðjuna. Ökumaður annars bílsins lést en enga aðra sakaði. Innlent 13.1.2006 10:25
Páll Baldvin og Björgvin ráðnir ritstjórar DV Páll Baldvin Baldvinsson, menningarritstjóri DV, og Björgvin Guðmundsson, blaðamaður á Markaðinum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, hafa verið ráðnir ritstjórar DV í stað Jónasar Kristjánssonar og Mikaels Torfasonar sem sögðu upp í morgun. Innlent 13.1.2006 09:51
Ritstjórar DV segja upp Ritstjórar DV, þeir Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, hafa sagt upp störfum. Þeir segjast gera það til að skapa að nýju ró um blaðið og koma á vinnufriði hjá því dugandi starfsfólki sem unnið hefur á ýmsum sviðum þess, segir í tilkynningu frá þeim. Innlent 13.1.2006 09:46
Mikill snjór víða á Suðvesturlandi Talsverður snjór féll víða á Suðvesturlandi í nótt og má búast við talsverðum umferðartöfum í morgunsárið á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn borgarinnar byrjuðu fyrir allar aldir að hreinsa og saltbera aðar umferðaræðarnar en á hliðargötum er sumstaðar þæfingur og auðvitað hálka. Innlent 13.1.2006 08:16
Tveir meintir fíkniefnasalar handteknir Tveir meintir fíkniefnasalar voru handteknir í gær og í nótt. Fyrst handtók Selfosslögreglan karl og konu í bíl á Eyrarbakkavegi eftir að fíkniefni fundust í fórum þeirra sem leiddi til handtöku sölumanna í Þorlákshöfn. Innlent 13.1.2006 08:07
Kannaðir kostir þess að sameina KHÍ og HÍ Menntamálaráðherra hefur skipað starfshóp til að kanna kosti þess að sameina Háskóla Íslands og Kennaraháskólann. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þetta sé gert í samráði við rektora beggja skólanna. Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri mun leiða starf nefndarinnar og er henni ætlað að skila niðurstöðu fyrir lok febrúarmánaðar. Innlent 13.1.2006 08:04
Norðmenn vilja smíða varðskip fyrir Íslendinga Norðmenn hafa mikinn áhuga á að smíða nýtt varðskip fyrir Íslendinga því þeir eiga þrjár umsóknir af fimmtán, um að fá að taka þátt í lokuðu útboði um smíðina. Annars komu umsóknirnar úr öllum heimshornum, frá Chile, Danmörku, Kína, Póllandi, Spáni og Ítalíu, svo nokkrir séu nefndir. Stefnt er að því að umsækjendur fái útboðsgögn í febrúar og að undirritaður samningur liggi fyrir í sumar byrjun. Upp úr því ætti smíðin að geta hafist Innlent 13.1.2006 07:58
Ellefu bíla árekstur í Ártúnsbrekkunni í gær Ellefu bílar lentu í árekstri í Ártúnsbrekkunni um tíu leitið í gærkvöldi, en engin slasaðist. Þunguð kona var þó flutt í sjúkrabíl til skoðunar, en mun ekki hafa orðið meint af hnjaskinu. Ekki liggur ljóst fyrir hvað olli þeirri keðjuverkun að fyrst skullu tveir bílar saman Innlent 13.1.2006 07:53
Vísitalan yfir sexþúsund stig Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Íslands fór yfir 6000 stig í gær og sló með því enn eitt metið. Vísitalan endaði í 6009 stigum. Hækkun vísitölunnar frá áramótum nemur 8,56 prósentum. Viðskipti innlent 12.1.2006 18:21
Virkur eignarhlutur í SPH frá upphafi Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjarðar (SPH) telur að samkvæmt skilgreiningu Fjármálaeftirlitsins hafi virkur eignarhlutur verið til staðar í sjóðnum frá upphafi og undrast því rannsókn eftirlitsins nú. Kemur þetta fram í greinargerð sem Sparisjóðurinn sendi frá sér í gær. Viðskipti innlent 12.1.2006 18:21
Gagnrýnir Kjartan Gunnarsson Henrik Didner, sem situr í valnefnd sem leggur fram tillögu að næstu stjórn sænska verðbréfafyrirtækisins Carnegie, er ósáttur við vinnubrögð Kjartans Gunnarssonar, formanns nefndarinnar, og ætlar að ganga úr henni. Viðskipti innlent 12.1.2006 18:21
Herðir tök sín á Skandia Erlendir hluthafar eiga orðið 72 prósent hlutafjár í sænska fjármálafyrirtækinu Skandia. Í nóvember var þessi tala hins vegar 63 prósent. Viðskipti innlent 12.1.2006 18:21
Áfram hækkar Íslandsbanki Hlutabréf í Íslandsbanka hækkuðu um 2,5 prósent í byrjun viðskiptadags í gær eftir að greint var frá því að nokkrir lykilstjórnendur í Íslandsbanka hefðu gert kaupréttarsamninga við bankann til þriggja ára. Í lok dags höfðu bréf bankans hækkað um rúm tvö prósent. Viðskipti innlent 12.1.2006 18:21
Endurfjármagna lán Símans Í kjölfar samrunans við Skipti hefur efnahagsreikningur Símans vaxið úr 26 milljörðum króna í rétt rúma 84 milljarða. Kom þetta fram á hluthafafundi sem haldinn var 21. desember á síðasta ári og sagt var frá í Fréttablaðinu í gær. Á hluthafafundinum var samruninn samþykktur. Skipti ehf. er félagið sem keypti Símann af ríkinu í sumar fyrir 66,7 milljarða króna. Viðskipti innlent 12.1.2006 18:21
Pattstaða í viðræðum um hlut borgarinnar í Landsvirkjun Pattstaða er í viðræðum ríkisins við Reykjavíkurborg og kaup ríkisins á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Viðræðum um málið hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna deilu um verðmat á fyrirtækinu. Innlent 12.1.2006 23:30
Lækkanir vegna verðstríðs gengnar til baka Verðbólga nú í janúar mælist 4,4% sem er meira en spáð hafði verið. Hagfræðingur hjá ASÍ segir ljóst að áhrif verðstríðs síðasta vor á matvöruverð sé gengið til baka og sér ekki forsendur fyrir þeim hækkunum sem orðið hafa. Innlent 12.1.2006 23:06
Aðjúnktinn lagði alþingismanninn Snorri Sigurðsson aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskóla Íslands lagði Sigurð Kára Kristjánsson alþingismann í æsispennandi viðureign í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur var á Stöð 2 fyrr í kvöld. Lífið 12.1.2006 23:00