Lög og regla

Fréttamynd

Sá á bak þjófnum með fartölvuna

Lögreglan í Reykjavík leitar nú manns sem braust inn í íbúð á Leifsgötu í dag og hafði á brott með sér fartölvu ásamt greiðslukorti, vegabréfi og ökuskírteini konu sem býr íbúðinni. Konan kom heim í dag og tók þá eftir því að búið var að losa stormjárn á glugga í íbúðinni. Þegar hún leit út um gluggann sá hún á bak þjófnum með fartölvuna í fanginu.

Innlent
Fréttamynd

Ók á ljósastaur á Kringlumýrarbraut

Ökumaður bifreiðar var fluttur á sjúkrahús með minni háttar áverka eftir að hann missti stjórn á bílnum á Kringlumýrarbraut í Fossvogi og ók á ljósastaur. Slysið varð upp úr klukkan þrjú í dag. Að sögn lögreglu skemmdist bíllinn hins vegar það mikið að draga þurfti hann af vettvangi og þá þurfti einnig að fjarlægja staurinn.

Innlent
Fréttamynd

Varað við barnaníðingi á Akureyri

Lögreglan á Akureyri leitar nú manns sem tvívegis hefur reynt að lokka átta og níu ára drengi upp í bíl sinn í grennd við Síðuskóla. Hvorugur piltanna þáði boð hans en þeir hafa gefið trúverðuga lýsingu á bílnum sem maðurinn var á en lýsing á manninum sjálfum er meira á reiki.

Innlent
Fréttamynd

Brutust inn í Verkmenntaskólann á Akureyri

Lögreglan á Akureyri hafði morgun afskipti af pilti og stúlku sem brotist höfðu inn í Verkmenntaskólann í bænum. Lögregla fékk tilkynningu snemma í morgun um að þjófavarnarkerfi hefði farið í gang í Verkmenntaskólanum og þegar hún kom á vettvang kom í ljós að þar hafði verið brotist inn með þvi að brjóta rúðu en þjófarnir haft sig á brott þegar þjófavarnarkerfið fór í gang.

Innlent
Fréttamynd

Sátu fyrir innbrotsþjófum

Tveir menn sátu fyrir innbrotsþjófum á heimili föður síns í morgun og leiddi fyrirsátið til handtöku þeirra. Þetta var þriðja ferð innbrotsþjófa í húsið, frá því um jólin, en þeir höfðu stillt upp þýfi í anddyrinu sem beið þess að vera sótt.

Innlent
Fréttamynd

Segir myndavélaeftirlit hafa sannað gildi sitt

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir myndskeiðið sem sýnt var í fjölmiðlum í vikunni af hrottalegri líkamsárás þriggja pilta á tvo aðra pilta í Garðarstræti á nýársnótt sanna gildi myndavélaeftirlits. Foreldrar piltanna hafi komið þeim í hendur lögreglu sama kvöld og myndirnar hafi verið birtar í fjölmiðlum.

Innlent
Fréttamynd

Raðumferðarlagabrjótur gripinn á Reykjanesbraut

Lögreglan höfuðborgarsvæðisins hafði afskipti af raðumferðarlagabrjóti á Reykjanesbraut í Kópavogi í gærkvöld. Að sögn lögreglu mældist hann á 139 kílómetra hraða á bíl sínum þar sem hámarkshraði er 70. Maðurinn hefur alloft áður gerst sekur um hraðakstur.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla leitar manns í Hafnarfirði

Leit er hafin að rúmlega fertugum karlmanni, Gísla Bryngeirssyni, sem fór frá heimili sínu í Hafnarfirði í gærkvöldi á ljós bláum Chevrolet Suburban, til að viðra tvo hunda. Síðast heyrðist frá honum í grennd við Hvaleyrarvatn um klukkan hálf tólf.

Innlent
Fréttamynd

Árásarmanna enn leitað

Lögreglan í Reykjavík hefur engar vísbendingar fengið um árásarmennina, sem frömdu alvarlega líkamsárás á móts við kínverska viðskiptasendiráðið í Garðastræti á nýjársnótt. Upptaka af atvikinu úr eftirlitsmyndavél, var sýnd í sjónvarpsstöðvunum í gærkvöldi, en það hefur ekki enn borið árangur.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla birtir myndir af árásarmönnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú þriggja manna vegna mjög alvarlegrar líkamsárásar í Reykjavík á nýársnótt og hefur birt myndir af þeim úr öryggismyndavél. Þremenningarnir eru grunaðir um að hafa ráðist á tvo menn á móts við kínverska viðskiptasendiráðið í Garðastræti 4.

Innlent
Fréttamynd

Á 130 kílómetra hraða á Miklubraut

Tvítugur piltur var gripinn eftir að bíll hans mældist á 130 kílómetra hraða á Miklubraut í nótt. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að hann hafi nokkrum sinnum áður gerst sekur um umferðarlagabrot.

Innlent
Fréttamynd

Tívolíbomba sprakk í höndunum á ungum dreng

Lögreglumenn óku um fjögurleytið ungum dreng á slysadeild eftir að hann hafði verið að fikta með tívolíbombu við Réttarholtsveg. Að sögn lögreglu sprakk bomban í höndunum á honum en að sögn læknis á slysavarðstofu í Fossvogi slapp hann með minniháttar brunasár á höndum og fingrum.

Innlent
Fréttamynd

Kveikt í skotköku inni í BMW-blæjubíl

Kveikt var í skotköku inni í blæjubifreið á Selfossi í morgun með þeim afleiðingum að bíllinn skemmdist nokkuð. Það var íbúið á Fossheiði á Selfossi sem varð var við skothvelli og þegar hann gætti nánar að kom í ljós að þeir komu frá athafnasvæði Bílamálunar Agnars í Gagnheiði

Innlent
Fréttamynd

Manna enn leitað eftir árás í vesturbænum

Lögreglan í Reykjavík leitar enn manna sem réðust á karlmann á þrítugsaldri í vesturbæ Reykjavíkur á nýársnótt og höfuðkúpubrutu hann. Lögregla segir málið enn í rannsókn en vitni voru að árásinni og gátu því lýst árásarmönnunum.

Innlent
Fréttamynd

Veltu bíl nærri Hellu í mikilli hálku

Tvennt var flutt með sjúkrabíl til Reykjavíkur eftir að bifreið valt á Suðurlandsvegi til móts við bæinn Fet skammt frá Hellu í dag. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli var mikil hálka á veginum á tímabili og talið að hún hafi átt sinn þátt í slysinu.

Innlent
Fréttamynd

Slökkvistarfi lokið í Rimaskóla

Slökkvistarfi í Rimaskóla lauk nú á áttunda tímanum en þangað var slökkviliðið kallað um sexleytið vegna elds í klæðningu á íþróttahúsi skólans. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn og taldi slökkvilið sig hafa komist fyrir eldinn um klukkan hálfsjö.

Innlent
Fréttamynd

Varað við fölskum atvinnutilboðum í netpósti

Ríkislögreglustjóri varar netnotendur við atvinnutilboðum erlendis frá sem þeir fá send á netföng sín. Fram kemur í tilkynningu frá Ríkislögreglsutjóra að í flestum tilfellum sé um sölu- og markaðsstörf að ræða og þykjast fyrirtækin sem kynnt eru til sögunnar vera leiðandi á því sviði á Netinu en flestum tilfellum er um hreina svikastarfsemi að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta á Sandskeiði

Einn var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir bílveltu á Sandskeiði á tíunda tímanum í morgun. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en maðurinn var kominn út úr bílnum þegar lögreglu og slökkvilið bar að garði. Meiðsl mannsins eru talin minni háttar en hann var einn í bílnum.

Innlent
Fréttamynd

Reyndist ölvaður undir stýri í banaslysi

Annar mannanna, sem yfirheyrðir hafa verið vegna umferðarslyss sem varð á Reykjanesbraut nærri nýju IKEA-versluninni í Garðabæ í nóvember, hefur viðurkennt að hafa ekið bifreiðinni. Komið hefur í ljós að hann og tveir aðrir sem voru í bílnum hafi verið undir áhrifum áfengis en einn mannanna lést þegar bílnum var ekið á steypustólpa.

Innlent
Fréttamynd

Tengivagn valt á Suðureyrarvegi

Vegurinn til Suðureyrar er lokaður vegna umferðaróhapps sem varð nú í eftirmiðdaginn. Þá valt tengivagn flutningabíls með þeim afleiðingum að hann lokar nú veginum. Óhappið varð til móts við eyðibýlið Laugar á veginum milli Suðureyrar og Botns í Súgandafirði en að sögn lögreglu á Ísafirði urðu engin slys á fólki.

Innlent
Fréttamynd

Annar dæmdra nauðgara laus úr gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhald yfir tveimur karlmönnum sem eru grunaðir um kynferðisbrot og setið hafa í varðhaldi undanfarið rennur út í dag. Lögreglan í Reykjavík hefur ekki farið fram á framlengingu gæsluvarðhalds yfir þeim eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá henni.

Innlent
Fréttamynd

Sjö stútar á ferð í nótt

Lögreglan í Reykjavík tók sjö ölvaða ökumenn úr umferð frá miðnætti og framundir morgun, sem er líklega met í miðri viku, að sögn lögreglu. Sumir þeirra voru talsvert drukknir.

Innlent
Fréttamynd

Fjögurra bíla árekstur á Vesturlandsvegi

Fjögurra bíla aftanákeyrsla varð um fimm-leytið á Vesturlandsvegi til móts við Select á leiðinni í Mosfellsbæ. Engin slys urðu á fólki og litlar skemmdir á bílum. Umferð tafðist hins vegar nokkuð meðan lögregla athafnaði sig á staðnum. Að sögn lögreglu er ekki hálka á þessum stað núna, frekar en öðrum stofnbrautum, en gott að hafa í huga bilið á milli bílanna.

Innlent
Fréttamynd

Nokkuð um slys í borginni í gær

Lögreglunni í Reykjavík bárust nokkrar tilkynningar um slys á fólki í gær eftir því sem segir á vef lögreglunnar. Um miðjan dag datt karlmaður á áttræðisaldri í Mosfellsbæ. Óttast var að hann væri fótbrotinn en maðurinn var fluttur á slysadeild.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla leitar til almennings vegna íkveikja í Lifrarsamlaginu

Lögregla í Vestmannaeyjum óskar eftir aðstoð almennings vegna ítrekaðra tilrauna til að kveikja í kaffistofu Lifrarsamlagsins í Vestmannaeyjum. Fram kemur á vefnum eyjar.net að frá árinu 2002 hafi fimm sinnum verið reynt að kveikja í Lifrasamlaginu, síðast 4. desember.

Innlent
Fréttamynd

Ungur piltur viðurkennir íkveikju á Akureyri

Ungur piltur hefur viðurkennt að hafa kveikt í blaðabunka í sameign fjölbýlishúss við Drekagil á Akureyri í nóvember síðastliðnum með þeim afleiðingum að töluvert tjón varð í húsinu bæði vegna elds og reyks. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Fann kannabisplöntur við húsleit á Súðavík

Lögreglan á Ísafirði lagði hald á sjö kannabisplöntur í húsleit á Súðavík í gærkvöld. Sú stærsta reyndist vera um 60 sentímetrar. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að einn heimilismanna hafi viðurkennt að eiga plönturnar og hafa ætlað afrakstur ræktunarinnar til sölu.

Innlent