Íþróttir

Fréttamynd

Timberwolves að slípa sig saman

Þrátt fyrir að menn séu orðnir heilir í herbúðum Minnesota Timberwolves, þá á liðið enn töluvert í land með að ná saman á nýjan leik.

Sport
Fréttamynd

Kenýskur sigur í Aþenu

Kenýumenn sópuðu til sín öllum verðlaununum á Aþenu maraþoninu sem fram fór í 22. annað skiptið í morgun. Frederick Cherono leiddi sveit ellefu Kenýumanna sem luku keppni á 2:15,28 klukkustundum en landar hans Barnabas Ruto og Christopher Kosgei lentu í öðru og þriðja sæti, á 2:17,09 og 2:17,29.

Sport
Fréttamynd

Móður knattspyrnumanns rænt

Ein bjartasta von Brasilíumanna í knattspyrnuheiminum, Robinho, varð fyrir áfalli um helgina þegar móður hans var rænt.

Sport
Fréttamynd

Lést í leik

Sergei Zholtok, leikmaður Nashville Predators í NHL-deildinni, lést á miðvikudagskvöldið en óreglulegur hjartsláttur hafði hrjáð kappann síðustu árin.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti sigur Bobcats

Nýliðar Charlotte Bobcats unnu sinn fyrsta sigur í NBA-deildinni í nótt með því leggja Orlando Magic á heimavelli, 111-100. Slóveninn Primoz Brezec, sem er orðinn ein helsta stjarna Bobcats, skoraði 20 stig og tók 10 fráköst og leiddi lið sitt til þessa sögulega sigurs. Cuttino Mobley var stigahæstur í liði Magic með 23 stig.

Sport
Fréttamynd

Sörenstram vann Mizuno Classic

Hin sænska Annika Sörenstram heldur áfram að gera það gott í golfheiminum. Í nótt vann hún Mizuno Classic mótið i Japan í fjórða skiptið röð og náði þar með jafna met Lauru Davies hvað flesta sigra á PGA-mótaröð kvenna í röð varðar. Sörenstram lék lokahringinn einkar vel, á 65 höggum eða sjö undir pari, og tryggði sér þar með sigurinn

Sport
Fréttamynd

Dynamo tapaði sínum fyrsta leik

Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í Dynamo St. Pétursborg töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar þeir lágu, 76-86, fyrir Unics Kazan á útivelli.

Sport
Fréttamynd

Öruggur sigur Bayern

Bayern Munchen kom atlögu sinn að endurheimt þýska meistaratitilsins aftur á rétta braut með sigri gegn Hannover 96 á heimavelli í dag. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn en sigur Bæjara var aldrei í hættu eftir að Claudio Pizzarro hafði komið þeim yfir snemma leiks. Hollendingurinn Roy Maakay og Paulo Guerrero gulltryggðu svo sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Keflavík og ÍR mætast

Keflavík og ÍR mætast í Hópbílabikarkeppni KKÍ í dag í Reykjanesbæ klukkan 15. Nick Bradford fékk leikheimild með Keflavík í gær og verður með liðinu í dag.

Sport
Fréttamynd

Fyrsti sigur Houston

Houston Rockets unnu sinn fyrsta sigur á tímabilinu í NBA-deildinni í nótt er liðið sigraði Memphis Grizzlies 89-81. Tracy McGrady, stigakóngur deildarinnar undanfarin tvö tímabil sem gekk til liðs við Houston í sumar, skoraði 30 stig og átti níu stoðsendingar. Spánverjinn Pau Gasol var stigahæstur í liði Memphis með 21 stig.

Sport
Fréttamynd

Haas efstur eftir tvo hringi

Hinn fimmtugi kylfingur Jay Haas er efstur eftir tvo hringi á Meistaramóti kylfinga á Atlanta þar sem 30 tekjuhæstur kylfingarnir á PGA mótaröðinni berjast á lokamóti ársins. Haas er á sjö höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Safin í úrslit í París

Rússinn Marat Safin tryggði sér dag sæti í úrslitaviðureign Parísar-meistaramótsins í tennis með því að sigra Guillermo Canas frá Argentínu, 6-2 og 7-6. Safin, sem vann í París 2001 og 2002, getur nú jafnað met goðsagnarinnar Boris Becker, en Becker vann í París þrisvar sinnum. Safin mætir annaðhvort Max Mirnyi eða Radek Stepanek í úrslitum.

Sport
Fréttamynd

Framlag Gunnars mikilvægt

Gunnar Einarsson, fyrirliði körfuboltaliðs Keflavíkur, átti frábæran leik þegar Keflvíkingar hófu þátttöku sína í Evrópukeppninni með 93-74 sigri á franska liðinu Reims í Keflavík á miðvikudaginn var.

Sport
Fréttamynd

Birgir Leifur komst í gegn

Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum niðurskurðinn fyrir fjórða og síðasta hringinn á öðru stigi úrtökumótanna fyrir evrópsku mótaröðina í golfi þrátt fyrir að hafa ekki náð sér á strik á þriðja hring. Birgir Leifur þurfti að hætta í miðjum klíðum á þriðja hring í gær vegna óveðurs en hann lauk við hann í morgun og lék á 76 höggum.

Sport
Fréttamynd

Viggó sá Massenheim og Düsseldorf

Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari fylgdist með leik Wallau Massenheim og Düsseldorf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær þar sem Íslendingar voru bestu menn vallarins. Wallau vann 29-28.

Sport
Fréttamynd

Hauka mæta afslappaðir gegn Kiel

Meistaraflokkslið Hauka í handknattleik karla hefur sýnt góða frammistöðu í Meistaradeild Evrópu og náð ágætis árangri þrátt fyrir að vera með sterkum liðum í riðli. Þá hefur liðið verið á hraðri siglingu í íslensku deildinni, aðeins tapað einum leik af fyrstu sjö, og trónir á toppi Norðurriðilsins.

Sport
Fréttamynd

Dramatík fyrir norðan

Þór sigraði granna sína í KA 28-27 í norðurriðli 1. deildar karla í handbolta í gær fyrir framan 700 áhorfendur. Lettneski landsliðsmarkvörðurinn Mareks Skabeikis var hetja Þórs. Auk þess að verja 25 skot varði hann vítakast Halldórs Jóhanns Sigfússonar þegar fjórar sekúndur voru eftir.

Sport
Fréttamynd

Nick Bradford byrjar vel

Keflvíkingar unnu ÍR-inga með 19 stiga mun í seinni leik liðanna í átta-liða úrslitum Hópbílabikars karla í dag. Þar með unnu Keflvíkingar samtals með 62 stiga mun og mæta nágrönnum sínum í Njarðvík í undanúrslitum. Nick Bradford skoraði 27 á 23 mínútum í leik sem markar endurkomu hans til Keflvíkur og ljóst er að hann mun styrkja lið þeirra mikið.

Sport
Fréttamynd

Ásgeir meðal markahæstu manna

Ásgeir Örn Hallgrímsson er fimmti markahæsti leikmaður meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir fyrstu fjóra leiki riðlakeppninnar en Ásgeir hefur skorað 29 mörk í þessum fjórum leikjum eða 7,3 mörk að meðaltali í leik.

Sport
Fréttamynd

San Antonio vann Lakers

San Antonio Spurs lögðu Los Angelers Lakers 105-96 í NBA-deildinni í nótt. Tim Duncan skoraði 26 stig fyrir Spurs og hirti 16 fráköst. Kobe Bryant skoraði 28 stig fyrir Lakers. Meistarar Detroit Pistons steinlágu fyrir Toronto Raptors 101-89 í Kanada.

Sport
Fréttamynd

Hjátrú ræður för

Næstu Ólympíuleikar munu hefjast í Kína þann 8. 8. 2008 klukkan 8 um kvöldið í höfuðborginni Peking og er mikil og góð sátt um þessa dagsetningu þar sem talan 8 þykir mikil happatala í landinu.

Sport
Fréttamynd

Fram tapaði í Rúmeníu

Fram tapaði fyrri leik sínum gegn rúmenska liðinu Uztel Ploiesti 32-26 í áskorendakeppni Evrópu í handbolta nú síðdegis. Hjálmar Vilhjálmsson var markahæstur Framara með 7 mörk en sóknarleikurinn var slakur í fyrri hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Fram mætir Uztel SCC Ploiesti

Fram mætir rússneska liðinu Uztel SCC Ploiesti í áskorendakeppni Evrópu í Rúmeníu í dag. Framarar sömdu um að báðir leikirnir færu fram í Rúmeníu og mætast liðin aftur á morgun.

Sport
Fréttamynd

Zo vill titil

Miðherjinn Alonzo Mourning hjá New Jersey Nets, er heltekinn af því að vinna NBA-titil.

Sport
Fréttamynd

Jordan fær Toyotavél

Jordanliðið í Formúlu 1 kappakstrinum vinnur þessa daganna að samningi við Toyota um að sjá liðinu fyrir vél á næsta tímabili.

Sport
Fréttamynd

Þrír efstir eftir fyrsta hring

Bandaríkjamennirnir Jerry Kelly og Jay Haas ásamt Norður-Íranum Darren Clarke eru efstir og jafnir eftir fyrsta hringinn á Meistaramótinu, lokamóti bandarísku mótaraðarinnar í golfi í Atlanta, þar sem þrjátíu tekjuhæstu kylfingarnir eigast við. Þremenningarnir léku hringinn á 67 höggum eða þremur undir pari.

Sport
Fréttamynd

Harford til Forest

Forráðamenn Nottingham Forest neituðu að Mick Harford væri að taka við stöðu Joe Kinnear sem knattspyrnustjóri liðsins.

Sport