Þórunn Sveinbjarnardóttir

Fréttamynd

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Akstur í boði SORPU

Sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu stofnuðu SORPU fyrir tæplega 20 árum. Á sínum tíma var stofnun byggðasamlagsins mikið framfaraskref í þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Loksins var fólki - fyrirtækjum og heimilum - gefinn kostur á því að flokka og endurvinna úrgang en slíka þjónustu höfðu mörg Evrópulönd þá boðið árum saman. Enda var SORPU vel tekið og fólk almennt séð duglegt að tileinka sér kosti flokkunar og endurvinnslu með jákvæðum umhverfisáhrifum og virðisauka fyrir samfélagið allt.

Skoðun
Fréttamynd

Grænþvottur í Kaupmannahöfn?

Lokasprettur loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn hefst í dag. Ráðherrar tínast til Hafnar hver á fætur öðrum og fyrir lok vikunnar þarf að innsigla samkomulag um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Sjaldan hefur jafnmikið verið undir á einni SÞ-ráðstefnu. Ef ríki heims grípa ekki til raunhæfra aðgerða strax til þess að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda bendir allt til þess að hlýnun lofthjúpsins muni kalla fram hamfaralíkar breytingar á veðurfari og lífríki jarðar á þessari öld. Hér þarf ekki að ýkja neitt, nóg er að kynna sér niðurstöður Vísindanefndar SÞ um loftslagsbreytingar til að sannfærast um nauðsyn þess að grípa til róttækra aðgerða. Afleiðingar hlýnunar lofts og sjávar geta kallað miklar hörmungar yfir mannkynið.

Skoðun
Fréttamynd

Best geymda leyndarmálið

Ríkisstjórn Íslands tekur ekki sameiginlegar ákvarðanir. Hún er ekki fjölskipað stjórnvald, eins og það heitir á lagamáli. Ég er ekki frá því að þessi staðreynd sé eitt best geymda leyndarmál íslenskrar stjórnskipunar. Þetta þýðir að hver ráðherra ber sín mál – oftast án undanfarandi kynningar – inn á fund ríkisstjórnar og fær þau samþykkt umorðalaust. Á þessu eru undantekningar, t.d. getur annar ráðherra beitt neitunarvaldi, eða mál eru af þeirri stærð að formenn stjórnarflokkanna þurfi að véla um þau. Hefðin kennir að ráðherrar í ríkisstjórn Íslands skipti sér sem minnst af ábyrgðarsviði kollega sinna, nema þau skarist með einhverjum hætti. Ég fæ ekki séð að það hafi breyst mikið á liðnum mánuðum.

Skoðun
Fréttamynd

Flöggum Grænfánanum sem víðast

Snælandsskóli í Kópavogi fær afhentan Grænfánann í dag og bætist þar með í fríðan hóp skóla sem dregið hefur fánann að húni hér á landi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða um heim sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Í lok liðins árs voru yfir 21.000 skólar þátttakendur í verkefninu, flestir í Evrópu.

Skoðun
Fréttamynd

Landsskipulagsáætlun er verkfæri við umhverfisvernd

Nýverið mælti ég fyrir frumvarpi til skipulagslaga á Alþingi. Í frumvarpinu er að finna ýmis nýmæli, og verði það að lögum mun það styrkja skipulagsgerð í landinu og efla þátttöku almennings í henni. Í því er einnig viðurkennd þörfin á því að ríkisvaldið leggi til heildstæða sýn í skipulagsmálum með svokallaðri landsskipulagsáætlun.

Skoðun
Fréttamynd

Stundum hófsamar veiðar

Rjúpnaveiðitímabilið hófst í gær. Í haust verða veiðar á rjúpu eingöngu leyfðar í nóvembermánuði, fjóra daga vikunnar.

Skoðun
Fréttamynd

Sátt um náttúruvernd

Um langt árabil höfum við Íslendingar deilt harkalega um náttúruvernd og nýtingu orkuauðlinda. Í þeim deilum hafa menn gjarnan skipað sér í fylkingar og haldið því fram að tekist sé á um ósamrýmanleg sjónarmið.

Skoðun
Fréttamynd

Þannig er laganna hljóðan

Þorsteinn Pálsson gerir ummæli mín um hugmyndir um olíuhreinsistöð að umfjöllunarefni í ritstjórnargrein 22. ágúst sl. Þar sér hann ástæðu til að taka nýjan umhverfisráðherra í kennslustund í stjórnsýslufræðum og segir m.a.

Skoðun
Fréttamynd

Aðgerða er þörf á Íslandi

Sterkar vísbendingar eru um að breytingar séu að verða í íslenkri náttúru vegna hlýnunar andrúmslofts og sjávar. Frá Vestmannaeyjum berast þau tíðindi að allt stefni í að lundavarp bregðist í ár vegna þess hve lítið er af æti í sjónum. Sumir telja að krían verpi lítið og seint af sömu ástæðum.

Skoðun
Fréttamynd

Samfylking vill stóriðjuhlé

Þegar Hafnfirðingar ganga að kjörborðinu í íbúakosningu um stækkun álversins í Straumsvík hafa þeir í hendi sér valdið til þess að stöðva stækkunaráform Alcans. Það gera þeir með því að merkja nei við tillögu að nýju deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir þreföldun álversins.

Skoðun
Fréttamynd

Vísindastefna meðalmennskunnar?

Vísindin efla alla dáð“ er ritað á vegginn fyrir ofan dyrnar að Hátíðarsal Háskóla Íslands. Flestir kunna hendinguna en fæstir líklega kvæðið allt eftir Jónas. Í því segir líka: „...tífaldar þakkir ber færa þeim, sem að guðdómseldinn skæra, vakið og glatt og verndað fá...“

Skoðun
Fréttamynd

Setjum Hafnarfjarðarveginn í stokk

Samgöngur og vegamál eru ofarlega á baugi um þessar mundir. Nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sjálfstæðismaðurinn Halldór Halldórsson, hefur gert nýjar kröfur í samgöngumálum að umfjöllunarefni í þessu blaði og Samtök verslunar og þjónustu hafa nýverið skorað á stjórnvöld að gera 10 ára stórátak í vegamálum.

Skoðun