Ari Trausti Guðmundsson

Fréttamynd

Er íslenskan í hættu?

Varla nokkurt hinna lítið útbreiddu og sérstæðu tungumála heims þróast án áhrifa útbreiddu málanna, svo sem ensku, spænsku, rússnesku og kínversku. Í þeim efnum má eflaust greina framþróun og öfugþróun.

Skoðun
Fréttamynd

Vanmetin nýsköpun

Sífellt er minnst á hve nýsköpun skiptir framvindu samfélagsins miklu máli. Í ríkisfjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem er hennar pólitíska hagfræði, er eitt af málefnasviðunum nefnt rannsóknir, nýsköpun og þekkingargreinar.

Skoðun
Fréttamynd

Silfurberg og landvarsla

Þegar kemur að lýsingum á því hve merkileg íslensk náttúra er förum við stundum fram úr okkur að margra mati. Nú er sagt í umfjöllun um vanda Helgustaðanámu að fundarstaðir silfurbergs séu fáir í heiminum.

Skoðun
Fréttamynd

Röng skilaboð

Við höfum átt orðastað, ég og forsætisráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi um skil hans á skýrslum um aflandsfélög og skuldaleiðréttinguna. Í máli hans kemur fram að hann telur réttlætanlegt að hafa haldið þeim frá almenningi og Alþingi fram yfir ríkisstjórnarmyndun

Skoðun
Fréttamynd

Ferðaþjónustan: Betur má gera ef duga skal

Framlag í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða á fjárlögum 2017 verður of lágt. Auk þess hefur framlag frá 2016 ekki nýst af mörgum ástæðum. Þar hefur t.d. víða staðið á mótframlögum sveitarfélaga. Sum eru ekki það burðug að þau hafi í raun nægt fé til þeirra og önnur verkefni gengið fyrir.

Skoðun
Fréttamynd

Hjálp í viðlögum

Hvað er mikilvægast núna í stjórnmálum? Að mati okkar þingmanna VG eru það brýnar viðgerðir, nánast hjálp í viðlögum, á heilbrigðis- og menntakerfinu, í velferðarmálum og á ýmsum innviðum samfélagsins, t.d. í samgöngum.

Skoðun
Fréttamynd

Íslensk olía?

Olíuleit á Drekasvæðinu knýr fram spurningu: Olíuvinnsla ef olía finnst og er vinnanleg; já eða nei? Skúli Thoroddsen, lögfræðingur Orkustofnunar, svarar játandi í pistli í Fréttablaðinu 23.11.

Skoðun
Fréttamynd

Við og hinir

Við vitum að á Íslandi eru stunduð mannúðarstörf. Með því er átt við fjölskylduhjálp, líknarmeðferð á sjúkrahúsum, endurhæfing þeirra sem eiga við geðræn vandamál að stríða, fjárgjafir til íbúa jarðskjálftasvæða sem hafa orðið illa úti og ...? Er þörf á að nefna fleira?

Skoðun
Fréttamynd

Lagt í'ann

Þegar Vinstrihreyfingin – grænt framboð leggur af stað út í kosningastarf 2016 í Suðurkjördæmi liggur beint við að spyrja á hvað frambjóðendur, flestir ferskir í boði eins og ég, leggja áherslu.

Skoðun
Fréttamynd

Öryggið á oddinn

Margir lýsa áhyggjum sínum af öryggi ferðamanna. Margir þeirra erlendu eru allsendis óvanir landsháttum, veðri og ýmsum fyrirbærum sem við heimamenn ýmist þekkjum og kunnum á, eða vörumst.

Skoðun
Fréttamynd

Ferðaþjónustan: Meira þarf til

Ólöf Ýrr Atladóttir ferðmálastjóri varar við að álag á samfélagið komi niður á gestrisni vorri (Fbl. 26.07.). Hún bendir á að megingagnrýni á þróun ferðaþjónustunnar varði sein viðbrögð opinberra aðila og einkageirans við álaginu. Í framhaldi af þessum orðum er vert að minnast á hugtakið þolmörk.

Skoðun
Fréttamynd

Rangir leikir

Traust almennings á þingi, ríkisstjórnum og stjórnsýslu kjörinna fulltrúa hefur laskast á mörgum árum. Undarlegar leikfléttur 5. apríl, frammi fyrir afhjúpun á aflandstengslum ráðherra og skýrum kröfum meirihluta landsmanna, juku enn

Skoðun
Fréttamynd

Hvert stefnir?

Stjórnmálamönnum ber að að halda trúnaði við umbjóðendur sína og samfélagið og nú hafa nokkrir þeirra brugðist traustinu - einn þeirra sýnu verst og mest.

Skoðun
Fréttamynd

Tillaga að frumvarpi er ekki frumvarp

Krafan um breytt vinnubrögð við stjórnun landsins, breytingar í efnahagsmálum og réttlátari skiptingu fjármuna er öflug. Hún hefur lengi verið uppi en sjaldan sterkari en eftir kollsteypuna 2008.

Skoðun
Fréttamynd

Mörg spil í stokknum

Ein helsta skýring á fylgi Pírata í margendurteknum skoðanakönnunum er á að giska þessi: Fjöldi fólks vill refsa þeim fjórum flokkum sem lengst hafa vélað um hagsmuni þess og lífsskilyrði en ekki tekist nógu vel upp.

Skoðun
Fréttamynd

Skilaboð frá toppAra

Ég hef skrifað um margt sem að mér snýr í blöðin en afar sjaldan um heilbrigðismál. Nú ætla ég að taka til mín nýleg orð Sigmundar Davíðs forsætisráðherra. Ég er nefnilega toppari - sem sagt Ari sem hef gaman af háum toppum og bý við þá gæfu að vera vel heilsuhraustur. En ég þekki til margra sem eru það ekki

Skoðun
Fréttamynd

Myndum við stofna RÚV?

Myndum við stofna ríkisútvarp nú á dögum? - er spurt. Sennilega reikna spyrjendur með því að nútíminn væri andstæður þess konar ríkisstarfsemi.

Skoðun
Fréttamynd

Hlutverk forseta Íslands

Í framhaldi af grein Stefáns Jóns Hafstein sl. helgi blanda ég mér í umræðuna. Sem frambjóðandi 2012 bý ég yfir margs konar reynslu og stefnumótun sem á erindi til lesenda Fbl.

Skoðun
Fréttamynd

Nýsköpun – fagmennska – iðnmenntun

Engum dylst að nýsköpun, sem nýtur aukins ríkisstuðnings, hefur verið og er einn af leiðarvísunum við endurreisn samfélagsins eftir 2008. Stór hluti nýsköpunar snýst um tæki og tól.

Skoðun
Fréttamynd

Viljum við ekki skýrleika?

Talið um að vinstri og hægri séu úrelt og merkingarlaus hugtök er sjálft nánast merkingarlaust – eða öllu heldur svo ofhlaðið ólíkum skilningi á svona almennum hugtökum að umræðan verður næsta gagnslaus. Talið er jafn tómlegt og hugtökin bændaflokkur, gamalmennapólitík eða fjórflokkur.

Skoðun
Fréttamynd

Nýtt X, takk

Mannúðleg heimspeki, lífsskoðun, grunnhugmynd eða hvaðeina sem menn vilja nefna leiðarhnoða manna í stjórnmálum, þarf ekki að vera flókin til að virka.

Skoðun
Fréttamynd

Sjómenn við skyldustörf

Það er hollt að muna hver uppruni okkar Íslendinga er. Þjóðin varð til úr hópum fólks sem efndi til eins konar þjóðflutninga burt af meginlandi Evrópu. Orsakir þeirra voru efalítið nokkrar.

Skoðun
Fréttamynd

Aðgerða þörf – núna

Þegar nú stjórnvöld víða um heim sjá fram á æ alvarlegra ástand heima fyrir og í samskiptum þjóða, til dæmis í Asíu þar sem gríðarlegur mannfjöldi er háður jökulvatni jafnt sem sjávarstöðu, er tvennt í stöðunni. Við verðum að vinna gegn manngerðum orsökum loftslagsbreytinga.

Skoðun
Fréttamynd

Getum við lært?

Hryðjuverkin í París bergmála víða. Það var eflaust einn þátturinn í ætlunarverki þeirra sem þau frömdu. Sama dag voru um 100 lögreglunemar í Jemen drepnir í sprengjutilræði og við höfum fregnað um samtímaatburðina í Nígeríu

Skoðun
Fréttamynd

Frumbyggjaskóli SÞ?

Á ráðstefnunni Arctic Circle í Reykjavík voru fjöldamargir boltar á lofti. Að þessu sinni var sem betur fer lögð meiri áhersla en áður á brýn málefni sem lágt ris var á í fyrra: Umhverfismál og málefni frumbyggja.

Skoðun
Fréttamynd

Stígum varlega til jarðar

Á stuttu tímabili hefur álag á mörg útivistarsvæði margfaldast. Kemur þar til aukinn áhugi okkar á útivist og umferð margra meðal næstum einnar milljónar ferðamanna. Afleiðingar of mikils álags blasa því miður víða við.

Skoðun
Fréttamynd

Íslendingar tala hjá SÞ

Nú þegar nýliðinn er dagur kröfunnar um að þjóðir heims taki til hendinni vegna þess þáttar veðurfarsbreytinga sem er óvefengjanlega rakinn til mannlegra athafna, stendur yfir leiðtogafundur í Bandaríkjunum um málefnið.

Skoðun
Fréttamynd

Dýrari bækur – aukinn lestur?

Sagt er að í hallærum hér áður fyrr hafi menn notað bækur fyrir brenni og skinnhandrit í skó. Ritað mál varð að víkja fyrir viljanum til að lifa af.

Skoðun