Ísafjarðarbær

Fréttamynd

Maður gerir ekki rass­gat einn

Sagan að baki tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður á Ísafirði hefur eflaust verið margsögð og margtuggin í þau tuttugu ár sem hátíðin hefur verið til. Það var bjartsýnishugmynd með grínívafi sem flaug um yfir þeim feðgum, Erni Elíasi og Guðmundi föður hans eða þeim Mugison og Mugga pabba hans.

Skoðun
Fréttamynd

Gera til­raunir með skafrenningsmæli

Tilraunir hafa verið gerðar með skafrenningsmæli á Steingrímsfjarðarheiði í vetur en vonir standa til að mælirinn komi til með að nýtast við að meta snjóflóðahættu.

Innlent
Fréttamynd

Metfjöldi skemmti­ferða­skipa í sumar

Aldrei hafa jafn mörg skemmtiferðaskip boðað koma sína á Ísafjörð líkt og í sumar. Bæjarstjórinn segir unnið að því að tryggja að ferðamenn í bænum verði ekki fleiri en innviðirnir þola.

Innlent
Fréttamynd

Lík­legt að loka þurfi vegum vegna veðurs

Von er á stórhríð á Vestfjörðum og Snæfellsnesi á morgun, og gætu vindhviður náð allt að 36 metrum á sekúndu. Aðalvarðstjóri á Ísafirði segir að vegna veðursins gæti þurft að ráðast í lokanir á vegum.

Innlent
Fréttamynd

Biðin eftir jarð­göngum óásættanleg

Bæjarstjóri Ísafjarðar segir óásættanlegt að biðin eftir jarðgöngum á milli Súðavíkur og bæjarins verði líklega um tuttugu ár eins og staðan er nú. Ítrekað hafi þurft að loka veginum um Súðavíkurhlíð í vetur vegna snjóflóða og ótrúlegt sé að ekki hafi orðið stórslys.

Innlent
Fréttamynd

Sund­laugin fyllist á ný og bæjar­búar fagna

Byrjað er hleypa vatni ofan í sundlaugina á Þingeyri á ný þar sem framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu mánuði. Nýr dúkur hefur verið lagður þar sem sá eldri lak og segir starfsmaður sundlaugarinnar að bæjarbúar fagni innilega.

Innlent
Fréttamynd

Skoða að byggja nýja slökkvi­stöð

Bæjarstjóri Ísafjarðar skoðar nú að reisa nýja slökkvistöð í bænum. Elsti hluti núverandi byggingar er 86 ára gömul og glíma slökkviliðsmenn við tíð lekavandamál þar vegna fjölþættra vandamála. 

Innlent
Fréttamynd

Fær sínu fram­gengt í stóra aparólu­málinu á Ísa­firði

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur lagt fram ný hönnunargögn vegna leikvallar á Eyrartúni. Í nýjum drögum er umdeild aparóla fjær íbúðarhúsum, þvert gegn afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar sveitarfélagsins. Íbúi við hliðina á túninu hafði kært málið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Innlent
Fréttamynd

Önnuðust krefjandi út­kall á hafi

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist krefjandi útkall á haf út í slæmu veðri í gærkvöldi. Óskað var eftir aðstoð þyrlusveitarinnar vegna veikinda sem upp komu í togara sem var á veiðum um 20 sjómílur út af Ísafjarðardjúpi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni sem birt var á Facebook-síðu þeirra í morgun.

Innlent