Fréttir

Fréttamynd

Sjáumst!

Í skammdeginu eru ljósin kveikt á bílunum til þess að auðvelda sýnileika þeirra í umferðinni. En hvað með aðra í umferðinni? Hvernig aukum við sýnileika vegfarenda? Þar koma endurskinsmerki til sögunnar en þau eru örugg, ódýr og auðveld leið til að sjást betur í myrkri.

Skoðun
Fréttamynd

Krakkar verða í spennistöðinni

Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar samþykkti í gær að gamalli spennistöð við Austurbæjarskóla sem Orkuveitan nýtti síðast sem geymslu yrði breytt í félags- og menningarmiðstöð fyrir börn og unglinga og aðra íbúa hverfisins.

Innlent
Fréttamynd

Ósátt bæjarráð í Vesturbyggð

„Enn og aftur upplifa íbúar sunnanverðra Vestfjarða að opinber störf eru lögð niður með tilheyrandi neikvæðum áhrifum og byggðaröskun,“ segir bæjarráð Vesturbyggðar sem kveðst harma ákvörðun Kirkjuþings um að sameina prestaköll á sunnanverðum Vestfjörðum og leggja niður embætti sóknarprests í Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli sem jafnframt þjónaði Barðaströnd.

Innlent
Fréttamynd

Margir berjast um öruggu sætin

Línur verða æ skýrari fyrir alþingiskosningarnar í vor og um helgina ræðst hvernig skipað verður á lista Sjálfstæðisflokksins í þremur kjördæmum; báðum Reykjavíkurkjördæmunum og Norðvesturkjördæmi. Þá kjósa félagar í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði um frambjóðendur í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi. Sé litið til skoðanakannana má áætla sem svo að fækka muni í þingliði Vinstri grænna, en fjölga hjá Sjálfstæðisflokknum. Slagurinn um efstu sætin hjá báðum flokkum verður því nokkuð spennandi.

Innlent
Fréttamynd

Ætla að ná öllu Kongó undir sig

Uppreisnarmenn í Afríkuríkinu Austur-Kongó hafa hertekið borgina Goma og segjast nú ætla að ná öllu landinu undir sig, líka höfuðborginni Kinshasa.

Erlent
Fréttamynd

Tíu ára fangelsi fyrir spillingu

Ivo Sanader, fyrrverandi forsætisráðherra Króatíu, var á þriðjudag dæmdur til tíu ára fangelsisvistar fyrir að hafa þegið mútur frá ungversku olíufélagi og austurrískum banka.

Erlent
Fréttamynd

Fjólubláar kýr í Háskólabíói í næstu viku

Einn frægasti markaðsmaður heims, Bandaríkjamaðurinn Seth Godin, er væntanlegur til landsins. Godin mun halda fyrirlestur í Háskólabíói eftir átta daga á vegum Ímarks, félags íslensks markaðsfólks. Markaðurinn ræddi við Godin vegna komu hans til Íslands.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Eignarrétti ógnað með lögum um lífeyrissjóði

Lífeyrissjóðirnir leggja nú þegar fjármuni í varasjóði, segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar, kallaði eftir því í Fréttablaðinu í gær að þeir greiddu í slíkan sjóð. Neituðu þeir því og reiddu sig á lánsveð þyrfti að skoða hvort meina ætti þeim að vera á almennum lánamarkaði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Íslendingar þróa skólamáltíðir

Þróunarsamvinnustofnun Íslands tekur þátt í nýju verkefni sem felur í sér að bjóða upp á skólamáltíðir í Malaví sem eru ræktaðar í heimabyggð.

Innlent
Fréttamynd

FME upplýsir ekki um eigendur Straums

Fjármálaeftirlitið (FME) er með upplýsingar um virka eigendur Straums fjárfestingabanka en telur sig ekki geta veitt aðgang að þeim upplýsingum á grundvelli þagnarskyldu. Straumur er með fjárfestingabankaleyfi og er virkur þátttakandi í íslensku fjármálalífi. Bankinn hefur meðal annars umsjón með hlutafjárútboðum og skuldabréfaútgáfum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hagnaðist um 1,7 milljarða

Landsbankinn hagnaðist um tæplega 1,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi ársins. Bankinn birti uppgjör sitt fyrir fjórðunginn á fimmtudag. Uppsafnaður hagnaður fyrstu níu mánuði ársins er þar með 13,5 milljarðar en til samanburðar var hagnaður 27,0 milljarðar á sama tímabili í fyrra.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Kjarnorkan komin á rafmagnsreikninginn

Rafmagnsnotanda sem hafði samband við Fréttablaðið brá heldur í brún þegar hann fékk ársyfirlit frá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) fyrir árið 2011. Þar var yfirlit yfir uppruna raforkunnar eftir orkugjöfum og sjá mátti að endurnýjanleg orka sæi fyrir 89 prósentum rafmagnsins og jarðefnaeldsneyti sex prósentum. Afgangurinn, fimm prósent, væri hins vegar framleiddur með kjarnorku.

Innlent
Fréttamynd

Uppgjör milli Tals og Vodafone fyrir dómstóla

Uppgjör á reikningum vegna gagnaflutnings og innsláttar pantana sem Vodafone telur Tal hafa vangreitt er á leið fyrir dómstóla. Verði lyktir málsins Vodafone í vil mun það kosta Tal 119 milljónir króna auk vaxta. Þetta kemur fram í ársreikningi IP-fjarskipta, móðurfélags Tals, og skráningarlýsingu Vodafone.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Forseti Alþingis í Indlandsför

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, er í opinberri heimsókn á Indlandi. Með henni eru þingkonurnar Unnur Brá Konráðsdóttir og Oddný G. Harðardóttir, auk alþjóðaritara þingsins, Jörundar Kristjánssonar.

Innlent
Fréttamynd

Fermetraverð lækkaði um 10% frá 2008 til 2011

Fermetraverð húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu lækkaði í öllum hverfum frá 2008 til 2011, í kjölfar bankahrunsins. Talsverður munur er þó á því hve mikið fermetraverðið lækkaði en verðlækkunin er á bilinu 2 til 16%. Þetta leiða í ljós talnagögn sem hagfræðideild Landsbankans birti í Hagsjá í síðustu viku.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Styrkja og fræða ungt fólk

Jafningjafræðslan hlaut í gær Viðurkenningu Barnaheilla – Save the Children á Íslandi árið 2012 fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðskrá verði áfram á Selfossi

"Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með það að hagræðingaraðgerðir ríkisins séu alltaf á sama veg, að starfsemi sé lögð niður á landsbyggðinni og flutt til Reykjavíkur," segir bæjarráð Árborgar í yfirlýsingu vegna ákvörðunar um að loka skrifstofu Þjóðskrárinnar á Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Fjallið opnað á laugardaginn

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar verður opnað formlega á laugardag klukkan tíu um morguninn. Talsvert hefur snjóað á svæðinu síðustu daga og töluvert magn af snjó náð að festast í brekkunum. Þá hefur verið nægilega kalt fyrir snjóframleiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Hafði kallað Makedóna slava

Aivo Orav, sendiherra Evrópusambandsins í Makedóníu, hefur beðist afsökunar á því að hafa sagt meirihluta landsmanna vera slava.

Erlent
Fréttamynd

Konur mega ekki verða biskupar

Bretland Enska biskupakirkjan felldi í gær naumlega tillögu um að konur gætu orðið biskupar í kirkjunni. Tuttugu ár eru síðan kirkjan samþykkti að konur gætu orðið prestar.

Erlent
Fréttamynd

Reynt að semja um vopnahlé

Fulltrúar Egypta hafa síðustu daga lagt mikla vinnu í að fá Ísraela og Palestínumenn til að semja um vopnahlé og gerðu sér vonir um að af því yrði í gær, nærri viku eftir að Ísraelar hófu loftárásir á Gasa. Ekkert samkomulag hafði náðst þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi.

Erlent
Fréttamynd

Vissi ekki að peningarnir kæmu frá Eir

Jóhannes Rúnar Jóhannsson hæstaréttarlögmaður, tengdasonur Sigurðar Helga Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Eirar, stóð í þeirri trú að gjafabréf á flugmiða sem Sigurður afhenti honum væri persónuleg gjöf frá tengdaföður hans.

Innlent
Fréttamynd

Afskipti af tóbakssölu barna þyrnir í augum

Samtök verslunar og þjónustu saka Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogsvæðis um íþyngjandi og ólögmæt afskipti af afgreiðslustörfum þeirra sem eru yngri en átján ára í verslunum þar sem tóbak er selt.

Innlent
Fréttamynd

Afnema þarf samkeppnistálma

Samkeppniseftirlitið telur ekki tilefni til íhlutunar vegna kvörtunar Samtaka fiskframleiðenda og útgerða. Eftirlitið beinir hins vegar tilmælum til Steingríms J. Sigfússonar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, um að draga úr samkeppnishindrunum í sjávarútvegi.

Innlent