Enski boltinn

Enski boltinn

Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.

Leikirnir





    Fréttamynd

    Burnley sló út Chelsea

    Burnley gerði sér lítið fyrir í kvöld og sló út Chelsea á Stamford Bridge er liðin mættust í ensku deildarbikarkeppninni í kvöld.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Liverpool er í hefndarhug

    Miðjumaðurinn Tom Huddlestone hjá Tottenham gerir fastlega ráð fyrir að Liverpool verði í miklum hefndarhug í kvöld þegar það sækir Tottenham heim í enska deildabikarnum.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Vona að Benitez hvíli 10 menn

    Harry Redknapp stjóri Tottenham segist vona að kollegi hans Rafa Benitez hjá Liverpool tefli fram veikara liði í viðureign liðanna í deildabikarnum í kvöld en hann gerði í deildarleik liðanna á White Hart Lane í deildinni á dögunum.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Heiðar Helguson á leið til QPR

    Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson sem leikur með Bolton í ensku úrvalsdeildinni er á leið til QPR í Championship deildinni. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Enginn kjúklingaskítur hjá Arsenal

    Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur haft þann vana á að tefla fram ansi ungu liði í deildabikarnum. Hann hélt sama hætti gegn Wigan og vann öruggan 3-0 sigur sem vel hefði getað verið stærri.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Elano þreyttur á að vera í kuldanum

    Brasilíski miðjumaðurinn Elano er þreyttur á því hve fá tækifæri hann fær hjá Manchester City eftir að Mark Hughes tók við liðinu. Elano lék lykilhlutverk undir stjórn Sven Göran Eriksson á síðasta tímabili.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Henry vill ekki fara frá Barcelona

    Thierry Henry blæs á þær sögusagnir sem orða hann við endurkomu í enska boltann. Hann segist vilja vera áfram hjá Barcelona og hjálpa liðinu að vinna spænska meistaratitilinn.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Hargreaves frá út tímabilið

    Owen Hargreaves, miðjumaður Manchester United, mun ekki spila meira á þessu tímabili vegna stöðugra meiðsla á hné. Hann fór í aðgerð í síðustu viku og nú er ljóst að hann þarf að gangast undir frekari aðgerðir.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Hughes á leið til Abu Dhabi

    Mark Hughes, knattspyrnustjóri Manchester City, er nú að ferðast til Abu Dhabi til fundar við sjeik Mansour Bin Zayed Al Nahyan, eiganda félagsins. Umræður hafa verið um framtíð Hughes í starfi.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Hert lyfjaeftirlit í úrvalsdeildinni

    Til stendur að herða lyfjaeftirlit til muna í ensku úrvalsdeildinni frá og með næsta ári þegar hópur leikmanna í deildinni mun gangast undir ströng próf með óreglulegu millibili.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Metgod aðstoðar Adams hjá Portsmouth

    Johnny Metgod, fyrrum varnarmaður Real Madrid, hefur sagt upp stöðu sinni sem þjálfari hjá hollenska liðinu Feyenoord til að taka við stöðu þjálfara hjá Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Benítez: Of snemmt að fagna

    „Ég mun ekki fagna fyrr en munurinn er orðin 20 stig," segir Rafael Benítz, knattspyrnustjóri Liverpool, sem biður stuðningsmenn félagsins um að fagna ekki of fljótt. Liverpool er átta stigum á undan erkifjendunum í Manchester United.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Umdeilt fagn hjá leikmanni Ipswich

    David Norris, miðjumaður Ipswich Town, hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir það hvernig hann fagnaði marki sínu um helgina. Hann lét sem hann væri í handjárnum en með því ætlaði hann að sýna fyrrum liðsfélaga sínum, Luke McCormick, stuðning.

    Enski boltinn
    Fréttamynd

    Helgin á Englandi - Myndir

    Það var heldur betur líf og fjör í leikjum helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Arsenal vann Manchester United í stórleik umferðarinnar sem olli svo sannarlega ekki vonbrigðum.

    Enski boltinn