Viðskipti erlent

Lokað endanlega fyrir Netflix á Íslandi?

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Netflix er byrjað að prófa ýmsar leiðir til að loka alveg fyrir þjónustuna í löndum eins og á Íslandi.
Netflix er byrjað að prófa ýmsar leiðir til að loka alveg fyrir þjónustuna í löndum eins og á Íslandi. Vísir/Getty
Þjónusta afþreyingarfyrirtækisins Netflix er ekki aðgengileg víða um heim. Þó eru fjölmargir sem fara framhjá lokun Netflix með hinum ýmsu krókaleiðum.

Þar á meðal er fjöldi Íslendinga en talið er að allt að 20.000 heimili séu með aðgang að Netflix. Svo gæti þó farið á næstunni að lokað verði á þessa notendur.

Netflix vinnur nú að því, að beiðni kvikmyndaframleiðslufyrirtækja, að koma í veg fyrir að íbúar í löndum þar sem fyrirtækið starfar ekki geti fengið aðgang að þjónustu fyrirtækisins.

Aðgerðir Netflix fram til þessa eru ekki umsvifamiklar en í frétt torrentfreak.com segir að fyrirtækið sé byrjað að prófa ýmsar leiðir til að loka alveg fyrir þjónustuna í löndum eins og á Íslandi, þar sem hún er í raun og veru ekki í boði.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×