Innlent

Leiðsögumaður við Gullfoss: „Vantar stórkostlega upp á alla gæslu“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Leiðsögumaður sem varð vitni að því þegar erlendir ferðamenn virtu lokanir við Gullfoss að vettugi segir að hið opinbera verði að grípa í taumana áður en af hljótist mikill skaði.
Leiðsögumaður sem varð vitni að því þegar erlendir ferðamenn virtu lokanir við Gullfoss að vettugi segir að hið opinbera verði að grípa í taumana áður en af hljótist mikill skaði. Mynd/Hermann Valsson
Fjöldi ferðamanna virti lokanir göngustígs við Gullfoss að vettugi í gær til þess að komast nær fossinum. Leiðsögumaður sem varð vitni að athæfinu segir að hið opinbera verði að grípa í taumana áður en að ferðamannaiðnaðurinn hér á landi verði fyrir alvarlegum skaða.

Göngustígnum að Gullfossi var lokað af Umhverfisstofnun fyrr í vetur en Hermann Valsson, leiðsögumaður, sem tók meðfylgjandi myndir, segir að ástæðan fyrir því að ferðamenn virði lokanir sem þessa að vettugi sé ósköp einföld.

„Við erum búin að selja ferðamönnum ákveðna vöru. Varan er útsýni, myndefni, aðgengi að náttúru og við erum ekki að afgreiða hana. Við gefum fyrirheit um fallega upplifum og fólk er ekki að fá þessa fallegu upplifun þegar það kemur t.d. að Gullfossi og það kemst ekki að honum,“ segir Hermann.

Hér má sjá ferðamennina komast framhjá hliðinu. Smella má á myndina til þess að sjá stærri útgáfu.Mynd/Hermann Valsson
Vantar stórkostlega upp á alla gæslu

Hermann er bæði leiðsögumaður og ferðamálafræðingur og segir augljóst að hér hafi orðið gríðarleg sprenging í komu ferðamanna á undanförnum misserum. Þá sé flóra ferðamanna sem nú sækir landið heim og hefur gert undanfarin misseri allt annars eðlis en fyrri samsetning.

„Auðvitað er það mjög slæmt að erlendir gestir virði ekki merkingar okkar en við erum bara komin í það sem heitir massatúrismi og hann virðir ekki merkingar, hvort sem það er hér eða úti í heimi,“ segir Hermann.

Að undanförnu hafa ferðamenn sem hafa verið hætt komnir í Reynisfjöru ratað í fréttirnar, stutt er síðan þar lést ferðamaður auk þess sem að ekki er langt síðan ferðamenn voru hætt komnir við Sólheimajökul og Jökulsárlón. Hermann segir að stórefla verði gæslu á vinsælum ferðamannastöðum.

„Við leiðsögumenn höfum rætt um að það stórkostlega vantar alla gæslu. Það vantar fólk og það vantar landverði á þessa staði til þess að halda uppi almennilegru reglu á hlutunum. Það er ekki til neins að hafa lögregluna. Það vantar bara landverði.“

Fjöldi ferðamanna var við Gullfoss í gær. Smella má á myndina til þess að sjá stærri útgáfu.Mynd/Hermann Valsson
Hið opinbera verði að grípa í taumana

Eignarhald á vinsælum ferðamannastöðum getur verið flókið og hefur verið deilt um hver eigi að borga brúsann við það að byggja upp aðstöðu við vinsæla ferðamannastaði. Kallar Hermann eftir því að ríkið grípi inn í án tafar.

„Það er bara einn aðili sem á að taka á skarið. Það er sá aðili sem setur landinu ramma og reglur og það er hið opinbera. Það er enginn sem annar sem á og sem getur sett leikreglur í landinu en hið opinbera.

Raunveruleikinn er bara sá að þetta er orðinn stór iðnaður hjá okkur og það fylgir því að við verðum að taka ábyrgð á honum. Sá sem á að setja rammann og sjá um að vel sé gengið um auðlindina steinsefur,“ segir Hermann.

Smella má á myndina til þess að sjá stærri útgáfu.Mynd/Hermann Valsson
Hætta á að ferðamenn gefist upp á Íslandi sem áfangastað

Verði ekkert að gert segir Hermann að illa muni fara fyrir ferðamannaiðnaðunum sem er orðinn gríðarlega mikilvæg atvinnugrein á Íslandi. Það sé vel þekkt utan úr heimi þar sem skyndilega hefur orðið mikil fjölgun á aðsókn ferðamanna.

„Númer eitt sem gerist er það að við heimamenn missum umburðarlyndi og þolinmæði og við snúumst gegn ferðamönnum.

Það næsta sem gerist er að ferðamennirnir sjálfir sjá að þeir fá ekki þjónustu og aðgengi að vörunni sem þeir kaupa og þeir snúast gegn þessum ákvörðunarstað. Áhugi á landinu dvínar og ferðamannaiðnaðurinn hrynur. Það hefur gerst víða um allan heim,“ segir Hermann að lokum.

Hér að neðan má sjá myndband af ferðamanni sem var með barn í fanginu lenda í vandræðum í gær við Gullfoss.


Tengdar fréttir

Alltaf einhverjir sem hunsa tilmæli lögreglu

Vakt Lögreglunnar á Suðurlandi í Reynisfjörðu hefur gengið vel að mati yfirlögregluþjóns sem segir þó alltaf einhverja hunsa tilmæli lögreglu. Gera þurfi mun betur til að hafa öryggismálin í lagi.

Viðvörunarbjöllurnar klingja sem aldrei fyrr

Ofan í umræðu um öryggi erlendra ferðamanna staðfestir Ferðamálastofa að fjölgun ferðamanna á milli ára var þrjátíu prósent. Sérfræðingur segir að treysta verði og byggja upp flesta innviði í landinu til að mæta fjölguninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×