Kennari í Patreksskóla hefur þurft að fara þrisvar í sóttkví á þremur vikum
Patreksskóla á Patreksfirði verður lokað fram yfir áramót vegna kórónuveirunnar. Sveitarstjóri segir að svo virðist sem fimm daga sóttkví dugi ekki til en nemendur hafa ítrekað greinst jákvæðir á sjötta og sjöunda degi.