Litli/Stóri - Þáttur í þróun

Útvarpsþátturinn Litli/Stóri hóf göngu sína í morgun en umsjónarmenn hans eru þeir Ingimar Helgi Finnson (litli) og Tómas Steindórsson (stóri). Tómas spurði Ingimar spjörunum út fyrsta hálftímann til að kynna þennan nýja leikmann fyrir hlustendum X977. Eftir það var hringt erfitt símtal til Færeyja áður en Sápugeitin mætti til að fara yfir HM í handbolta. Þessi nýji þáttur er ekki bara fíflagangur og sannaðist það þegar Tobba Valla úr Reykjavík Síðdegis mætti og fór yfir Fréttir Vikunnar. Stóra átakið hans Tomma hófst næstum því í kjölfarið en þar sem þáttastjórnendur fundu ekki vigt þá tefst það um eina viku. Tommi nýtti tækifærið og úðaði í sig 25 vængjum frá Dirty Burger n Ribs.

901
2:59:00

Næst í spilun: Tommi Steindórs

Vinsælt í flokknum Tommi Steindórs