Lögreglan skoðar heimsókn tveggja íslenskra stúlkna á hótelherbergi tveggja leikmanna enska landsliðsins
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðar nú heimsókn tveggja íslenskra stúlkna á hótelherbergi tveggja leikmanna enska landsliðsins hér á landi í gær. Ef rétt reynist gæti það verið brot á sóttvarnalögum. Enginn greindist með veiruna innanlands í gær.