Biðtími eftir valkvæðum skurðaðgerðum hefur lengst

Biðtími eftir flestum valkvæðum skurðaðgerðum hefur lengst á þessu ári og aðgerðum fækkað miðað við árið á undan. (LUM) Í nýrri samantekt Landlæknis kemur fram að fjölgað hafi á biðlista eftir aðgerð á augasteini um hátt í sex hundruð í september og 340 manns voru á biðlista eftir brennsluaðgerð á hjarta. Hundrað og fimmtíu bíða eftir skurðaðgerð á maga vegna offitu og um fimmtungi fleiri eftir liðskiptaaðgerð á hné. Heilbrigðisráðherra samþykkti í gær tillögu landlæknis um að fresta valkvæðum skurðaðgerðum frá deginum í dag og til 15. nóvember.

9
00:37

Vinsælt í flokknum Fréttir