Frakkland er komið í úrslitaleik EM kvenna í handbolta eftir stórsigur í dag

Frakkland er komið í úrslitaleik EM kvenna í handbolta eftir stórsigur á Króatíu í dag.Króatar áttu ansi erfitt uppdráttar og þeirra versti hálfleikur í lengri tíma í fyrri hálfleik þar sem liðið skoraði aðeins fimm mörk og munurinn 10 mörk í hálfleik, 15-5. Frakklandi í vil. Króatar byrjuðu síðari hálfleikinn af krafti en náðu aldrei alvöru atlögu að sigrinum, Frakkland vann öruggan 11 marka sigur, 30-19. Noregur og Danmörk mætast svo í hinum undanúrslitaleiknum og kemur þá í ljós hvort Frakkland mæti stelpunum hans Þóris Hergeirssonar eða gestgjöfunum frá Danmörku.

22
00:37

Vinsælt í flokknum Handbolti