Suarez og Parker, var þetta rautt spjald?

Luis Suarez, framherji Liverpool, stal senunni í markalausu jafntefli liðsins gegn Tottenham á Anfield í gærkvöldi. Suarez var í leikmannahópi Liverpool í fyrsta sinn eftir 9 leikja keppnisbann og kom hann inná sem varamaður á 65. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar fékk hann gult spjalt fyrir að sparka í kviðinn á Scott Parker í vítateignum. Margir hafa tjáð sig um sparkið hjá Suarez og eru skiptar skoðanir um hvort hann hafi átt að fá rautt spjald fyrir. Atvikið má sjá í myndbandinu hér fyrir ofan.

2743
00:07

Vinsælt í flokknum Fótbolti