Bíl stolið - hjálpum Rakel að leita

Ég var bara á leiðinni í vinnuna í gærmorgun eins og alla aðra daga og ætlaði að setjast upp í bílinn minn en fann hann hvergi fyrir utan heima hjá mér, útskýrir Rakel Elísdóttir en bílnum hennar, hvít þriggja dyra Toyota Corolla árgerð 1995, var stolið fyrir framan heimili hennar í fyrradag. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá mynd af Toyotunni (JD 454) hennar Rakelar sem hún vonast til að finna sem fyrst. Fólk er vinsamlegast beðið um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 ef það sér hvítu þrumuna hennar.

3711
02:29

Vinsælt í flokknum Lífið