Pepsimörkin: Tryggvi harðhaus ársins

Það gekk á ýmsu hjá framherjanum Tryggva Guðmundssyni í sumar með liði ÍBV. Tryggvi jafnaði markametið með því að skora sitt 126. mark í efstu deild og deilir hann metinu með Inga Birni Albertssyni. Tryggvi var einstaklega óheppinn með meiðsli í sumar en hann lék m.a. með hlífðargrímu á andltinu eftir kinnbeinsbrot og í lokaleiknm var Tryggvi með miklar umbúðir um höfuðið en hann fékk stóran skurð á höfuðið í leiknum gegn FH í næst síðustu umferð. Tryggvi var útnefndur harðhaus ársins í þættinum Pepsimörkin s.l. sunnudag.

6877
01:27

Vinsælt í flokknum Fótbolti