Sunnudagsmessan: Markasyrpa með Robin van Persie
Robin van Persie framherji Arsenal skoraði sitt 100. mark fyrir félagið í 3-0 sigri liðsins gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni s.l. laugardag. Hollenski landsliðsmaðurinn er 17. leikmaðurinn í sögu Arsenal sem nær þessum áfanga. Í myndbandinu má sjá brot af þeim mörkum sem van Persie hefur skorað fyrir Arsenal en hann skoraði tvö mörk í leiknum gegn Bolton.