Tískusýning útskriftarnema í LHÍ

Tískusýning útskriftarnemenda í fatahönnun við Listaháskóla Íslands fór fram á skírdag, fimmtudaginn 21. apríl, í portinu á Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Myndatökumaður Vísis var á svæðinu og myndaði sýninguna.

Níu nemendur við fatahönnunardeild sýndu lokaverkefni sín; Elsa María Blöndal, Gígja Ísis Guðjónsdóttir, Guðmundur Jörundsson, Gyða Sigfinnsdóttir, Halldóra Lísa Bjargardóttir, Hjördís Gestsdóttir, Jenný Halla Lárusdóttir, Signý Þórhallsdóttir og Sigríður M. Sigurjónsdóttir.

Sýningin er afrakstur þriggja ára B.A. náms við Listaháskólann og voru viðstaddir virtir erlendir prófdómarar; Emily Harris frá Sonia Rykiel og Rikke Ruhwald sem unnið hefur fyrir Rykiel, Martine Sitbon, Lacroix ofl. til að meta verk nemenda.

4705
11:33

Vinsælt í flokknum Lífið