Þrestir - sýnishorn

Þrestir eftir Rúnar Rúnarsson fjallar um 16 ára pilt, sem sendur er á æskustöðvarnar vestur á firði til að búa með föður sínum sem hann hefur ekki séð í ein sex ár. Í aðalhlutverkum eru Atli Óskar Fjalarsson, Ingvar E. Sigurdsson, Rakel Björk Björnsdóttir , Kristbjörg Kjeld og Rade Serbedzija. Tónlist myndarinnar er samin af Kjartani Sveinssyni. Þrestir er framleidd af Nimbus Ísland og Nimbus film í samvinnu við Pegasus og MPfilms. Myndin er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands, danska kvikmyndasjóðnum, norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum, króatíska kvikmyndasjóðnum, Iðnaðarráðuneytinu og í samvinnu við Senu, RÚV, TV2 í Danmörku og SF í Danmörku. Þrestir kemur í almennar sýningar 16. október á vegum Senu. Hún verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni RIFF þann 30. september.

5605
01:57

Næst í spilun: Íslenskar kvikmyndir

Vinsælt í flokknum Íslenskar kvikmyndir