Skvísa þú ert með milljón dollara rödd

Kvikmyndin Órói hrifsaði til sín öll áhorfenda verðlaun fyrir íslenskar myndir í kvöld við verðlaunaafhendingu Kvikmyndir.is og Myndir mánaðarins sem fram fór í Egilshöll. Baldvin Zophoniasson var valinn besti leikstjórinn, Atli Óskar Fjalarsson besti leikarinn, Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm var valin besta leikkonan og Órói kvikmynd ársins. Við ræddum við leikarana Elías Helga Kofoed-Hansen sem lék Tedda í myndinni, Birnu Rún Eiríksdóttur með milljón dollara röddina en hún lék Grétu, fyrrnefndan vinningshafa kvöldsins, Atla, sem lék Gabríel og höfund Óróa, Ingibjörgu Reynisdóttur leikkonu. Hér má sjá myndir frá hátíðinni.

23763
02:09

Vinsælt í flokknum Lífið