Dikta - What Are You Waiting For?

Glænýtt myndband frá Diktu frumsýnt á Vísi! Myndbandið er gert af þeim Helga Jóhannssyni leikstjóra, Atla Viðari Þorsteinssyni framleiðanda og Hrafni Garðarssyni tökumanni. Saman hafa þeir gert tónlistarmyndbönd sem hafa vakið athygli bæði hér heima og erlendis, til dæmis Drama með Tilbury og Supertime með Berndsen, sem er eitt af vinsælustu íslensku tónlistarmyndböndum á netinu síðustu ár.

Myndbandið fjallar um baráttu á milli tveggja kappakstursbílstjóra, Benzino og Dynamo Joe, sem eru leiknir af Gunnari Hanssyni og Alexander Briem. Benzino er ósigraður á brautinni til margra ára en Dynamo Joe kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti og sigrar allt sem hægt er að sigra. Þá leitar Benzino hefnda og neyðir hann í lokakappakstur.

7807
04:27

Vinsælt í flokknum Tónlist