Sunnudagsmessan: Pamela tippar á jafntefli í stórleik Man Utd gegn Arsenal

Það verður spennandi að sjá hvort spádómur hundsins Pamelu rætist en hún spáir því að Manchester United og Arsenal geri jafntefli í stórleik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Pamela hafði kolrangt fyrir sér fyrir viku þegar hún spáði Aston Villa sigri gegn Liverpool. Hjörvar Hafliðason og Gunnleifur Gunnleifsson eru sammála Pamelu eins og kom fram í þættinum Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport 2 í gærkvöld. Hjörvar hélt því m.a. fram í þættinum að Pamela hefði giskað á rétt á öll 25 nöfnin sem voru efst í kjörinu fyrir Stjórnlagaþingið.

5146
01:06

Vinsælt í flokknum Messan