Viðtal við þjálfara Belgíu
Roberto Martinez, þjálfari belgíska landsliðsins, býst við hörkuleik annað kvöld er Ísland og Belgía mætast í Þjóðadeildinni. Hann segir eðlilegt að það vanti lykilmenn í landslið þessa dagana og telur ekki að veðrið muni hafa áhrif, margir af hans mönnum hafi jú spilað í Englandi.