Mál Söru Bjarkar gæti haft svipuð áhrif og Bossmann-dómurinn
Mál Söru Bjarkar Gunnarsdóttur gegn Lyon gæti haft svipuð áhrif og Bossmann - dómurinn hafði á sínum tíma. Þetta segir Sif Atladóttir fótboltakona og verkefnastjóri Leikmannasamtaka Íslands. Hún samgladdist sínum gamla samherja úr landsliðinu þegar hún vann sigur í baráttunni við Lyon.