Tveir voru lagðir inn á Landspítalann í gær smitaðir af kórónuveirunni
Tveir COVID-19 sjúklingar voru lagðir inn á lungna- og smitsjúkdómadeildir Landspítalans í gær og liggja nú 18 manns þar inni. Sex eru á gjörgæslu í öndunarvél og segir smitsjúkdómalæknir ástand flestra nokkuð stöðug. Búast megi við að fólkið verði í öndunarvél í allt að þrjár vikur.